ágúst 25, 2003

Jólafrí

Ég var að komast að því að ég verð búinn í jólaprófum 8. desember! Mér finnst það alveg fáránlega snemmt. Það er aftur á móti kostur, þar sem plön jólafrísins eru líklegri til að smella frekar en ella eftir daginn í dag.

Viðskiptasiðfræðin virðist vera skemmtilegt fag. Veit samt ekki alveg hvernig maður á að taka því þegar maðurinn vitnaði í Jónas frá Hriflu.

Ég held að þetta eigi eftir að verða ágætis önn. Eina sem getur sett strik í reikninginn er maginn í sjálfum mér sem þarfnast viðgerðar og einhverjar hosur sem þarf að skipta um í bílnum. Vonandi að hið seinna verði ekki dýrt og hið fyrra verði stórátakalaust.
Agust skrifaði 25.08.03 16:58

Flokkun: Daglegt líf