september 21, 2003

Klæðskiptingatónlistin mín

Á föstudaginn bað systir mín mig um að spila "klæðskiptingatónlistina mína" fyrir hana. Hún átti sumsé við Rocky Horror Picture Show. Að sjálfsögðu varð ég að ósk hennar og fyrir vikið hefur Rocky Horror diskurinn verið spilaður svo oft um helgina að ég hef enga tölu á því.
Það hefur sjálfsagt verið skondin sjón að sjá okkur taka Time Warp "dansinn" af mikilli innlifun.
Að vonum er ég ánægður og lít á þetta sem lítinn sigur í viðleitni minni við "menningarlegt uppeldi" systur minnar. Hún vissi ekki alveg hvað hún átti að halda þegar hún horfði á myndina með mér fyrir rúmum mánuði en einhverra hluta vegna bað hún um að heyra tónlistina aftur.
Og nú er hún nálægt því að ganga fram af mér í spilun á "klæðskiptingatónlistinni minni".
Ég gat ekki annað en hlegið að þessari "nafngift" hennar, reyndar ekki eina gullkornið sem hún hefur látið út úr sér undanfarið en það er önnur saga.

Í tækinu núna er aftur á móti Procol Harum: Greatest Hits.
Agust skrifaði 21.09.03 23:18

Flokkun: Daglegt líf , Menning
Comments

Áttu Sing-a-long diskinn með Rokkí Horror?
Hentar vel í samkvæmi...

Gísli skrifaði 22.09.03 16:13

Nei, því miður, en það stoppar mann ekki í því að syngja með ;)

Ágúst skrifaði 23.09.03 15:42