september 01, 2003
Lesefni með kaffinu
Soviet Shadows, Ukraine Ghosts - Nicholas Kristof ferðast um Úkraínu og lýsir örbyggðinni þar.Freedom's in 2nd Place? - annar pistill frá Kristof skrifaður í Úkraínu, þar sem hann ber saman Úkraínu og Kína.
Maureen Dowd hefur skrifað tvo pistla um Írak undanfarna viku: The Jihad All-Stars og Who's Losing Iraq? Líklegast einn kaldhæðnasti pistlahöfundurinn vestanhafs.
Thomas Friedman skrifaði líka tvo pistla um Írak undanfarna viku: Starting From Scratch og Policy Lobotomy Needed
Paul Krugman fjallaði líka um kostnaðinn við "uppbygginguna" í Írak á föstudaginn var: Fistfuls of Dollars
Í gærkvöldi sá ég á Discovery fyrsta þáttinn í þáttaröð (The Gulf War) sem gerð var 1996 um Persaflóastríðið. Í þessum fyrsta þætti var aðdragandinn rakinn, innrás Íraka inn í Kúveit og allt þar til að bandamenn héldu með her sinn inn í Írak og Kúveit.
Athyglisvert að hlusta á James Baker, Colin Powell og fleiri fjalla um aðdraganda stríðsins, svona í ljósi atburða síðastliðinna sex mánaða. Allir áréttuðu þeir þörfina á "coalition" um að fara út í hernaðinn.
Það var líka áhugavert að heyra um þátt Thatcher í þessari atburðarás fyrir 13 árum síðan.
Agust skrifaði 01.09.03 12:47
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd , Stjórnmál