ágúst 27, 2003

Lederhosen

Mér finnst alltaf jafn skondið að þegar ég mæti mönnum í (svörtum) leðurbuxum, tala nú ekki um ef þeir eru í leðurfrakka líka, þá kemur alltaf upp einhver þýsk setning í huga minn. Hefur komið fyrir mig að ég hafi farið að rifja upp þýskar, sterkar sagnir, algjörlega ómeðvitað.
Þetta gerist trekk í trekk, verði menn í leðurhósum á vegi mínum, nú síðast í þessari viku.
Agust skrifaði 27.08.03 17:57

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Er það ,,Ich habe Sauerkraut in meine Lederhosen``?

Finnbogi skrifaði 27.08.03 18:50

Já, merkilegt með þýsku. Brúnar leðurbuxur (með kvenmannsleggjum í) minna mig einmitt á stelpuna sem gerði heiðarlega tilraun til að kenna mér þýsku á meðan ég dvaldi í VÍ.

Erum við skrítnir, eða bara sértakir?

Tolli skrifaði 27.08.03 23:59