september 03, 2003

Heilbrigðiskerfið í Kína

Í tíma í Alþjóðavæðingu í dag sagði Jón Ormur okkur frá því sem gerðist í Kína þegar SARS (HABL) braust þar út í vor.
Þannig er að heilbrigðiskerfið þar er gjörsamlega í rúst. Svo einfalt er það. Eina leiðin fyrir fólk til að fá einhverja þjónustu er að greiða fyrir hana himinhá gjöld. Þá er ekki verið að tala um einhver himinhá gjöld einsog margir Íslendingar kvarta undan að þurfa að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hér á landi (nokkra þúsundkalla), heldur gjöld sem að tekur meðaljóninn kínverska marga mánuði eða ár að vinna fyrir greiðslunni (þar sem auðvitað þarf viðkomandi að framfleyta fjölskyldunni áfram og það sem eftir er afgang hrekkur einfaldlega skammt fyrir slíkum aukakostnaði).

Nema hvað, þegar SARS braust út ákváðu kínversk heilbrigðisyfirvöld að allir með SARS fengju ókeypis heilbrigðisþjónustu og kvöttu þau alla sem töldu sig veika að fara í skoðun hjá lækni.
Sá galli var á gjöf Njarðar að fjölmargir, að þvi að talið er, þorðu einfaldlega ekki að fara til læknis, þrátt fyrir að þær kynnu að hafa SARS, því ef þeir væru aðeins með t.d. flensu yrði reikningurinn fyrir heimsóknina þeim ofviða. Þannig telja menn að SARS hafi orðið að miklu meira vandamáli í Kína en það hefði þurft að verða - ef fólk hefði þorað til læknis.
Agust skrifaði 03.09.03 23:19

Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál