september 24, 2003

Meint gagnsleysi náms míns

Ég talaði við lögfræðinema í dag. Sá sagði:
Hvort sem þú trúir því eða ekki, þá er nú þetta nám þitt ekki alveg gagnslaust. Það er margt hagnýtt í því - einsog t.d. bókhald.
Þetta fannst mér fyndið - komandi úr þessari átt. Litast líklegast af því að viðkomandi þurfti ráð um bókhald.
Ég benti reyndar viðkomandi á að þekking mín í bókhaldi væri lítið sem ekkert núverandi námi mínu að þakka (nema hvað ég kann tvennskonar afskriftaaðferðir til viðbótar þeirri íslensku). Aftur á móti verð ég að viðurkenna að bókhald er nú líklegast það hagnýtasta sem undirritaður kann og hefur lært um ævina. Það út af fyrir sig er næg ástæða til þess að ég myndi hvetja alla til að fara í Verzló; bókfærsla og vélritun. Hið síðara er víst kennt orðið í grunnskólum en það var ekki svo í minni tíð að talandi væri um.
Og já, ég vissi nú áður en lögfræðineminn benti mér á það, að námið mitt væri ekki alveg gagnslaust. Þá á ég ekki aðeins við bókhaldið en það er önnur saga.
Agust skrifaði 24.09.03 19:10

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Eftir mínum heimildum þá sagði laganeminn að námið hans Gústa væri ekki eins gagnlaust og Ágúst vildi sjálfur meina.

Ekki það að ég viti hver laganeminn sé.

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 24.09.03 20:41