september 04, 2003
"Not the law's business"
"On this day" á BBC-vefnum greinir frá því að þennan dag, 4. september, árið 1957 kom út svokölluð Wolfenden-skýrsla í Bretlandi. Þar voru birtast niðurstöður nefndar, sem Sir John Wolfenden stýrði, og hafði kannað hvort lyfta ætti banni við samkynhneigð í Bretlandi. Stjórnin komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að þetta væri "röng" niðurstaða og lögunum var ekki breytt fyrr en tíu árum síðar. Á þessum tíma var Harold Macmillan forsætisráðherra. Eftir honum var einu sinni haft:A strange, a perverted creed that has a queer attraction both for the most primitive and for the most sophisticated societies.Skotar bönnuðu kynvillu fram til 1980. Kaþólikkarnir á Írlandi breyttu lögunum þar ekki til batnaðar fyrr en fyrir sléttum 10 árum!
Síðasta haust beitti Duncan-Smith sér fyrir því að Íhaldsflokkurinn lagðist gegn lögum sem heimiluðu ættleiðingar samkynheigðra para. Fékk hann ákúrur fyrir (en að gagnrýna vesalinginn er nú samt einsog að sparka í liggjandi mann) og a.m.k. einn sagði af sér í skuggaráðuneyti hans. Breskir stjórnmálamenn hafa líka, líkt og vestur-evrópskir stjórnmálamenn, þroskast flestallir í afstöðu sinni síðustu 30 árin - ólíkt þeim bandarísku.
Þetta minnir mig á pistil sem ég skrifaði á Frelsi.is fyrir u.þ.b. ári síðan (Hinsegin frelsi), þar sem ég m.a. skoðaði útslit kosninga um breytingar á slíkum lögum í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna á s.l. árum. Sorgleg staða mjög víða.
Skemmst er svo að minnast hæstaréttardóms þar vestra fyrir nokkru (Hommar öðlast rétt til kynlífs), þar sem dómi fyrir "sódómubrot" tveggja Texas-búa var snúið þeim í hag.
Agust skrifaði 04.09.03 16:16
Flokkun: Jafnréttismál , Lög&réttur
Comments
Athyglisverð svona lög sem snúast um að segja fólki hvaða tilfinningar það má hafa og hvernig það má bregðast við þeim. Hugtakið "Ministry of Love" úr sögunni 1984 kemur upp í hugann í tengslum við þetta.
Már Örlygsson skrifaði 05.09.03 07:16Jamm... ég hef því miður ekki lesið 1984. Ég missti líka af myndinni þegar hún var sýnd í sjónvarpi (virkaði líka leiðinleg). Aftur á móti er 1984 á lista hjá mér yfir bækur sem ég beinlínis verð að lesa við tækifæri.
Ágúst skrifaði 06.09.03 00:27