ágúst 30, 2003
Peter Singer kemur til Íslands
Las það í Mogganum í dag að Peter Singer er væntanlegur til landsins. Hann mun halda fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands n.k. laugardag klukkan tvö.Áhugasömum er bent á að lesa stuttan pistil um Singer í Lesbók Moggans. Ég fjallaði líka lítillega um hann þegar mjög áhugaverð grein birtist um hann í NYT Magazine í febrúar s.l. (Heimspeki Peters Singer) Greinin í NYT Magazine virðist vera enn aðgengileg: Unspeakable Conversations
Peter Singer er heimspekingur með attitjúd. Hann kemur fram með mjög réttmætar spurningar... þarfar væri e.t.v. betra orð. Honum hefur tekist að reita fjölmarga hópa til reiði, samtök hafa verið stofnuð til höfuðs kenningum hans en á móti kemur að bækur hans er meðal þeirra mest seldu innan heimspekikatagoríunnar, þrátt fyrir að ekki séu nema um 30 ár síðan sú fyrsta kom út.
Þrátt fyrir að nytjastefna hans sé ekki sú sama og ég aðhyllist - og einsog höfundar greinarinnar í Lesbók Moggans minnast á þá hafa sumir líkt honum við rónann sem kemur óorði á áfengið, af sama skapi komi kenningar hans óorði á nytjastefnuna - verð ég að segja að mér finnast kenningar hans "spennandi". Því miður hef ég ekki kynnt mér þær nema yfirborðskennt. Það er hinsvegar holl spurning að velta fyrir sér hvort öll sú mannhelgi sem við höfum gefið okkur sem sjálfsagðan hlut, hvort hún eigi rétt á sér eða ekki.
Meginefni fyrirlestrarins á laugardaginn er vist náttúruvernd, enda er Singer ekki síst þekktur fyrir bók sína Animal Liberation. Mér finnast þær kenningar og spurningar ekki nærri því eins spennandi og þær sem lúta að mannhelginni og hvernig hann fer (að því er a.m.k. mörgum finnst) langt út fyrir hina klassísku nytjastefnu og gerir ráð fyrir því að menn séu "ofurrökvísir".
Agust skrifaði 30.08.03 13:53 | TrackBack
Flokkun: Heimspeki