september 20, 2003
Idol
Idol þátturinn í gær kom skemmtilega á óvart. Jói og Simmi voru góðir og satt að segja mun fyndnari en maður bjóst við. Aftur á móti fannst mér tvennt vera too much. Hvernig þeir gerðu grín að Spánverjanum og svo fannst mér illa hvernig þeir sýndu litlu 16 ára stelpuna sem fór að gráta. Ekki gaman að vera þekktur þegar maður er 16 ára að byrja í framhaldsskóla sem "stelpan sem grenjaði í Idol". Ég reyndar spyr mig sjálfur hvort að ekki væri nær að hafa a.m.k. 18 ára aldurstakmark.En úff hvað maður gat hlegið að sumu þarna en ég vorkenndi bara Spánverjanum og "stelpunni sem grenjaði í Idol".
Þetta eru þannig þættir að það er NAUÐSYNLEGT að horfa á þá með öðrum. Ég mæli tvímælalaust með því að Idol-partý verði að trendi í vetur :)
Agust skrifaði 20.09.03 13:36
Flokkun: Menning
Idol var snilld! Hvað ætli setning "þetta var gott, en æfðu þig betur og komdu aftur eftir ár" komi oft fyrir í vetur? ;-)
Fyrir okkur kaldlynda fólkið var ekkert vont að horfa á sextán ára stelpuna eða Spánverjann gera sig að athlægi. Um það snýst þátturinn - að horfa á fólk gera sig að fífli af sjálfsdáðum! Það gerist varla betra...
Idol partý eru málið í bland við góðan skammt af óréttlátri gagnrýni.
SverrirJ skrifaði 20.09.03 14:43Það er heldur ekki að marka þig, þú ert svo mikil bitch :-þ
Ágúst skrifaði 20.09.03 17:24Ég algjörlega styð þá hugmynd að hafa Ædol partí ;)
Vera skrifaði 20.09.03 17:28Sumir gera líka í því að verða "þessi gaur úr Ædól" allavega fór félagi minn í þetta með því hugarfari og það tókst. Bíðið eftir Hemmi Gunn, "allir út á gólf" og dadda dey gaurnum.
Ég fór í Idol party, týndi jakkanum mínum og varð alltof fullur. Forræðishyggjan segir mér að banna Idol party. Breyttu aðeins eftir þeirri reglu sem þú vilt að verði almenn.
Vill Ágúst halda NágrannaLunchParty?
Svona kommentar maður ekki.
Geiri skrifaði 20.09.03 22:35ég held að flestir framhaldsskólanemar muni nú frekar líta á 16 ára stelpuna sem hetju, ekkert smá hugrökk og í raun fékk hún ekki "nei", heldur meira svona "Bíddu". Spánverjan ætla ég ekkert að tjá mig um, enda fullorðinn maðurinn og hefði mátt vita að hann var vita-laglaus.
majae skrifaði 21.09.03 09:49NágrannaLunchParty? WTF?
Ágúst skrifaði 21.09.03 12:30þú bíður í lunch yfir nágrönnum. þetta stefndi í gott djók í kollinum en eftir... aldrei að vita. Ég vísa þessu frá mér.