september 01, 2003

Time Out of Mind

Ég mun seint þreytast á því að dásama Time Out of Mind með Bob Dylan.

Þetta er einfaldlega einhver þægilegasta plata til hlustunar sem gerð hefur verið. Hún kom út '97 en sjálfur hef ég ekki átt hana nema í rúm tvo ár. Það líður sjaldan vika, a.m.k. ekki tvær, að ég hlusti ekki á hana. Þetta er því án efa ein allra mest spilaða platan sem ég á. Það sem meira er að þetta er ein af örfáum plötum sem ég get hlustað á tvisvar, þrisvar sinnum í röð án þess að það verði leiðitamt.

Yndisleg. Ótrúlega falleg plata. Textarnir eru reyndar fullir af trega og hálfgerðu þunglyndi en rétt einsog hagfræðin væri ekki til án skortsins, þá væri tónlistin ekki til án tegans, ekki satt?

Time Out of Mind fékk Grammy verðlaunin 1998 sem besta plata ársins, besta Folk plata ársins og Bob Dylan fékk verðlaunin sem besti karl rokkarinn.
Agust skrifaði 01.09.03 22:47

Flokkun: Menning