september 24, 2003
Blóðug barátta
Mér finnst frábært framtak hjá Gulla og félögum í FSS að hvetja samstúdenta sína til blóðgjafar og um leið að benda á mismununina í reglum Blóðbankans sem bannar samkynhneigðum karlmönnum að gefa blóð. Þær reglur byggjast reyndar, að mér skilst, á alþjóðlegum samningum blóðbanka. Það er því hægara sagt en gert að breyta reglunum. Nema það sé bara léleg afsökun.Agust skrifaði 24.09.03 16:26
Flokkun: Jafnréttismál
Líklega er það góð afsökun. Hins vegar engu að síður full þörf á að hamra áfram á því að þetta sé heimskulegar reglur, því þá er kannski smá séns á að eitthvað þokist.
Svo er líka hitt að kannski þurfa samkynhneigðir bara að gefa skít í kerfið og "ljúga" á eyðublaðinu í Blóðbankanum. :-)
Már Örlygsson skrifaði 24.09.03 18:18Einn kunningi minn gerir það einmitt. Mér finnst hinsvegar alveg fáránlegt að hann þurfi að ljúga til þess að fá að gefa blóð.
Mergurinn málsins er sá að reglan er úrelt. Hún átti rétt á sér fyrir tæpum 20 árum síðan en í dag eru rökin að baki henni brostin.
Ágúst skrifaði 24.09.03 18:34Talandi um að gefa skít í kerfið, þá var ég einmitt að ræða þetta fyrir nokkru við Gulla. Ein hugmyndin sem ég benti honum á var einmitt að skrifa yfirlækni Blóðbankans bréf undirritað af nokkrum tugum homma, þar sem þeir óskuðu eftir því á grundvelli þess að vera lausir við allar sýkingar og uppfylla öll (önnur) skilyrði til blóðgjafar, að þeir fengju að gefa blóð. Hin hugmyndin, sem er bæði táknræn og öflugri, var að mæta í Blóðbankann með þriggja mánaða fresti og biðja um að fá að gefa blóð. Svara síðan öllum spurningunum samviskusamlega, líka þessari um hommakynlífið.
Mér finnst hinsvegar frábært hjá Gulla & Co. að gera þetta með þessum (uppbyggjandi) hætti, því þetta misrætti hefur ekki komist inn í umræðuna af neinu viti, þótt ótrúlegt sé. Ekki einu sinni þegar blóðgjafa skortir.
Ágúst skrifaði 24.09.03 18:41