september 07, 2003

Googlemeister

Þarfasta internettólið er fimm ára í dag. Ég hef núna vart notað annað til að leita á netinu í rúm þrjú ár. Það gerist nánast ekki að maður finni ekki það sem maður leitar að (sé það á annað borð til). Reyndar er það ákveðin tækni að kunna að leita effektívskt með tóli einsog Google.
Internetið væri ekki eins ef ekki væri fyrir Google!
Þegar kemur að hugtakinu "to google" (útskýrt í fréttinni), er ég sekur einsog hver annar. Þegar mann vantar "background information" er Google það sem maður notar.
Google er líka einsog alfræðiorðabækur, maður byrjar á því að fletta einhverju upp og áður en maður veit er maður búinn að lesa allt um lög um aðskilnað kynþátta í Bandaríkjunum á fyrri helmingi aldarinnar, nú eða sögu Nepals eða gerð púrtvína. Maður getur mjög auðveldlega gleymt sér algjörlega.
Svo er Google nauðsynlegt tæki til að athuga hvað internetið segir um mann sjálfan. Samkvæmt mjög stuttri úttekt held ég úti heimasíðu, hef áhuga á Mið-Afríku lýðveldinu og Tyrkjum. Ég borða pönnukökur og plokkfisk. Ég er víst bitur út í Múrinn og er wannabe artífartí háskólanemi. Svo fann ég þetta. Hvað get ég sagt, ég fíla Maureen Dowd :-)
Agust skrifaði 07.09.03 23:09

Flokkun: Internetið