ágúst 29, 2003

Kominn heim

Jæja, þá er ég kominn heim. Líður mun betur í dag en í gær og náföli liturinn farinn úr andlitinu.

Nú er ég með fjóra skurði/stungur í kviðnum og það er óþægilegt þegar strekkist á þeim. Engu að síður skárri stungur en stungur í bakið, enda hafa þeir sem þær stunda sjaldnast fyrir því að svæfa mann fyrst ;)

Hjúkrunarkonurnar voru almennilegar og það er góður andi á St. Jó. Fékk ekki sömu stofnanaógleði og á stóru spítölunum, sem ég hef sem betur fer aldrei þurft að koma inn á nema sem gestur.

Ég þakka öllum sem hafa sent mér góðar kveðjur.
Agust skrifaði 29.08.03 14:20

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Fyrst þú varst svona viljugur að deila með okkur sjúkrahússvistinni, værirðu þá til í að svala forvitni minni og ljóstra upp hvers kyns aðgerð þú varst að fara í?

Már Örlygsson skrifaði 29.08.03 14:37

Já, það er rétt hjá þér, ég hef ekkert gefið það upp.

Það var sumsé verið að taka úr mér nokkra gallsteina og gallblöðruna þar af leiðandi með. Ekkert lífshættulegt sumsé :)

Ágúst gallvaski skrifaði 29.08.03 18:01

Velkominn heim!

Óli skrifaði 30.08.03 10:08

Ah, grey kallinn. Gott að þú lifir eftir þessar hremmingar :-)

Hvað gerir annars gallblaðran?

Már Örlygsson skrifaði 30.08.03 15:08

Ekki mikið lengur í mínu tilfelli ;)

Múhahaha!

Gallblaðran hefur það hlutverk fyrst og fremst að hjálpa til við meltinguna á fitu. Sjá t.d. hér og hér.

Ágúst gallharði skrifaði 30.08.03 16:12