september 11, 2003

Liðkendur, Lonely Planet og ljósmyndadella

Dagbók síðustu daga:

Á mánudaginn var fyrsti tíminn sem ég var að kenna í stjórnuninni. Það gekk mjög vel. Reyndar verum við titluð "liðkendur" (facilitators) á blaðinu um dæmatímana sem nemendur fengu. Ég er að spá í að setja það í ferilsskránna, liðkandi :-)

Mánudagurinn var alveg hræðilega langur. Byrja reyndar ekki fyrr en kl. 10 en síðasta tíma líkur kl. sjö. Svo var ég að grúska á bókasafninu eftir það, þannig þetta var langur vinnudagur ef svo má segja.
Um kvöldið afrekaði ég að hlusta á Rocky Horror Picture Show diskinn fimm sinnum. Fór alltof seint að sofa.

Á þriðjudaginn mætti ég loksins í Aðgerðagreiningu. Kannski er þetta ekki svo hræðilegt fag eftir allt saman. Reyndar þykir mér biðraðafræði (ég er ekki að búa þetta til!) ekki spennandi en ég held að þetta verði ekki jafn hræðilega leiðinlegt og óttaðist í fyrstu.

Fór eftir tímana og fékk mér heilhveitibeyglu og tvöfaldan expresso í RBC. Það var ljúft. Fór svo í Mál og menningu í Austurstræti og settist þar að í á annan klukkutíma. Les næstum spjaldana á milli bók sem nefndist Karlmannahandbókin. Hún er dýr en sniðug. Farið yfir allt frá rakstri yfir í umhirðu húðarinnar og fleiri atriði sem alltof margir karlar flaska á. Það er staðreynd að full af mönnum kunna ekki að raka sig (rétt). Ýmsir góðir punktar í þessari bók, m.a. um hreinlæti. Ég er á köflum algjör hreinlætisfastisti þannig þetta hljómaði vel í mín eyru. Reglur um notkun rakspíra voru þarna líka, nokkuð sem sumir hefðu gott af því að lesa.
Ég fletti líka fjöldanum öllum af ferðalagabókum. Eftir það langar mig enn meira út.

Á leiðinni heim ákvað ég að koma við í Beco og athuga hvaða notuðu myndavélar þeir væru með núna í umboðssölu. Ég hef fylgst með listanum hjá þeim á netinu yfir notaðar vélar svona ca. síðasta hálfa árið.
Í ljós kom að þeir voru með EOS 500 vél til sölu á 18 þús með 35-70 linsu (yfirfarin og lítur út einsog ný). Ég var búinn að ákveða síðasta vor að ég væri tilbúinn að verja 20 þús. krónum í svona vél, ef ég fengi almennilega vél fyrir það. Það var því þarna komið að því að standa við stóru orðin. Einhverjar áhyggjur af budgetnum næstu mánuði gerðu það þó að verkum að ég þakkaði fyrir mig eftir að hafa skoðað vélina í bak og fyrir og kvaddi, sagðist þurfa aðeins að melta þetta.
Ég sneri svo við á miðri leið heim aftur og fór að keypti gripinn, ekki annað hægt.

Um kvöldið fór ég svo og tók myndir þangað til að það var orðið almyrkrað. Skuggarnir og roðinn í himninum mynduðu á mörgum stöðum skemmtileg sjónarhorn. Náði næstum að festa bílinn en með ótrúlegum hætti og heppni tókst mér að komast á veginn aftur. Fiat er ekki gerður fyrir torfærur en hann er seigur þegar á reynir :-)

Ég er virkilega virkilega ánægður með nýju myndavélina mína. Þetta er gamall draumur sem ég hef loksins látið rætast. Fyrir einum fjórum árum síðan gafst ég upp á ljósmyndadellunni þar sem almennileg myndavél er grundvallaratriði. Nú er aftur á móti bara að dusta rykið af stækkaranum og myrkraherberginu og fara að taka myndir. Gaman gaman!

Seinna um kvöldið horfði ég svo á þátt um hinn alræmda Raspútín. Þessi þáttur gerði mun meira úr (trúarlegu) kynsvalli hans en annað efni sem ég hef séð um hann. Sumt hafði ég ekki heyrt áður. Gaman t.d. að velta fyrir sér hvað hefði gerst ef Raspútín hefði verið í St. Pétursborg þegar fyrri heimstyrjöldin brast á, hvort hann hefði náð að breyta einhverju um að Rússar fóru í út hernað með hræðilegum árangri. Boney M komu ekkert við sögu í þessum þætti um Ra-ra-raspútín, merkilegt nokk.

Í gær fór ég á Bókhlöðuna eftir skóla. Var með lista með 6-8 bókum sem ég ætlaði að athuga hvort væru til. Að sjálfsögðu var ekki ein einasta til. Ég man síðast hvenær ég fékk bók á Bókhlöðunni sem ég leitaði að, þar var í lok ágúst 2001. Allar leitir síðan hafa verið vonbrigði. Ég fann reyndar tvær bækur sem ég ætla að kíkja á og ljósritaði áhugaverðan fyrirlestur á vegum SÞ um globalization. Þannig ferðin í Bókhlöðuna var ekki algörlega gagnslaus í þetta skiptið. B.t.w. lyktið í ljósritunarherberginu var virkilega vond.

Þar fyrir utan er ég búinn að lesa fullt undanfarna daga en ekkert af því það sem ég þyrfti að vera að lesa þessa dagana. Þar að auki er ég búinn að skoða 101 ferðir um heiminn. Ég kenni Einari um :-)
Agust skrifaði 11.09.03 21:59

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Ekkert að þakka :-)

Ég er kannski pínku skrítinn en mér finnst fátt skemmtilegra en að renna í gegnum Lonely Planet hlutann í bókabúðum. Oft finnur maður meira að segja staði, sem maður hefur aldrei heyrt um, sem manni langar til að heimsækja.

Ég var orðinn illa haldinn í sumar áður en ég fór til Rússlands. Ég þurfti nauðsynlega að komast á flakk. Þegar maður hefur prófað að ferðast svona sjálfstætt þá langar manni ekkert voðalega mikið í pakkaferð til Benidorm.

Einar Örn skrifaði 12.09.03 09:24

Tjah, ekki fyrsta skiptið sem þú festir þig svosem...

Tolli skrifaði 12.09.03 20:16