september 06, 2003

Laugardagur

Fór á fyrirlesturinn með Singer í dag. Mjög áhugavert. Ætla að skrifa langloku um hann á morgun.
Ég sleppti að hlusta á svar Singers við síðustu spurningunni úr salnum og dreif mig yfir í Bóksöluna og keypti tvær bækur fyrir skólann (kostaði mig 11 þús. m/afslætti!!). Síðan fór ég og prufaði beyglu í Reykjavík Bagle Company á horni Barónsstígs og Laugarvegs.
Þar gekk ég beint í flasið á Jarlinum. Kemur þá í ljós að Tóti er einn af þeim sem rekur Kompaníið. Hann var hress að vanda. Við töluðum saman um hveiti.
Því miður voru heilhveitibeyglurnar í ofninum en þar sem ég gat ekki beðið eftir þeim fékk ég mér rúgbeyglu í staðinn, ristaða með rjómaosti með sólþurrkuðum tómötum. Þetta var gott á bragðið. Verðið alltílæ, 250 kr. Merkilega mikill matur í einni svona beyglu. Myndi alveg segja að þetta jafnaðist á við eina pylsu og rúmlega það. Munurinn er sá að rúgbeyglan er góð fyrir líkamann og heilhveitibeyglan betri.
Þar sem við stöndum og ræðum mismundandi vinnsluaðferðir hveitis koma Ása og (gamli :þ) karlinn hennar.
Kom svo heim og er búinn að vera aðallega að dúlla mér í tölvunni við ýmislegt (þó aðallega ekki verkefninu sem ég ætlaði að klára) og drekka uppleystar, sænskar sólhattstöflur.

Meðal þess sem ég er að pæla í núna er skóli sem mig langar að læra við næsta vetur. Þó ekki á masters-leveli. Eitt af vandamálunum við þennan skóla er að heimasíðan er frekar fátækleg, nema á heimatungumálinu, sem ég skil ekki orð í. Einu upplýsingar sem ég finn um deildina á ensku eru síðan '99. Lætur maður slíkt stoppa sig? Hell no! Annars skýrist þetta mál vonandi betur í vikunni, hvort mér standi þetta mögulega til boða yfirhöfuð.

Tónlist dagsins:
Beach Boys: Pet Sounds [ein besta plata sögunnar?]
Bob Dylan: Blood on the Tracks [ein af 5 bestu Dylan plötunum]
The Ultimate Bollywood Party Album [snilld]
Best of Bollywood [ekki eins góð]
Agust skrifaði 06.09.03 23:38

Flokkun: Daglegt líf