ágúst 23, 2003

Tilkynning

Þessi síða gæti legið niðri í nokkra daga bráðlega. Lenti í smá veseni (aftur) þar sem Namezero hafði ekki fært domain-skráninguna yfir til Hosting Matters einsog þeir lofuðu (og rukkuðu fyrir) fyrir ári síðan. Ég var ekkert að spá í þetta fyrr en ég gat ekki endurnýjað lénið nema með ákveðinni aukafyrirhöfn.
Samkvæmt því sem að þjónustufulltrúi hjá Network Solutions sagði mér í dag gæti lénið sjálft legið niðri í allt að 10 virka daga. Vonandi að það verði samt ekki raunin. Á eftir að senda einhver eyðublöð út á faxi og svo er bara að bíða og sjá.
Af ofangreindum ástæðum skulu önnur netföng vera notuð en @semsagt.net til að koma pósti til mín, svona just in case :)

ps.
Hvað er málið með Bandaríkjamenn og að senda allt á faxi? Óþolandi hvað þeir í landi frelsins eru aftarlega á merinni í allskonar svona hlutum. Þetta er svona einsog ást þeirra á ávísunum. Eins gott að þessir taka þó Visa, því ég hef aldrei átt tékkhefti.
Agust skrifaði 23.08.03 17:22

Flokkun: Internetið