september 21, 2003
Everybody got something to hide except for me and my monkey
Ég fór í Hagkaup í gær og keypti í matinn. Eldaði svo lamb ofan í mig og systur mína á meðan ég horfði á Popppunkt. Auðvitað voru hrísgrjón í aðalhlutverki meðlætis, ég veit ekki hvað það er sem ég borða ekki með hrísgrjónum, svei mér þá.Í Hagkaupum keypti ég mér aftur á móti Ben&Jerry's ís á tilboði. Ég hef ekki tímt að kaupa mér Ben&Jerry's síðan dollan fór að kosta vikulaun verkamanna í þriðja heiminum. Í frystinum í Hagkaup, Garðabæ, var fátt um fína drætti og næstum ekkert eftir nema ís með "cookie dough". Ég er alfarið á móti kökum og kexi sem íblöndunarefni í ís. Súkkulaði, ávextir, ber - fínt. Karamella fyrir þá sem vilja (ekki minn tebolli), okey. Ég aftur á móti skil ekki hvers vegna fólk eyðileggur ísinn með þessu "cookie doughi".
Eini ísinn sem var laus við ógeðið var bananaísinn Chunky Monkey. Ég velti fyrir mér hvort ég ætti að þora. Ég er jarðarberjamaður og súkkulaðigrís og grillaðir bananar fylltir súkkulaði þykja mér góðir. Bananasplitt hef ég hingað til borðað en eini bananaísinn sem ég hef hingað til smakkað var alltof væminn fyrir minn smekk. En þessi var með súkkulaði líka, sem hljómaði vel, og valhnetum. Valhnetur minna mig alltaf á jólin. Jæja, ég hafði lofað sjálfum mér að veita mér þennan munað aldrei þessu vant, svo ég ákvað að prufa apaísinn.Þvílík snilld! Ég gúffaði í mig rjómaísnum þangað til ég gat ekki meira. Rjómi ofarlega á bannlistanum hjá mér en hverjum er ekki sama, þetta var svo gott! Úff, ég gat ekki meira. Eftir vænan skammt af hreinum lambavöðva, hálfan pott af hrísgrjónum og grænmeti og svo rjómaís í eftirrétt, ég gat ekki meira.
Alveg þangað til ég var kominn aftur fram í frysti og kláraði dolluna, mmmm...
1.200 kaloríur, 680 af þeim frá þessum 76 gr. af fitu sem leynast í dollunni, 104 gr. af sykri... úff, ég lá einsog klessa fyrir framan sjónvarpið það sem eftir lifði kvölds meðan maginn reyndi að vinna á þessum hálfa lítra af rjóma en vá! hvað þetta var gott!!
Fyrir þá sem ekki skilja þá er ís fyrir mér miklu meira en eftirréttur eða eitthvað sem maður fær sér í sumarsólinni. Fyrir mér er ís nautn - og ég er nautnaseggur :-)
Agust skrifaði 21.09.03 17:25
Flokkun: Matur og vín
Comments
SJÖTÍU OG SEX GRÖMM!! Vá, minnir mann á þetta.
Annars jafnast ekkert á við Dulce de Leche frá Haagen Daazs
Einar Örn skrifaði 21.09.03 20:44Aaah. Chunky Monkey. Mér þykir þú vera kominn á hálan ís ;) Once you go monkey, you'll never go funky.. i.e. þú verður algjörlega húkkt..
Sibba skrifaði 21.09.03 21:39Já, ég hef aldrei smakkað Häagen Dazs. Aftur á móti hef ég aldrei verið karamellu-fan. Meira "chocolate y fresa" týpan ;)
Ágúst skrifaði 21.09.03 22:25Hvað meinarðu með að Cookie Dough í ís sé ekki að dansa... það er snilld :0)
Nammigrísinn
Hanna María skrifaði 22.09.03 14:57