september 07, 2003

Nefertiti

Í kvöld kl. 19:00 verður sýndur þátturinn Nefertiti Revealed á Discovery Channel. Þessi þáttur hefur verið auglýstur grimmt á stöðinni og er ég því nokkuð spenntur að sjá hann.

Um daginn las ég hinsvegar grein í Al Ahram Weekly, Spinning Nefertiti, þar sem meintur fundur Dr. Joann Fletcher á múmíu Nefertitijar er bæði dreginn í efa og vinnubrögð hennar gagnrýnd. Fyrir utan að fara ekki að egypskum reglum um fornleifar er hæfni hennar dregin í efa en hún hefur hingað til sérhæft sig í fornum snyrtivörum og hári. Sjá einnig eldri grein í Al Ahram: Nefertiti always and forever.

Marianne Luban frá Kaliforníu skrifar líka lesendabréf í Al Ahram og segir Dr. Fletcher hafa stolið hugmyndinni að því að múmían sem um ræðir sé Nefertitijar. Luban hefur haft síðu á netinu um hugmyndir sínar síðan '99: Do We Have The Mummy of Nefertiti?

Svona svo það komi fram, þá er ekki um eiginlegan fund að ræða, því múmían sem er nú sögð Nefertitijar var fundin af Victor Loret fyrir 105 árum síðan. Menn hafa síðan deilt um hver hafi verið lagður, eða lögð, þarna til hinstu hvílu. Hingað til hefur hún verið köllum "The Younger Lady", eða einfaldlega "Nr. 61072". Fletcher heldur hinsvegar fram núna að hún sé búin að sýna fram á þetta sé Nefertiti sjálf.

Hvað sem því líður, þá bíð ég spenntur eftir að sjá þáttinn í kvöld, kl. sjö, á Discovery.

Nefertiti komst líka í fréttirnar fyrr í sumar, þegar hún öðlaðist um tíma brons boddí, við lítinn fögnuð sumra.
Agust skrifaði 07.09.03 14:22

Flokkun: Saga