ágúst 31, 2003
About Schmidt
Ég horfði á About Schmidt. Góð mynd. Mannleg mynd. Þessi týpa af myndum sem ég fíla. Enginn Hollywood endir, engar sprengingar, engin artificial rómantík milli tveggja alltof fallegra manneskja, enginn "hæskúl", ekkert "god bless America". Heldur tilvistarkreppa. Tæplega 67 ára ekkill, nýsestur í helgan stein - í tilvistarkreppu.Jack Nicholson leikur Warren Schmidt frá Omaha í Nebraska. Hann starfaði áður sem aðstoðar-varaforstjóri tryggingarfélags og finnur, einsog svo margir aðrir í hans stöðu, að lífið er ansi innantómt þegar vinnu sleppir. Konan hans til 42 ára er einhver sem hann þekkir ekki og allt í fari hennar virðist fara í taugarnar á honum. Einkadóttirin býr í Denver er að undirbúa brúðkaup sitt. Hún ætlar að giftast (að því er Warren finnst) algjörum bjána.
Dag einn ákveður Warren að gerast styrktaraðili barns í Afríku, "fósturforeldri", eftir að hafa hafa séð auglýsingu í sjónvarpinu. Bréfin sem hann skrifar Ndugu, 6 ára "fóstursyni" sínum í Tansaníu, eru yndisleg og gefa Warren skemmtilega rödd í sögunni.
Eftir að konan verður bráðkvödd og jarðarförin er afstaðin leggur Warren í ferðalag. Það endar í brúðkaupi dótturinnar. Þar fer Kathy Bates, í hlutverki tengdamóður dótturinnar, eina ferðina enn á kostum í hlutverki sínu.
Allt umhverfi sögunnar, Miðvesturfylki Bandaríkjanna, húsin, húsbíllinn sem Warren ferðast um í, allir staðirnir sem hann stoppar á. Allt þetta hjálpar til að gera söguna manneskjulegri. Einmanaleikinn - tómleikinn í lífi Warrens er sem endurspeglaður í þessu grámyglulega umhverfi.
Það tók mann smá tima að samþykkja að Jack Nicholson ætti svona gamla eiginkonu í upphafi myndinnar og maður er ekki vanur að sjá hann í svona "venjulegu" hlutverki. Hann skilar því engu að síður listavel. Handritið er líka stórgott, byggt á sögu Louis Begley (who?) en handritið sjálft skrifaði leikstjórinn, Alexander Payne, sá hinn sami og skrifaði handritin að og leikstýrði hinni kaldhæðnu Citizen Ruth og hinni ágætu Election (sem var reyndar byggð á sögu annars).
Til að taka þetta allt saman myndi ég segja að fólk sem hefur smekk fyrir góðum kvikmyndum ætti alveg að vera óhrætt að taka About Schmidt næst úti á leigu. Þetta er án efa ekki mynd sem allir fíla en ég mæli hiklaust með henni. Sérstaklega sé fólk í existensíalískum pælingum í haustdumbnungnum. En maður verður að vera tilbúinn til að glotta yfir lífinu, því About Schmidt er grá í sinni tilvistarkreppu en - rétt einsog lífið sjálft - lúmskt fyndin. Þrjár stjörnur af fjórum mögulegum.
Agust skrifaði 31.08.03 15:29
Flokkun: Menning
Humm... verð nú að viðurkenna að ég var nú ekki eins hrifinn af þessari mynd. Alveg ágæt, en ekkert spes. Fannst hún ekkert sérstaklega raunverulegri en annað bull frá Hollywood. Bara þó að eitthvað sé þunglyndislegt þarf það ekki að þýða að það sé raunverulegra.
Strumpakveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 01.09.03 15:05Humm... verð nú að viðurkenna að ég var nú ekki eins hrifinn af þessari mynd. Alveg ágæt, en ekkert spes. Fannst hún ekkert sérstaklega raunverulegri en annað bull frá Hollywood. Bara þó að eitthvað sé þunglyndislegt þarf það ekki að þýða að það sé raunverulegra.
Strumpakveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 01.09.03 15:05Jamm... enda eru "rökin" fyrir því að myndin sé góð ekki að hún sé "þunglyndisleg". Það er semsagt ekkert samasemmerki þar á milli. Það er aftur á móti eitthvað mjög "óamerískt" andrúmsloft í þessari mynd, þ.e.a.s. sem bíómynd, umhverfið er alamerískt. Einhver ákveðinn, jú, þunglyndislegur bragur yfir hlutunum en það er samt ekki nóg í sjálfu sér, því sú "formúla" gengur ekkert alltaf upp, verður reyndar oft mjög tilgerðarleg og leiðinleg. Það má kannski segja að þessi "stíll" sæki ýmislegt í smiðju Peters Bogdanovich o.fl. sem stóðu að "author-myndunum" milli '70 og '75. Nokkrum myndum tekst vel upp með þann "stíl". American Beauty gæti talist ein af þeim (þó svo að ég telji að hún sé full ofmetin) og Magnolia er vel heppnuð mynd í þessum flokki líka.
Ágúst skrifaði 01.09.03 16:01Munurinn á þessum myndum sem þú nefnir er að Magnolia og American Beauty eru góðar og þéttar myndir, en About Schmidt... er í besta falli langdreginn og í versta falli leiðinleg.
My 2 cents
Strumpurinn skrifaði 01.09.03 20:08