september 01, 2003

Hótel Selfoss

Ég verð að segja að fréttir af gjaldþroti Hótel Selfoss gætu ekki komið mér minna á óvart.
Ég hef komið þarna einu sinni. Viska hélt árshátíð sína þarna síðasta vetur og ég skil ekki ennþá hvernig mönnum datt í hug að þetta dæmi gæti nokkurn tímann gengið upp!
Enn eitt dæmið um gjörsamlega óskiljanlega fjármálastjórn í fyrirtæki þar sem ábyrgð og eftirlit hjá stjórnendum virðist hafa verið mjög á reiki.
Agust skrifaði 01.09.03 19:01

Flokkun: Fréttir , Viðskipti
Comments

Reyndar var það ekki Hótel Selfoss sem varð gjaldþrota heldur Brú ehf félagið sem byggði hótelið. Það var síðan KÁ sem rak það og er núna í rekstrarstöðvun. KÁ rak 3 önnur hótel, bensínafgreiðslur og búrekstrardeild.

Auðunn skrifaði 20.01.04 20:02