september 03, 2003

Ekki er öll vitleysan eins

Tough lessons for campus pirates
Nú er margir háskólar í Bandaríkjunum farnir að prédika yfir nemendum sínum um ólögmæti "tónlistardeilingar" (sharing) í gegnum netið.
Einsog kemur fram í greininni er það ekkert grín að lenda í lögfræðingaherjum tónlistarútgefandanna.

Selling sterilisation to addicts
Þetta er nú engin frétt í sjálfu sér, því þessi samtök, Selling sterilisation to addicts, hafa verið starfrækt í nokkur ár. Þetta er semsagt samtökin alræmdu sem borga krakk-fíklum (nær eingöngu konum) fyrir að fara í ófrjósemisaðgerð. 200 dollara fyrir aðgerðina. Rökin fyrir þessum aðgerðum er að "bjarga" hugsanlegum börnum kvennanna frá því að fæðasta fíklar. Að vonum eru ekki allir á eitt sáttir um starfsemi (og hugmyndafræði) samtakanna. Ég verð samt að segja fyrir mitt leyti að ég veit um mörg siðlausari samtök en þetta, t.d. í Bandaríkjunum. Síðastliðin fimm ár hafa samtökin borgað rúmlega eitt þúsund fíklum fyrir að gangast undir sterilæseringu.

Í tækinu:
All the Best Irish Drinking Songs
Skemmtilegur hræódýr diskur sem ég keypti fyrir nokkrum árum. Tekinn upp á írskum pöb með tilheyrandi lófaklappi, glasahljóðum og á köflum ófullkominni hljóðgæðum. M.ö.o. mjög "heimilislegur" diskur, eða "kráarlegur" væri kannski betra orð.

Í glasinu: Guinness
Agust skrifaði 03.09.03 20:12

Flokkun: Fóstureyðingar , Internetið , Tækni&tól