ágúst 31, 2003
About Schmidt
Ég horfði á About Schmidt. Góð mynd. Mannleg mynd. Þessi týpa af myndum sem ég fíla. Enginn Hollywood endir, engar sprengingar, engin artificial rómantík milli tveggja alltof fallegra manneskja, enginn "hæskúl", ekkert "god bless America". Heldur tilvistarkreppa. Tæplega 67 ára ekkill, nýsestur í helgan stein - í tilvistarkreppu.Jack Nicholson leikur Warren Schmidt frá Omaha í Nebraska. Hann starfaði áður sem aðstoðar-varaforstjóri tryggingarfélags og finnur, einsog svo margir aðrir í hans stöðu, að lífið er ansi innantómt þegar vinnu sleppir. Konan hans til 42 ára er einhver sem hann þekkir ekki og allt í fari hennar virðist fara í taugarnar á honum. Einkadóttirin býr í Denver er að undirbúa brúðkaup sitt. Hún ætlar að giftast (að því er Warren finnst) algjörum bjána.
Lesa áfram
Sprengingin í Najaf
Roger Hardy fjallar um hryðjuverkið í Najaf (framb: Nadjaf): Attack points to new alliancesSjá líka: Thousands mourn murdered Iraq cleric og Ayatollah Hakim's last sermon.
Ég verð að segja að þessar fréttir komu mér töluvert á óvart, þegar þær bárust af hryðjuverkaárásinni á föstudaginn. Ekki síst hve stór í sniðum árásin var. Að al-Hakím hafi verið veginn gefur manni ekki góða von um framhaldið. Það sem verra er er að hann vitist bæði hafa stuðning meðal fólksins og tengsl við raunveruleikann, sem er fágætur kostur í Írak í dag. Nú er bara að bíða og sjá hvað verður, en þetta er sannarlega nokkuð sem maður óskaði að gerðist ekki.
ágúst 30, 2003
Peter Singer kemur til Íslands
Las það í Mogganum í dag að Peter Singer er væntanlegur til landsins. Hann mun halda fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands n.k. laugardag klukkan tvö.Áhugasömum er bent á að lesa stuttan pistil um Singer í Lesbók Moggans. Ég fjallaði líka lítillega um hann þegar mjög áhugaverð grein birtist um hann í NYT Magazine í febrúar s.l. (Heimspeki Peters Singer) Greinin í NYT Magazine virðist vera enn aðgengileg: Unspeakable Conversations
Peter Singer er heimspekingur með attitjúd. Hann kemur fram með mjög réttmætar spurningar... þarfar væri e.t.v. betra orð. Honum hefur tekist að reita fjölmarga hópa til reiði, samtök hafa verið stofnuð til höfuðs kenningum hans en á móti kemur að bækur hans er meðal þeirra mest seldu innan heimspekikatagoríunnar, þrátt fyrir að ekki séu nema um 30 ár síðan sú fyrsta kom út.
Þrátt fyrir að nytjastefna hans sé ekki sú sama og ég aðhyllist - og einsog höfundar greinarinnar í Lesbók Moggans minnast á þá hafa sumir líkt honum við rónann sem kemur óorði á áfengið, af sama skapi komi kenningar hans óorði á nytjastefnuna - verð ég að segja að mér finnast kenningar hans "spennandi". Því miður hef ég ekki kynnt mér þær nema yfirborðskennt. Það er hinsvegar holl spurning að velta fyrir sér hvort öll sú mannhelgi sem við höfum gefið okkur sem sjálfsagðan hlut, hvort hún eigi rétt á sér eða ekki.
Meginefni fyrirlestrarins á laugardaginn er vist náttúruvernd, enda er Singer ekki síst þekktur fyrir bók sína Animal Liberation. Mér finnast þær kenningar og spurningar ekki nærri því eins spennandi og þær sem lúta að mannhelginni og hvernig hann fer (að því er a.m.k. mörgum finnst) langt út fyrir hina klassísku nytjastefnu og gerir ráð fyrir því að menn séu "ofurrökvísir".
ágúst 29, 2003
Kominn heim
Jæja, þá er ég kominn heim. Líður mun betur í dag en í gær og náföli liturinn farinn úr andlitinu.Nú er ég með fjóra skurði/stungur í kviðnum og það er óþægilegt þegar strekkist á þeim. Engu að síður skárri stungur en stungur í bakið, enda hafa þeir sem þær stunda sjaldnast fyrir því að svæfa mann fyrst ;)
Hjúkrunarkonurnar voru almennilegar og það er góður andi á St. Jó. Fékk ekki sömu stofnanaógleði og á stóru spítölunum, sem ég hef sem betur fer aldrei þurft að koma inn á nema sem gestur.
Ég þakka öllum sem hafa sent mér góðar kveðjur.
ágúst 28, 2003
Fyrsta sjúklingsbloggið?
Ætli ég sé fyrsti sjúklingurinn til að blogga af spítala? (og það í gegnum sms) (Sent með SMS)
Spítalalíf
Aðgerðin gekk vel. Langar rosalega í góðan mat, er samt búinn að finna fyrir smá ógleði.
Skondið þegar ég kom, þá lentu þær í vandræðum með að finna nógu stórt rúm handa mér. Enn ein sönnun þess að veröldin er ekki hönnuð fyrir fólk yfir 1,80 - hvað þá 1,90:)
Annars er svolítið skrítið að liggja hérna á spítala í gamla hverfinu sínu. (Sent með SMS)
ágúst 27, 2003
Spítalalíf
Ég fékk símhringingu í dag. Boðaður í aðgerð í fyrramálið. Hef aldrei lagst inn á spítala áður. Þetta verður sjálfsagt áhugavert. Slepp út á föstudaginn.Lifið heil.
Lederhosen
Mér finnst alltaf jafn skondið að þegar ég mæti mönnum í (svörtum) leðurbuxum, tala nú ekki um ef þeir eru í leðurfrakka líka, þá kemur alltaf upp einhver þýsk setning í huga minn. Hefur komið fyrir mig að ég hafi farið að rifja upp þýskar, sterkar sagnir, algjörlega ómeðvitað.Þetta gerist trekk í trekk, verði menn í leðurhósum á vegi mínum, nú síðast í þessari viku.
ágúst 26, 2003
Slitrur
Ég hef enga trú á:- Stöð 2
- Skjá 2
- Ingibjörgu Sólrúnu
- veðurspánni
- lénsherrum internetsins
- utanríkismálastefnu Bush-stjórnarinnar
- fjármálastefnu Bush-stjórnarinnar
- félagsmálastefnu Bush-stjórnarinnar
- heimurinn sé skrítinn
- Black Adder II sé fyndari en 1. serían
- ...en ekki eins fyndin og WWI-serían
- BBC Prime og Discovery séu að taka of mikinn tíma frá mér
- ég ætti að fara snemma að sofa í kvöld
- ég ætti að dæla í mig sólhatti
- ég ætti að halda heilsu
- það sé asnalegt að gera svona "lista"
- retarded angels are running the show
- þetta verði athyglisverður vetur
ISB: 5000 Spirits or the Layers of the Onion
Bob Dylan: Blonde on Blonde
Aðgerðagreing
Aðgerðagreining lítur út fyrir að vera með verstu kúrsum. Eftir stutta kynningu er ég strax farinn að þjást af stærðfræðilegri innilokunarkennd. Úff! (Sent með SMS)
ágúst 25, 2003
Jólafrí
Ég var að komast að því að ég verð búinn í jólaprófum 8. desember! Mér finnst það alveg fáránlega snemmt. Það er aftur á móti kostur, þar sem plön jólafrísins eru líklegri til að smella frekar en ella eftir daginn í dag.Viðskiptasiðfræðin virðist vera skemmtilegt fag. Veit samt ekki alveg hvernig maður á að taka því þegar maðurinn vitnaði í Jónas frá Hriflu.
Ég held að þetta eigi eftir að verða ágætis önn. Eina sem getur sett strik í reikninginn er maginn í sjálfum mér sem þarfnast viðgerðar og einhverjar hosur sem þarf að skipta um í bílnum. Vonandi að hið seinna verði ekki dýrt og hið fyrra verði stórátakalaust.
Fyrsti skóladagur
Sjávarútvegsfræðin lofar góðu. Mánudagar eiga samt eftir að vera erfiðir, suma daga tímar og kennsla frá kl. 10 til 18. Ég er hinsvegar alveg sáttur við að byrja yfirleitt kl. 10, bara á föstudögum sem ég þarf að mæta kl. átta. (Sent með SMS)
ágúst 24, 2003
Macho pólitík
Maureen Dowd skrifar skemmtilegan pistil um "real men" í bandarískum stjórnmálum: Gotta Lotta StigmataIn presidential races, voters look for the fatherly protector. In the 90's, contenders showed softer sides, crying, wearing earth tones, confessing to family therapy.Talandi um "real men" í bandarískum stjórnmálu, Arnie greyið fékk ekki góða útreið á leiðarasíðum NYT á föstudaginn. Paul Krugman rakkaði hann í sig og Pat nokkur Jordan rifjaði upp hvaða karakter Arnie sýndi þegar hann keppti í vaxtarækt.
But 9/11 and the wars that followed have made pols reluctant to reveal feminine sides. Howard Dean struts and attacks like a bantam, and wonky Bob Graham paid half a mil to plaster his name on a Nascar truck.
Lou Cannon, sem ritað hefur ævisögu Reagans, skrifar í dag um kosningarnar í Kaliforníu: Pity the Winner. Hann minnir á "Reagan's pragmatic, centrist record in Sacramento", nokkuð sem hefur í seinni tíð verið litið framhjá. Einu sinni höfðu Repúblikanar nefnilega fleiri ráð við fjárlagahalla en að lækka skatta enn frekar.
Thomas Friedman heldur áfram að gagnrýna "stjórn" Bandaríkjamanna í Írak: Fighting 'The Big One'
ágúst 23, 2003
Tilkynning
Þessi síða gæti legið niðri í nokkra daga bráðlega. Lenti í smá veseni (aftur) þar sem Namezero hafði ekki fært domain-skráninguna yfir til Hosting Matters einsog þeir lofuðu (og rukkuðu fyrir) fyrir ári síðan. Ég var ekkert að spá í þetta fyrr en ég gat ekki endurnýjað lénið nema með ákveðinni aukafyrirhöfn.Samkvæmt því sem að þjónustufulltrúi hjá Network Solutions sagði mér í dag gæti lénið sjálft legið niðri í allt að 10 virka daga. Vonandi að það verði samt ekki raunin. Á eftir að senda einhver eyðublöð út á faxi og svo er bara að bíða og sjá.
Af ofangreindum ástæðum skulu önnur netföng vera notuð en @semsagt.net til að koma pósti til mín, svona just in case :)
ps.
Hvað er málið með Bandaríkjamenn og að senda allt á faxi? Óþolandi hvað þeir í landi frelsins eru aftarlega á merinni í allskonar svona hlutum. Þetta er svona einsog ást þeirra á ávísunum. Eins gott að þessir taka þó Visa, því ég hef aldrei átt tékkhefti.
Túnískar konur
Túnískar konur eru í auknu mæli farnar að klæðast hijab: Tunisian government, feminists see veiled threat in latest fashionágúst 21, 2003
"Mér vantar"
Hversu oft er hægt að koma fyrir "mér vantar" í sömu auglýsingunni?
DV reynir að svara þessu í nýjustu auglýsingunni frá sér.
Hún pirrar mig, enda er ég þágufallsfasisti. (Sent með SMS)
ágúst 20, 2003
Írak í NYT
Á leiðarasíðum New York Times birtast hvorki meira né minna en sex greinar um Írak, árásina á höfuðstöðvar SÞ í Bagdad og vandamálin sem steðja að þar.Lesa áfram
Ormurinn langi
Ég hef ekki fengið mikið af "ormapósti" síðustu daga. Aftur á móti reyndi ég árangurslaust að senda nokkra e-maila milli níu og tólf í gærkvöldi. Það tókst ekki. Hafði kveikt á tölvunni í nótt og hún sendi automatískt í gegnum Margmiðlun þegar sú þjónusta varð aftur virk. Semsagt.net var aftur á móti enn óvirkt til póstsendinga þegar ég athugaði málið klukkan sjö í morgun. Þá breytti ég bréfunum sem ég var að reyna að senda með semsagt og sendi í gegnum Margmiðlun, sem gekk. Ég vona bara að þau hafi komist á leiðarenda þar sem þetta voru allt saman e-mailar sem ég hefði endilega viljað koma til skila.Allan þennan tíma gekk að fá póst, bara ekki hægt að senda. Í augnablikinu eru enn einhver vandræði með semsagt.net, get fengið, ekki sent, en Margmiðlun er í lagi.
Mér finnst þó merkilegt að ég hef fengið alveg óhemju lítið magn af ruslpósti í dag og í gær. Venjulega hlaupa þeir á nokkrum tugum per dag. Greinilegt að þjónustuaðilarnir eru með allar klær úti og reyna að stoppa sem mest (það allavega "meikar mestan sens" fyrir mér að sé skýringin).
Tónlist dagsins:
Nick Drake: Time of No Reply
Ekki tónlist dagsins af kapítalískum ástæðum:
Rolling Stones á tónleikum í Amsterdam
ágúst 19, 2003
When a subject becomes totally obsolete we make it a required course
Í ljósi þess að BS-hugmyndin mín stefnir í að verða BS-ritgerðin mín, þá vonast ég til að ná einhverjum lestri á einhverjum af þeim bókum í kvöld sem ég ætlaði að vera búinn að lesa u.þ.b. núna. Hef af ýmsum ástæðum ekki afrekað það ennþá og þar sem helgin mun fara að vanda í hestastúss og svefn þá ætlaði ég að klára eitthvað af þessu í vikunni.Orðin hér að ofan eru höfð eftir eftirlætis stjórnspekigúrúinu mínu Peter Drucker. Efni BS-ritgerðarinnar gæti vart verið fjarri hinum dæmigerðu skyldukúrsum :)
Rafmagnsleysið í N-Ameríku
Nú vill al-Qaida eigna sér rafmagnsleysið í N-Ameríku fyrir og um helgina. Sjá nánar á MEMRI-vefnum: Al-Qa'ida Claims Responsibility for Last Week's BlackoutCeline
Er það bara ég eða er Celine Dion ALLTAF í útvarpinu?! Einn örfárra tónlistarmanna sem ég skipti um stöð vegna.
Ég sakna BBC World Service. Ég hef að orðið slökkt á útvarpinu að mestu, nema til að heyra fréttir. *dæs* (Sent með SMS)
ágúst 17, 2003
D. 8202-8203
Í gær fór ég í partý til Veru og Haffa. Þar þekkti ég engan þegar ég kom - nema Veru. Var því munaðarlausi gesturinn í smá tíma ;)Þema partýsins var skegg! Mér hefur aldrei áður fundist ég öðruvísi vegna þess að ég var skegglaus.
Síðan komu Bjarni og Unnur bæði skegglaus. Bjarni plataði mig til að láta vinkonu Veru teikna skegg á mig. Hann fékk einskonar Zorro skegg en ég fékk mér semi-Salvador Dali skegg (eina skiptið sem ég hef verið svartskeggjaður).
Lesa áfram
Arnie
Athyglisverð grein um Arnold Schwarzenegger: Schwarzenegger’s Next Goal on Dogged, Ambitious Pathágúst 16, 2003
Rússland - 5 árum síðar
Í dag eru 5 ár síðan allt virtist vera á leið til andskotans, einsog James Arnold rifjar upp á BBC-vefnum: Russia in crisis: Five years onCould it happen again?Fyrir þá sem hafa fylgst eitthvað með Rússlandi síðustu ár virðist mun lengra síðan allt var á vonarvöl, þó svo að megin þorri fólks á vesturlöndum tengi Rússland við bandíta-hagkerfi og mafíustarfsemi. Rússland er ekki fullkomið í dag en þó allt annað en það var fyrir einungis fimm árum síðan. Vandamál eru þó vissulega enn til staðar - og nóg af þeim.
In some ways, the Russia of 2003 is a very different country.
In Vladimir Putin, it has a stable, nationalist, authoritarian president - the near-opposite of the hapless, erratic Boris Yeltsin.
The state budget is in tolerable shape, and the government bond market - turned into a high-yielding pyramid scheme during the fiscal scramble of mid-1998 - is now a sober affair.
Russian shoppers, who used to go wild for imported goods, even staples such as milk, are now happy to buy mainly Russian-made products.
The rouble quickly found its level, around 30 in the dollar, and has remained stable for years now.
Flokkun: Development , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál , Viðskipti
Idi Amin
Þá er Idi Amin loksins allur. Hann var búinn að liggja banaleguna í um mánuð.Idi Amin fæddist annaðhvort 1923 eða 1925 í Vestur-Nílar héraði í Úganda. Hann gekk til liðs við Kings African Rifles og hlaut þar skjótan frama. Hann barðist í Búrma í seinni heimstyrjöldinni og fyrir Breta í Kenía í Mau Mau uppreisninni á 6. áratugnum. Hann keppti einnig í hnefaleikum og sundi á yngri árum. Hann var kallaður til starfa sem yfirmaður í úganska hernum 1966 og var einn af æðstu mönnum land- og flughers landsins.
Idi Amin tók völdin í Úganda árið 1971 meðan forsetinn þáverandi, Milton Obote, var erlendis á fundi (skólabókardæmi um afrískt valdarán). Hann stjórnaði síðan landinu út 8. áratuginn með blóðugu harðræði. Hann afrekaði m.a. að reka alla af asískum uppruna úr landinu '72 sem leiddi af sér efnahagsrun í landinu (sjá mjög athyglisverða fréttaskýringu um afdrif þeirra). Hann gerði líka út á þjóðflokkaerjur í landinu og lét drepa 100-400 þús. manns í valdatíð sinni. Í minningargrein BBC um hann (sem ég mæli eindregið með) segir:
Amin is reported to have expressed admiration for Adolf Hitler and kept the severed heads of political opponents in his refrigerator.1976 átti sér stað frægt flugrán palestínskra og v-þýskra hryðjuverkamanna. Þeir létu flugvél Air France á leið til Ísraels lenda í Úganda. Ísraelski herinn gerði síðan skyndiárás á flugvöllinn og frelsaði flugvélina í einu ævintýralegustu björgun gísla í sögunni. Þegar hann hrökklaðist frá völdum 1979, eftir að Tansaníuher hafði náð höfuðborginni en hann hafði sjálfur ráðist inn í Tansaníu árið áður, settist hann að í Líbýu og síðar í Saúdi-Arabíu, þar sem hann bjó í góðu yfirlæti ásamt tveimur eiginkonum og 22 afkvæmum.
The depth of Amin's cruelty was matched only by the eccentricity of his behaviour.
He declared himself King of Scotland, banned hippies and mini-skirts, and appeared at a royal Saudi Arabian funeral in 1975 wearing a kilt.
He awarded himself the Victoria Cross, offered to visit Northern Ireland as a peace mediator, and said that he, not the Queen, should be head of the Commonwealth.
Mæli líka með pistli Brians Barron, fyrrv. fréttaritara í Afríku, um Amin: The Idi Amin I knew
ps. Ég vona að Stefáni Pálssyni þyki þessi stutti pistill viðunandi ;)
ágúst 15, 2003
BSc
Ég er ekki frá því að ég sé loksins kominn með hugmynd að bs-ritgerð sem er ekki of stór, of mikið verk, of crazy eða of domestic. M.ö.o. eitthvað sem ég get skrifað um og haft virkilegan áhuga á því.Fékk hugmyndina í bílnum á leiðinni heim úr vinnunni í gær. Svona er þetta.
Nú þarf ég aðeins að "díteila" hugmyndina betur og athuga svo hvað prófessorinn segir. Ég er ekki frá því að hann eigi eftir að fíla hugmyndina :)
Ég ætla ekki að gefa hana upp opinberlega strax, fólk verður bara að spyrja mig prívat.
Sumarið átti að fara í að finna ritgerðarefni og lesa heimildir. Það tókst ekki. Reyndar átti sumarið upphaflega að fara í að kynnast nýjum og spennandi heimum. Það gekk ekki eftir og stóð því til að nýta það nú aldeilis í BS-inn. Og nei nei, þá dynja þrír krankleikar á mér í röð einsog fyrir einstaka gamansemi guðanna. Svona getur þetta verið.
Annars er það að frétta að ég er raddlaus í annað skiptið í vikunni. Var einn að smala stóðinu áðan og öskraði úr mér röddina. Gerði slíkt hið sama á þriðjudaginn, nema hvað þá tók það þrisvar sinnum lengri tíma. Var kominn aftur úr "mútum" í dag og þá endurtek ég leikinn. Sniðugur. Fyndið samt að vera svona einsog maður sé í "mútum", verst að ég get ekkert rifist á meðan. Fólkið í kringum mig hlýtur að vera fegið :-)
Tónlist dagsins var í boði Nick Drake og Belle & Sebastian (Tigermilk).
Íraki í einn dag
Ef Bandaríkjamenn geta ekki haldið rafmagni á New York, Detroit og hálfum NA-hluta landsins, hvernig eiga þeir að geta stjórnað og haldið rafmagni á í Írak? (Sent með SMS)
ágúst 13, 2003
Írak og Friedman
Ég er ekki frá því að Thomas Friedman skrifi svartsýnasta pistil sinn um Írak síðan innrásinni lauk (og hersetan hófst) í NYT í dag: Power and PerilUnfortunately, the same Bush Pentagon that had the audacity to undertake this revolutionary project in Iraq did not prepare either itself or the U.S. public for such a vast undertaking. I worry that we're not going to have the time, money or people to finish this job right — for several reasons.Sjá: Power and Peril
First, there's a word I've heard here that I did not hear on two previous visits since the war: "humiliation." [...] Second, America's real enemies in Iraq are exacerbating the situation by cutting electricity lines, which the U.S. does not have enough troops to protect, so many Iraqis today have less electricity (read: air-conditioning) than they had a month ago. [...]
It would be a tragic irony if the greatest technological power in the history of the world came to the cradle of civilization with its revolutionary ideas and found itself defeated because it couldn't keep the electricity on.
ágúst 12, 2003
Moonunit Alpha, Moonunit Zappa
Ég er búinn að vera með Bobby Brown með Frank Zappa á heilanum í allan morgun. Kannski þess vegna sem afköstin hafa verið svona góð...
Oh God, oh God, I'm so fantastic.
Thanks to Freddie, I'm a sexual spastic.
And my name is Bobby Brown... (Sent með SMS)
ágúst 11, 2003
Jamaleddine og Khomeini, þeir komu hér í frí
Thomas Freidman skrifaði í gær um tvo af framsæknustu shíta-leiðtogunum í Írak: Dinner With the SayyidsArnie
Maureen Dowd, Brawny or Scrawny?Mr. Schwarzenegger already has what consultants struggle to superimpose on candidates: an aura of a strong protector who will get voters out of messes.Nokkuð til í því.
As one of his advisers says, "Whether it's really Arnold or his movie image, he's seen as a man of few words and lots of action. Other candidates spend $50 million on ads to get a sliver of that persona."
Amelie
Amelie breytir lífi fólks, líka í raunveruleikanum: Cinematography Meets Geography in Montmartre5 first-date blunders to avoid
Eitthvað fyrir okkur klaufana: 5 first-date blunders to avoidViðbót: Þegar ég fór að skoða linkana á þessari síðu, sem ég fann í gegnum MSN gluggann, rakst ég á þetta: 10 steps to greater sex appeal. Mér finnast svona greinar svo fyndnar. Einsog t.d.:
5. Go easyJamm.
Most women like to sniff the hint of a masculine aftershave. I'm sure you can all guess the keyword in that sentence. I think the trouble started when fragrance gained the capacity to be sprayed. Scads of cologne? Big mistake.
Önnur viðbót: Þetta test er skemmtilegt. Langt en skemmtilegt. Skv. niðurstöðum þessara hávísindalegu mælinga höfða 6% kvenna á aldrinum 18-30 ára til mín. Það var og.
Líbería
Ellen Johnson Sirleaf, fyrrv. fjármálaráðherra Líberíu og ein af þeim sem sitja friðarviðræðurnar í Accra um framtíð Líberíu, skrifar ansi bitra grein í NYT í dag um hvernig hún telur að Bandaríkin hefðu getað Líberíu á sínum tíma frá því að verða það sem landið er orðið í dag: What the U.S. Owes Liberiaágúst 10, 2003
And-semitismi í Egyptalandi
Fréttaritari BBC í Cairo reynir að skýra and-semitískar fréttir og skopmyndir í egypskum dagblöðum: Interpreting Egypt's anti-semitic cartoonsSegja má að niðurstaða fréttarinnar sé sú að andúðin beinist ekki gegn Gyðingum, heldur Ísraelsríki og Ariel Sharon.
Just a Sweet Transvestite With an Umbrella
Ég braut reglu í dag sem ég reyni yfirleitt að fylgja. Ég fór út í rigninguna. Ég er lítið fyrir rigningu. Sérstaklega þegar það rignir einsog helt sé úr fötu einsog í dag.Ástæðan var Gaypride og Ikea. Fór á skrúðgönguna niðri í bæ (að sanna víðsýni og frjálslyndi mitt) vopnaður regnhlífinni minni tryggu. Sá ekki mikið enda Laugavegurinn troðinn fólki með regnhlífar.
Lesa áfram
ágúst 08, 2003
Uzan fjölskyldan
'Endless Lies' Cost Turks $4.3 BillionGóð grein um Uzan fjölskylduna tyrknesku sem er ábyrg fyrir einhverjum rosalegustu viðskiptasvikum á seinni árum. Sviku milljarða dollara út úr Motorola og Nokia. Nú er búið að dæma í málinu í New York og - kemur ekki á óvart - fjölskyldan dæmt sek.
Uzan fjölskyldan er m.a. fræg fyrir það að Cem, annar krónprinsinn, er stofnandi "Ungflokksins" (e. Youth Party) í Tyrklandi.
3 góðar greinar
Það gleymdist alltaf hjá mér að benda á þessar greinar í NYT:Shaking Up the Neighbors, Thomas Friedman, 6. ágúst.
Everything Is Political, Paul Krugman, 5. ágúst.
Mel Gibson's Martyrdom Complex, 3. ágúst, sjá einnig hér: Ultra-kaþólikkinn Mel Gibson
Að lokum mæli ég með skemmtilegum pistli eftir Steve Martin síðan í dag.
ágúst 07, 2003
Í tækinu
Ekki úr vegi að gera einsog er svo vinsælt á bloggsíðum, birta svona "í tækinu" lista:The Beatles: Sexy Sadie (Hvíta albúmið)
The Beatles: Glass Onion (Hvíta albúmið)
The Beatles: With a Little Help From My Friends (Sgt. Pepper's)
The Beatles: Fool on the Hill (Magical Mystery Tour)
Pink Floyd: Dark Side of the Moon
Hlutir sem ég umber ekki
Ég er prinsipmaður. Sumt er nær algilt af prinsipástædum. Tvennt af því sem ég umber ekki í fari fólks eru óheiðarleiki og undirferli, að koma ekki hreint fram. Slíkt er óafsakanlegt og óþolandi. (Sent með SMS)
ágúst 06, 2003
FM 90.9
Nú ætla þeir að stofna enn eina útvarpsstöðina. Skonrokk á hún að heita, skv. heimasíðu Doktors Gunna.Og útsendingartíðnin? Nei, ekki 97.7 þar sem hin skrelfilega útvarpsstöð X-ið var (og ég held reyndar að sé komin aftur). Ekki 102.2, þar var einhver barnarás síðast þegar ég vissi, Útvarp Latibær eða eitthvað álíka. Nei, það fyrsta sem var tilkynnt - á undan nafninu - var að tíðnin yrði 90.9.
NEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!
Ég fór að geta hlustað á útvarp eftir langt hlé fyrir rúmum tveimur árum. Þá fóru Norðurljós að endurvarpa BBC World Service á gömlu Aðalstöðvar/Gull-tíðninni.
Þegar Norðurljós tóku yfir Fínan miðil var eitt af því sem Norðurljósa-spekingunum datt í hug að leggja niður X-ið og sameina það Radíó. Sú síðarnefnda hafði verið stofnuð X-inu til höfuðs. Nei, það var nóg að halda úti einni stöð fyrir þennan markhóp. Að sama skapi var Gullið lagt niður, enda ekki hægt að halda úti útvarpsstöð fyrir "örfáa leigubílsstjóra" einsog einhver yfirmaður hjá Norðurljósum orðaði það. Engu að síður höfðu Norðurljós séð ástæðu til að stofna svipað stöð og Gullið á 102.2, þannig greinilegt var að nægilega miklar auglýsingatekjur og hlustun fór til Gullsins til að stofna sér útvarpsstöð henni til höfuðs, en ekki nægilega miklar tekjur og hlustun til að reka hana eina og sér. Undarleg arðsemisgreining það, einsog svo margt annað hjá því ágæta fyrirtæki Norðurljósum.
Hvað um það, fyrri part ársins 2001, minnir mig, fóru þeir að útvarpa jazz tónlist á 97.7 og um svipað leyti fóru þeir að endurvarpa BBC á 90.9.
Og ég fann loksins eitthvað til að hlusta á.
Nú á aftur á móti að stofna sérstaka útvarpsstöð utan um Zombie þáttinn sem sá yfirbrunni "fyndni karl" Sigurjón Kjartansson og landsins frægasta tónlistargúrú, Doktor Gunni, stjórna. Gott og vel.
Það er aftur á móti algjör óþarfi að svipta hugsandi fólk einu leiðinni til að fá fréttir og fréttaskýringar, viðtöl og heimildaþætti í útvarpi, unna og skrifaða af fagfólki, sem bæði hefur þekkingu á efninu og - það sem ekki skiptir minna máli - afgang og tungu til að tala við rétta fólkið og fá sérfræðinga í viðtöl. Fréttaskýringar á Íslandi kallast það þegar Sigurður G. Tómasson - eða einhver álíka útvarpssveinn - ströggla við að þýða einhvern texta af fréttavef á netinu.
Ástandið í Líberíu? Já, reynum endilega að fá einhvern íslenskumælandi til að ræða það, good luck! Lífskjör fólks í Mið-Asíu lýðveldunum? Já, ekki málið að finna einhvern íslenskumælandi heimamann til að ræða við okkur!
Óteljandi fróðlegir þættir, sem ekki í villtustu draumum fréttafíkla væri hægt að bjóða upp á á Íslandi, Outlook, Everywoman, Analysis, From Our Own Correspondent, Go Digital o.s.frv. Ekki það að það er einstaka sinnum hundleiðinlegt að hlusta á rásina. Ég nenni t.d. ekki að hlusta á leikritin eða þegar það eru beinar lýsingar frá ensku knattspyrnunni, óþolandi.
Ég - og fleira hugsandi fólk - verð því sviptur öllu þessu þegar enn ein X-stöðin verður sett á tíðni BBC W-S. Engar fréttaskýringar, engir heimildaþættir, engar upplýsingar um umheiminn nema útdrættirnir sem íslenskir fréttamenn þýða ofan í okkur með misgóðum/lélegum árangri. Engin fróðleikur. Engin upplýsing. Ekkert. Bara enn ein útvarpsstöðin stofnuð utan um Sigurjón Kjartansson. Ég ætla að gerast svo djarfur að "Fyndnasti maður Íslands" verði bráðlega kominn með þátt á nýju stöðinni.
Flokkun: Daglegt líf , Fréttir , Menning , Viðskipti , Ísland
ágúst 05, 2003
Kaffi er gott fyrir kroppinn
Coffee 'boosts exercise stamina'Sko! Kaffi er kannski eftir allt saman allra meina bót, einsog Ragnheiður samstarfskona mín heldur alltaf fram.
Reyndar hef ég aldrei mótmælt koffeinneyslu, enda versti koffeinfíkill sem fær fráhvarfseinkenni fái ég ekki "skammtinn" minn fyrir hádegi. "Skammturinn" hefur þó minnkað til mikilla muna, drakk 2-3 glös (já, glös, "hagstæðara" í kaffiteríunni í HR) að meðaltali f.h. í vetur en fæ aðeins hálfan núna vegna magavesens. Ragnheiður aftur á móti hefur ráðlagt mér að drekka kaffi við magaveseninu og er sannarlega sú eina sem hefur gert það.
Þess má geta að expresso-kaffi er sú ristunaraðferð sem gefur kaffinu minnsta koffeinmagnið, þvert á það sem margir telja (hér eru fleiri skemmtilegir fróðlegsmolar).
Öfugir símar
Af hverju eru allir símar með "öfugu" lyklaborði? Ég er alltaf að hringja vitlaust í vinnunni, þegar ég hoppa af reiknivélarborðinu yfir á símann. Stimpla inn 1987 í stað 7321 o.s.frv.
Af hverju í ósköpunum er þetta ekki eins? Ég er orðinn þreyttur á öllum þessum skökku númerum! (Sent með SMS)
ágúst 04, 2003
Í dag er (næstum) sunnudagur
Í dag fór ég á hestbak. Það var prýðilegt. Veðrið var fallegt en skuggarnir og lyktin í náttúrunni minnti mann á að það er alveg að koma haust. Einhvern veginn finnst mér byrja að hausta strax upp úr verslunarmannahelginni. Ef út í það er farið eru ekki nema þrjár vikur þangað til að skólinn byrjar hjá mér. Mér finnst það skelfilegt. Ekki skelfilegt vegna þess að ég hlakki ekki til að skólinn byrji, heldur skelfilegt hvað þetta sumar hefur liðið hratt. Æji, kannski það sé bara sunnudagsblúsinn í manni, enda practically sunnudagur í dag.Ég fór í stuttan reiðtúr með litlu systur (sem er reyndar ekkert svo lítil). Hún fór sjálf núna, með engan aukataum, og er öll að koma til. Hún fékk líka fyrstu kennslustundina í að keyra bíl um helgina. Það gekk ágætlega.
Ég horfði á The Royal Tenenbaums um helgina. Hún var allt öðruvísi en ég bjóst við en ágætis afþreying. Bjóst samt eiginlega við meiru. Svona **1/2 mynd. Frumleg á köflum og skemmtilegar útfæringar á sumu en missir dampinn á tímabili. Góð tónlist.
Í sunnudagsblúsinum horfði ég á Amelie. Hiklaust ein af tíu eftirlætis myndunum mínum. Sá hana núna í þriðja skipti held ég. Hún nær engu að síður að snerta mig alveg niður í hjartarætur. Yndislegt handrit og Audrey Tautou er dásamleg í sínu hlutverki. Frábærar smásögur, sem ég fíla svo í kvikmyndum, litlar hliðarsögur, með manneskjulegum aukapersónum, skemmtilegir karakterar. Alveg yndisleg mynd!
ágúst 03, 2003
Metrosexual Bush
Maureen Dowd fjallar um hjónaband-er-á-milli-karls-og-konu-ræðu Bush Bandaríkjaforseta og stríðsyfirlýsingu páfans gegn hjónaböndum samkynhneigðra í pistli í dag: Butch, Butch Bush!Að vanda er kaldhæðnin ekki langt undan hjá Dowd og setur hún upp "Queer Eye" makeover fyrir Bush, Cheney og Rumsfeld (sá síðastnefndi kemur best út) með aðstoð "a gay political reporter friend". Skondin úttekt þar sem segir m.a.
Lesa áfram
Hingað til
Þessi helgi hefur fram að þessu farið fyrir lítið. Á föstudaginn var ég að drepast með höfuðverk og fór því snemma að sofa. Í gær fór ég og málaði þakið á kofanum okkar þar sem við erum með hestana á sumrin. Borðaði uppfrá og brenndi svo í bæinn og ætlaði mér að hitta fólk. Það varð ekkert úr því en þess í stað var ég bara slappur og þreyttur og sofnaði fyrir klukkan eitt. Svaf svo núna til hádegis og ætla að koma mér aftur uppeftir til að mála aðra umferð. Kvöldið er svo óráðið, þar sem ég virðist hafa gert plön byggð á eintómum misskilningi - alltaf jafn skemmtilegt þegar það gerist, eða hitt þó heldur.ágúst 02, 2003
USA-Íran III og IV
Þriðji og fjórði hlutinn af fjögurra hluta fréttaskýringu Rogers Hardy, sérfræðings BBC í málefnum Mið-Austurlanda, um samskipti Bandaríkjanna og Írans: Iran's sphere of influence og US options on Iranágúst 01, 2003
Höfuðverkur
Mér finnst það ekkert sniðugt að það virðist orðið ansi fastur liður hjá mér eftir vinnu á föstudögum að fá höfuðverk. Lofaði ömmu að slá fyrir hana en fékk svo þennan rosalega höfuðverk og þegar ég ætlaði að drösla mér til hennar kom skýfall, þannig slátturinn bíður til morguns (ef hann hangir þá þurr).Simpsons verða súrari með hverjum þættinum, sem mér finnst ágæt þróun, eftir að þættirnir voru í hálfgerðri lægð á tímabili. Reyndar var þátturinn ekki með þeim betri, en átti sín móment.
Höfuðverkurinn er á undanhaldi núna, en ég held að ég þurfi fyrst og fremst bara góðan svefn. Þannig ég segi góða nótt.