september 23, 2003

Cherry Garcia

Miklar væntingar. Ég hafði miklar væntingar til Ben & Jerry's jógúrtíssins Cherry Garcia. Ísinn sem var nefndur eftir sjálfu Jerry Garcia. Rjómaísinn með sama bragði er sá vinsælasti frá Ben & Jerry's. Jógúrtísinn er sá 8. söluhæsti. Miklar væntingar, miklar vonir.

Mikil vonbrigði. Miklar væntingar geta stundum af sér mikil vonbrigði og þannig var það í þetta skiptið.
Ég er ekki að segja að ísinn sé vondur. Svo ég vitni í fréttaritara BBC þegar hann smakkaði hið víðfræga Mecca Cola, "it's not bad, but it's not good either". Eini kosturinn við jógúrtina er að fitan er ekki nema 12 gr. (á móti 76 í Chunky Monkey) og kaloríurnar eru aðeins 680 í dollunni (vs. 1.200 í Chunky Monkey).

Fyrir 510 kr. (á afslætti, var 730) er þetta bara dýr ís. Algjört rip off! Held mig þá frekar við bragðaref með jarðarberjum, eða Chunky Monkey :)

Annars er ég feginn að amerískum dögum fer að ljúka í Hagkaupum, þá sér nískan (eða skynsemin öllu heldur) til þess að held mig frá rándýra Vermont-ísnum og held mig við Hveragerðis-ísinn góða.
Agust skrifaði 23.09.03 18:12

Flokkun: Matur og vín
Comments

I have seven words for you! Ben and Jerry´s chocolate chip cookie dough!!! The only way to fly!!!

Birgitta skrifaði 23.09.03 19:43

Or try Desmond Tutti Frutti...

Sibba skrifaði 23.09.03 20:17

Desmond Tutti Frutti - snilld!! Er það til??

Ágúst skrifaði 23.09.03 21:36

Neeeei, I'm sorry. Þetta er sniðugt nafn þó! Og ef Desmond Tutti Frutti væri til þá væri það súkkulaðiís með blönduðum ávöxtum.

Hvað með Sherbert Hoover þá?

Sibba skrifaði 24.09.03 12:02

Jamm. Ég held samt að Candy Warhol yrðu álíka vonbrigði og Cherry Garcia. Ég er ekki þessi nammi-ís týpa. Sama gilti þá um Mahatma Candy :)

Aftur á móti gæti Chuck Berries verið góður ís :) Ef ég fengi að ráða væru jarðaberjabitar og súkkulaðimulningur í honum.

Svo langar mig líka rosalega að smakka þennan.

Djö. langar mig í ís!

Ágúst skrifaði 24.09.03 16:49

Ef innflytjandinn fer að bjóða upp á betra úrval held ég að næsta skref verði að fá sér svona apparat ;)

Ágúst skrifaði 24.09.03 16:51

Ég hef ekki smakkað margar tegundir af Ben & Jerry's en uppáhaldið mitt er Pistachio Pistachio. Það vill líka svo skemmtilega til að sú tegund er ein af þeim fáu sem seldar eru hér á landi.

Talandi um spennandi bragðtegundir, hefur einhver smakkað Uncanny Cashew?

Stella Soffía skrifaði 24.09.03 18:06