ágúst 28, 2003
Fyrsta sjúklingsbloggið?
Ætli ég sé fyrsti sjúklingurinn til að blogga af spítala? (og það í gegnum sms) (Sent með SMS)
sms skrifaði 28.08.03 20:09
Flokkun: Daglegt líf , SMS
Nei þú ert ekki sá fyrsti. Það er hægt að fá að tengja Laptop tölvur á spítulunum. Hef séð nokkur blogg þaðan.
Strumpakveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 28.08.03 22:05Og Steinunn hans Stefáns Pálssonar bloggaði af sjúkrahúsi með sms-um í síðustu viku (minnir mig).
Leitt að eyðileggja fyrir þér. Láttu þér samt líða vel.
Óli Gneisti skrifaði 28.08.03 22:37Ojæja. Hefði samt verið svolítið skemmtilegt að vera "fyrstur" :)
Ágúst skrifaði 29.08.03 14:02Við frekari eftirgrenslan kom í ljós að Steinunn hafði bloggað í gegnum sms, sem hennar spúsi Stefán Pálsson færði svo handvirkt inn í tölvu (sjá 1, 2 og 3).
Því áskil ég mér rétt til að vera fyrsti sms-sjúkrahússbloggarinn (án milliliðs) þangað til annað kemur í ljós :-)
...ekki það að svoleiðis "titlar" skipti mig nokkru máli ;-)
Kjarni málsins er nú samt sá að það er hálf fáránlegt að maður geti verið staddur inni á spítala, nývaknaður og hálf ringlaður af læknadópi og komið skilaboðum til allra sem vilja þau lesa á internetinu og það í gegnum gsm-síma! Mér finnst það allavega alveg ótrúlegt.
Ágúst skrifaði 30.08.03 10:58