september 07, 2003
Rent-A-Husband
Sá hjá Opruh áðan* kynnt til sögunnar þjónustu sem kölluð er Rent-A-Husband. Fyrir utan að flestir starfsmenn þjónustunnar virtust vera með sítt að aftan (rétt einsog stofnandinn) virkar þetta sem mjög sniðug þjónusta. Konur á aldrinum 20-60 ára eru víst 90% viðskiptavinanna en aldraðir nýta sér hana líka töluvert. Ég sé aftur á móti góða möguleika á "outsourcing" fyrir þreytta eiginmenn líka :-)Sniðug þjónusta en spurning hvort hún myndi ganga hérna. Þörfin fyrir þessa þjónustu næg samt.
* Ekki það að ég hafi verið að horfa á Opruh. Sjónvarpið var bara á... jájá, það trúa mér allir :-þ
Agust skrifaði 07.09.03 18:42
Flokkun: Viðskipti
Comments
Já, ég veit, þetta hljómar ekki sannfærandi :)
Aftur á móti getur maður ekki annað en dáðst að þessum þætti. Þetta er ótrúlegt phenomenon þessir þættir. Fyrir bissniss einsog þennan er þetta engin smá kynning.
Reyndar hef ég séð áhugaverða Opruh-þætti. Ekki það að ég hafi horft á þá marga, en ég hef stundum kveikt á sjónvarpinu á sunnudögum þegar hún er á og dottið inn í eitthvað áhorfanlegt. Yfirleitt slekkur maður þó aftur :)
Ágúst skrifaði 07.09.03 23:36Ekki oft sem maður getur vitnað í Bevis and Butthead "uuhuhu you watch Oprah! what a wuss" (ég kann ekki að skrifa vúss)
Geiri skrifaði 09.09.03 11:13