september 30, 2003
Man, I had a dreadful flight, I'm back in the USSR
Mikið er gott að fá síðuna aftur í loftið!...svo ekki sé nú talað um að fá aftur tölvupóstinn sinn!!
Þetta er búið að vera ágætis dagur. Afrekaði ýmislegt sem staðið hefur til lengi. Ég keypti líka eina af tíu bestu plötum allra tíma - á þúsundkall!
Rauði krossinn fær líka kúdos fyrir að eiga hlutfallslega margfalt betra bókasafn (fyrir mínar pælingar) en Bókhlaðan.
ps.
Þeir sem sendu mér e-mail á semsagt-mailinn síðustu vikuna vinsamlegast sendið mér hann aftur. Síðasta bréfið sem ég fékk í gegnum semsagt.net var dagsett 24. sept.
september 24, 2003
Kaldhæðið Kastljós
Nú er verið að ræða lauslæti Íslendinga í Kastljósinu.Getum við aldrei losað okkur við þennan lauslætisstimpil?- spurði þáttastjórnandinn kynlífs-/hjúkrunarfræðinginn.
Kaldhæðið.
Meint gagnsleysi náms míns
Ég talaði við lögfræðinema í dag. Sá sagði:Hvort sem þú trúir því eða ekki, þá er nú þetta nám þitt ekki alveg gagnslaust. Það er margt hagnýtt í því - einsog t.d. bókhald.Þetta fannst mér fyndið - komandi úr þessari átt. Litast líklegast af því að viðkomandi þurfti ráð um bókhald.
Ég benti reyndar viðkomandi á að þekking mín í bókhaldi væri lítið sem ekkert núverandi námi mínu að þakka (nema hvað ég kann tvennskonar afskriftaaðferðir til viðbótar þeirri íslensku). Aftur á móti verð ég að viðurkenna að bókhald er nú líklegast það hagnýtasta sem undirritaður kann og hefur lært um ævina. Það út af fyrir sig er næg ástæða til þess að ég myndi hvetja alla til að fara í Verzló; bókfærsla og vélritun. Hið síðara er víst kennt orðið í grunnskólum en það var ekki svo í minni tíð að talandi væri um.
Og já, ég vissi nú áður en lögfræðineminn benti mér á það, að námið mitt væri ekki alveg gagnslaust. Þá á ég ekki aðeins við bókhaldið en það er önnur saga.
Hvumpinn
Thomas Friedman er mjög hvumpinn í grein sinni um "stríð" Bandaríkjamanna og Frakka: Our War With FranceBlóðug barátta
Mér finnst frábært framtak hjá Gulla og félögum í FSS að hvetja samstúdenta sína til blóðgjafar og um leið að benda á mismununina í reglum Blóðbankans sem bannar samkynhneigðum karlmönnum að gefa blóð. Þær reglur byggjast reyndar, að mér skilst, á alþjóðlegum samningum blóðbanka. Það er því hægara sagt en gert að breyta reglunum. Nema það sé bara léleg afsökun.september 23, 2003
Cherry Garcia
Miklar væntingar. Ég hafði miklar væntingar til Ben & Jerry's jógúrtíssins Cherry Garcia. Ísinn sem var nefndur eftir sjálfu Jerry Garcia. Rjómaísinn með sama bragði er sá vinsælasti frá Ben & Jerry's. Jógúrtísinn er sá 8. söluhæsti. Miklar væntingar, miklar vonir.Mikil vonbrigði. Miklar væntingar geta stundum af sér mikil vonbrigði og þannig var það í þetta skiptið.
Ég er ekki að segja að ísinn sé vondur. Svo ég vitni í fréttaritara BBC þegar hann smakkaði hið víðfræga Mecca Cola, "it's not bad, but it's not good either". Eini kosturinn við jógúrtina er að fitan er ekki nema 12 gr. (á móti 76 í Chunky Monkey) og kaloríurnar eru aðeins 680 í dollunni (vs. 1.200 í Chunky Monkey).
Fyrir 510 kr. (á afslætti, var 730) er þetta bara dýr ís. Algjört rip off! Held mig þá frekar við bragðaref með jarðarberjum, eða Chunky Monkey :)
Annars er ég feginn að amerískum dögum fer að ljúka í Hagkaupum, þá sér nískan (eða skynsemin öllu heldur) til þess að held mig frá rándýra Vermont-ísnum og held mig við Hveragerðis-ísinn góða.
september 21, 2003
Nokkrar greinar
Óhætt að mæla með surveyinu í Economist um "Íslam og vesturlönd". Því miður er hún aðeins opin áskrifendum á netinu.Fouad Ajami prófessor við John Hopkins University skrifar áhugaverða grein í nýjasta Foreign Policy: The Falseness of Anti-Americanism. Í sama tölublað skrifar V. Vaitheeswaran, sem er ritstjóri Economist í orkumálum, grein um olíuiðnaðinn og Írak. Hún er því miður ekki aðgengileg á netinu en þar segir hann nokkurn veginn að Saúdar muni ráða verði á olíu áfram og að "olíurökin" fyrir innrásinni í Írak hafi verið tómir draumórar. Sé ekki hvernig hægt er að mótmæla þessu.
Þraut Abdúllahs Jórdaníukonungs að halda friðinn við þegna sína um leið og hann heldur "sérstökum tengslum" við Bandaríkin er enn til umræðu: Tricky balance of US-Jordan alliance
Ef litið er austur á bóginn, þá virðast færri og færri ástæður til þess að vera bjartsýnn um ástandið í Nepal.
Koizumi vann í kosningum Frjálslynda flokksins í Japan. Þar sigraði hann miklar eyðsluklær og fyrirgreiðslupólitíkusa sem hefðu gert fjárhag ríkisins enn verri með týpískum fyrirgreiðslutrixum. Næstu kosningar í Japan verða í nóvember.
Klæðskiptingatónlistin mín
Á föstudaginn bað systir mín mig um að spila "klæðskiptingatónlistina mína" fyrir hana. Hún átti sumsé við Rocky Horror Picture Show. Að sjálfsögðu varð ég að ósk hennar og fyrir vikið hefur Rocky Horror diskurinn verið spilaður svo oft um helgina að ég hef enga tölu á því.Það hefur sjálfsagt verið skondin sjón að sjá okkur taka Time Warp "dansinn" af mikilli innlifun.
Að vonum er ég ánægður og lít á þetta sem lítinn sigur í viðleitni minni við "menningarlegt uppeldi" systur minnar. Hún vissi ekki alveg hvað hún átti að halda þegar hún horfði á myndina með mér fyrir rúmum mánuði en einhverra hluta vegna bað hún um að heyra tónlistina aftur.
Og nú er hún nálægt því að ganga fram af mér í spilun á "klæðskiptingatónlistinni minni".
Ég gat ekki annað en hlegið að þessari "nafngift" hennar, reyndar ekki eina gullkornið sem hún hefur látið út úr sér undanfarið en það er önnur saga.
Í tækinu núna er aftur á móti Procol Harum: Greatest Hits.
Everybody got something to hide except for me and my monkey
Ég fór í Hagkaup í gær og keypti í matinn. Eldaði svo lamb ofan í mig og systur mína á meðan ég horfði á Popppunkt. Auðvitað voru hrísgrjón í aðalhlutverki meðlætis, ég veit ekki hvað það er sem ég borða ekki með hrísgrjónum, svei mér þá.Í Hagkaupum keypti ég mér aftur á móti Ben&Jerry's ís á tilboði. Ég hef ekki tímt að kaupa mér Ben&Jerry's síðan dollan fór að kosta vikulaun verkamanna í þriðja heiminum. Í frystinum í Hagkaup, Garðabæ, var fátt um fína drætti og næstum ekkert eftir nema ís með "cookie dough". Ég er alfarið á móti kökum og kexi sem íblöndunarefni í ís. Súkkulaði, ávextir, ber - fínt. Karamella fyrir þá sem vilja (ekki minn tebolli), okey. Ég aftur á móti skil ekki hvers vegna fólk eyðileggur ísinn með þessu "cookie doughi".
Eini ísinn sem var laus við ógeðið var bananaísinn Chunky Monkey. Ég velti fyrir mér hvort ég ætti að þora. Ég er jarðarberjamaður og súkkulaðigrís og grillaðir bananar fylltir súkkulaði þykja mér góðir. Bananasplitt hef ég hingað til borðað en eini bananaísinn sem ég hef hingað til smakkað var alltof væminn fyrir minn smekk. En þessi var með súkkulaði líka, sem hljómaði vel, og valhnetum. Valhnetur minna mig alltaf á jólin. Jæja, ég hafði lofað sjálfum mér að veita mér þennan munað aldrei þessu vant, svo ég ákvað að prufa apaísinn.Þvílík snilld! Ég gúffaði í mig rjómaísnum þangað til ég gat ekki meira. Rjómi ofarlega á bannlistanum hjá mér en hverjum er ekki sama, þetta var svo gott! Úff, ég gat ekki meira. Eftir vænan skammt af hreinum lambavöðva, hálfan pott af hrísgrjónum og grænmeti og svo rjómaís í eftirrétt, ég gat ekki meira.
Alveg þangað til ég var kominn aftur fram í frysti og kláraði dolluna, mmmm...
1.200 kaloríur, 680 af þeim frá þessum 76 gr. af fitu sem leynast í dollunni, 104 gr. af sykri... úff, ég lá einsog klessa fyrir framan sjónvarpið það sem eftir lifði kvölds meðan maginn reyndi að vinna á þessum hálfa lítra af rjóma en vá! hvað þetta var gott!!
Fyrir þá sem ekki skilja þá er ís fyrir mér miklu meira en eftirréttur eða eitthvað sem maður fær sér í sumarsólinni. Fyrir mér er ís nautn - og ég er nautnaseggur :-)
september 20, 2003
Idol
Idol þátturinn í gær kom skemmtilega á óvart. Jói og Simmi voru góðir og satt að segja mun fyndnari en maður bjóst við. Aftur á móti fannst mér tvennt vera too much. Hvernig þeir gerðu grín að Spánverjanum og svo fannst mér illa hvernig þeir sýndu litlu 16 ára stelpuna sem fór að gráta. Ekki gaman að vera þekktur þegar maður er 16 ára að byrja í framhaldsskóla sem "stelpan sem grenjaði í Idol". Ég reyndar spyr mig sjálfur hvort að ekki væri nær að hafa a.m.k. 18 ára aldurstakmark.En úff hvað maður gat hlegið að sumu þarna en ég vorkenndi bara Spánverjanum og "stelpunni sem grenjaði í Idol".
Þetta eru þannig þættir að það er NAUÐSYNLEGT að horfa á þá með öðrum. Ég mæli tvímælalaust með því að Idol-partý verði að trendi í vetur :)
september 17, 2003
Lestrarhamstur
Ég er ótrúlega duglegur að sanka að mér (áhugaverðu) lesefni. Á morgun er ekki tími hjá mér fyrr en fjögur. Fimmtudagar eru því skilgreindir sem "lesdagar" hjá mér. Það væri afskaplega gott ef ég kæmist yfir eitthvað af þessum fjöllum af útprentunum, tímaritum, bókum, skýrslum etc. sem ég ýmist þarf eða þarf að komast í gegnum. Þá á ég altso eftir nokkur hundruð blaðsíður af skólabókum.Ég er duglegur að hamstra lesefni en lélegur að lesa það í sama magni. Ég er t.a.m. með möppu þar sem ég geymi áhugaverðar skýrslur og greinar sem ég finn á netinu á pdf-formi. Þetta eru yfirleitt 30-100 bls. skýrslur. Ég tók mig síðast til og las eitthvað af þeim fyrir einu og hálfu ári síðan, þannig fjöldinn er orðinn ógnvænlegur sem er í möppunni.
Það væri bót í máli að ég færi bara að lesa í stað þess að tala um það. Ég get verið mjög duglegur að lesa en það krefst þess venjulega að ég beiti mig töluverðum aga og lesi þá helst nokkra titla í röð um svipað efni.
Morgundagurinn verður aftur á móti (vonandi) nýttur í lestur. Samkvæmt nýrri reglu hjá mér um að láta BS-lestur ganga fyrir ætla ég að kíkja í bækur sem ég er með um það efni. Aftur á móti væri það hrein óskhyggja að ætlast til þess að ég geti sleppt því að lesa surveyið í nýjasta Economist um íslam og vesturlönd (nokkrar MJÖG spennandi greinar þar) og að auki eru a.m.k. tvær greinar í nýjasta Foreign Policy sem ég get ekki beðið eftir að lesa.
Nú ætla ég hinsvegar fljótlega að sofa, nýta nóttina fyrir svefn til tilbreytingar. Vonandi móttekur gamli lappinn (árg. 1999) enduruppsetninguna á xp-num. Meira hvað það að spara sér 2-3 þús. krónur við kaup á þráðlausu netkorti getur verið afdrifaríkt. Mæli ekki með því.
Í tækinu:
Jefferson Airplane: Surrealistic Pillow
The electrical dust is starting to rust
Her trapezoid thermometer taste
All the red tape is mechanical rape
Of the TV program waste
Data control and IBM
Science is mankind's brother
But all I see is dranin' me
On my plastic fantastic lover
Of
Of langur dagur. Of mikið að gera. Of þreyttur. Svefn.Tónlist í lok dagsins:
Woodstock Two (upptökur frá upprunalegu hátíðinni, diskur tvö)
Had to get away to see what we could find.
Hope the days that lie ahead
bring us back to where they've led
listen not to what's been said to you.
september 15, 2003
Jeffrey Sachs
Vel er mætt á ráðstefnu Þróunarsamvinnustofnunar i hátíðarsal HÍ. Ég er sáttur við hve vel er mætt. (Sent með SMS)
september 13, 2003
Sarcastic Life of Us
Það er meira hvað þetta er kaldhæðið allt saman. Eiginlega hætt að vera fyndið!Kannski eina ráðið að líta sömu augum á þetta og Oscar Wilde, þegar hann sagði: Life is never fair, and perhaps it is a good thing for most of us that it is not.
september 11, 2003
Miles í rigningunni
Það á ekkert betur við þegar maður akur um í rigningunni en að hlusta á Miles Davis.Tónlistin gerir það aftur á móti að verkum að manni finnst eiginlega að maður eigi í fyrsta lagi að aka um á stórum amerískum bíl og að það eigi eitthvað rosalegt að gerast líka. Svona bíómyndafílingur í gangi.
Svo er líka tónlist Miles Davis bara svo frábær. Hún á hinsvegar aldrei betur við en í rigningunni. Mér finnst t.d. hann ekki passa í glampandi sólskini.
Chick-lit, Coupling og uniballs
Chick-lit eru nú heitustu bókmenntirnar í Indónesíu. Ekki þýddar sögur, heldur innlendar. Sjá: Chick-lit becomes hip lit in IndonesiaÞessu dulítið tengt (en þó ekki), New York Times fjallaði um amerísku útgáfuna af Coupling nýverið: Selling Your Sex Life
Lesa áfram
september 09, 2003
Þrífótur á fjalli
Nú er ég staddur uppi á fjalli að taka myndir af sólarlaginu. Mér er kalt á puttunum. (Sent með SMS)
september 08, 2003
Hrokafulli leikmaðurinn
Ég var að koma úr viðskiptasiðferðitíma rétt í þessu. Mér til mikilla vonbrigða missti ég af yfirferð yfir J. S. Mill og nytjahyggjuna, því hún var í síðustu viku en þess í stað fékk ég Kant gamla í dag. Einhvern veginn fannst mér kennarinn skjóta niður skoðanir mínar á Kant. Treysti mér ekki til að bakka upp skoðun mína, að ekki sé hægt að skoða Kant án þess að líta til (elementa) kristninnar í leiðinni. Orðið ár síðan ég hraðlas þessa einu (en líklegast hans merkilegustu) bókina sem ég hef lesið eftir Kant og torfið undir lokin ekki alveg í fersku minni, þar sem hann sleppir sér í guðdómleikanum.Mér tókst líka að vera ásakaður fyrir hroka fyrir að segjast sjá galla í rökræðu eins frægasta heimspekings nútímans. Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar að rökin sem Singer færði í fyrirlestri sínum á laugardaginn bakka ekki upp skoðun hans. M.ö.o. að hann færi rök fyrir skoðun sinni skoðunarinnar vegna en hafi ekki skoðun rakanna vegna. Hoppaði semsagt aðeins yfir vægamikil atriði til að fá rétta niðurstöðu. Ég ætlaði að fjalla betur um fyrirlesturinn en ástæðan fyrir þessum hroka mínum (ég get ekki neitað því að þetta er hroki í mér, sem algjörum leikmanni, gegn einum virtasta fræðimanninum á þessu sviði) er sú að hann talar t.d. gegn hvalveiðum á þeirri forsendu að við eigum ekki að drepa þá ef kæmi í ljós að þeir væru skynsemisverur. M.ö.o. ef við skoðunum félagssamskipti hvala etc. og kæmumst að því að þeir væru mjög háþróaðar verur, líkt og t.d. simpansar og górillur, þá væri það rangt að meiða þá og drepa. Reyndar eru betri rök (sem hann notar einnig) að þetta sé nýtilkomin skepna inn í fæðu okkar og þar sem við þurfum ekki að drepa hvali til að komast af þá eigum við ekki að gera það. Þessi síðarnefndu rök eru einmitt þau sem ég sé einna sterkust gagn hvalveiðum, en það er annað mál.
Breytir því ekki að á meðan Singer talaði um kenningar sínar þá voru þær mjög áhugaverðar og "gengu upp". Þegar hann hinsvegar fór að færa þær yfir á hvali og Kárahnjúka fannst mér honum fatast flugið og skoðunin virtist rökunum yfirskerkari. Því miður, því ég satt að segja dáist að Singer fyrir hans controversial kenningar. Þær tilheyra nytjahyggjunni (hann svaraði m.a. einni spurningu úr salnum með orðunum "I'm a utilitarian, so...") og mér fannst hann teygja hana ansi langt til að fá sínar skoðanir rökstuddar á köflum.
september 07, 2003
Googlemeister
Þarfasta internettólið er fimm ára í dag. Ég hef núna vart notað annað til að leita á netinu í rúm þrjú ár. Það gerist nánast ekki að maður finni ekki það sem maður leitar að (sé það á annað borð til). Reyndar er það ákveðin tækni að kunna að leita effektívskt með tóli einsog Google.Internetið væri ekki eins ef ekki væri fyrir Google!
Þegar kemur að hugtakinu "to google" (útskýrt í fréttinni), er ég sekur einsog hver annar. Þegar mann vantar "background information" er Google það sem maður notar.
Google er líka einsog alfræðiorðabækur, maður byrjar á því að fletta einhverju upp og áður en maður veit er maður búinn að lesa allt um lög um aðskilnað kynþátta í Bandaríkjunum á fyrri helmingi aldarinnar, nú eða sögu Nepals eða gerð púrtvína. Maður getur mjög auðveldlega gleymt sér algjörlega.
Svo er Google nauðsynlegt tæki til að athuga hvað internetið segir um mann sjálfan. Samkvæmt mjög stuttri úttekt held ég úti heimasíðu, hef áhuga á Mið-Afríku lýðveldinu og Tyrkjum. Ég borða pönnukökur og plokkfisk. Ég er víst bitur út í Múrinn og er wannabe artífartí háskólanemi. Svo fann ég þetta. Hvað get ég sagt, ég fíla Maureen Dowd :-)
Rent-A-Husband
Sá hjá Opruh áðan* kynnt til sögunnar þjónustu sem kölluð er Rent-A-Husband. Fyrir utan að flestir starfsmenn þjónustunnar virtust vera með sítt að aftan (rétt einsog stofnandinn) virkar þetta sem mjög sniðug þjónusta. Konur á aldrinum 20-60 ára eru víst 90% viðskiptavinanna en aldraðir nýta sér hana líka töluvert. Ég sé aftur á móti góða möguleika á "outsourcing" fyrir þreytta eiginmenn líka :-)Sniðug þjónusta en spurning hvort hún myndi ganga hérna. Þörfin fyrir þessa þjónustu næg samt.
* Ekki það að ég hafi verið að horfa á Opruh. Sjónvarpið var bara á... jájá, það trúa mér allir :-þ
Nefertiti
Í kvöld kl. 19:00 verður sýndur þátturinn Nefertiti Revealed á Discovery Channel. Þessi þáttur hefur verið auglýstur grimmt á stöðinni og er ég því nokkuð spenntur að sjá hann.
Um daginn las ég hinsvegar grein í Al Ahram Weekly, Spinning Nefertiti, þar sem meintur fundur Dr. Joann Fletcher á múmíu Nefertitijar er bæði dreginn í efa og vinnubrögð hennar gagnrýnd. Fyrir utan að fara ekki að egypskum reglum um fornleifar er hæfni hennar dregin í efa en hún hefur hingað til sérhæft sig í fornum snyrtivörum og hári. Sjá einnig eldri grein í Al Ahram: Nefertiti always and forever.Marianne Luban frá Kaliforníu skrifar líka lesendabréf í Al Ahram og segir Dr. Fletcher hafa stolið hugmyndinni að því að múmían sem um ræðir sé Nefertitijar. Luban hefur haft síðu á netinu um hugmyndir sínar síðan '99: Do We Have The Mummy of Nefertiti?
Svona svo það komi fram, þá er ekki um eiginlegan fund að ræða, því múmían sem er nú sögð Nefertitijar var fundin af Victor Loret fyrir 105 árum síðan. Menn hafa síðan deilt um hver hafi verið lagður, eða lögð, þarna til hinstu hvílu. Hingað til hefur hún verið köllum "The Younger Lady", eða einfaldlega "Nr. 61072". Fletcher heldur hinsvegar fram núna að hún sé búin að sýna fram á þetta sé Nefertiti sjálf.
Hvað sem því líður, þá bíð ég spenntur eftir að sjá þáttinn í kvöld, kl. sjö, á Discovery.
Nefertiti komst líka í fréttirnar fyrr í sumar, þegar hún öðlaðist um tíma brons boddí, við lítinn fögnuð sumra.
september 06, 2003
Laugardagur
Fór á fyrirlesturinn með Singer í dag. Mjög áhugavert. Ætla að skrifa langloku um hann á morgun.Ég sleppti að hlusta á svar Singers við síðustu spurningunni úr salnum og dreif mig yfir í Bóksöluna og keypti tvær bækur fyrir skólann (kostaði mig 11 þús. m/afslætti!!). Síðan fór ég og prufaði beyglu í Reykjavík Bagle Company á horni Barónsstígs og Laugarvegs.
Þar gekk ég beint í flasið á Jarlinum. Kemur þá í ljós að Tóti er einn af þeim sem rekur Kompaníið. Hann var hress að vanda. Við töluðum saman um hveiti.
Því miður voru heilhveitibeyglurnar í ofninum en þar sem ég gat ekki beðið eftir þeim fékk ég mér rúgbeyglu í staðinn, ristaða með rjómaosti með sólþurrkuðum tómötum. Þetta var gott á bragðið. Verðið alltílæ, 250 kr. Merkilega mikill matur í einni svona beyglu. Myndi alveg segja að þetta jafnaðist á við eina pylsu og rúmlega það. Munurinn er sá að rúgbeyglan er góð fyrir líkamann og heilhveitibeyglan betri.
Þar sem við stöndum og ræðum mismundandi vinnsluaðferðir hveitis koma Ása og (gamli :þ) karlinn hennar.
Kom svo heim og er búinn að vera aðallega að dúlla mér í tölvunni við ýmislegt (þó aðallega ekki verkefninu sem ég ætlaði að klára) og drekka uppleystar, sænskar sólhattstöflur.
Meðal þess sem ég er að pæla í núna er skóli sem mig langar að læra við næsta vetur. Þó ekki á masters-leveli. Eitt af vandamálunum við þennan skóla er að heimasíðan er frekar fátækleg, nema á heimatungumálinu, sem ég skil ekki orð í. Einu upplýsingar sem ég finn um deildina á ensku eru síðan '99. Lætur maður slíkt stoppa sig? Hell no! Annars skýrist þetta mál vonandi betur í vikunni, hvort mér standi þetta mögulega til boða yfirhöfuð.
Tónlist dagsins:
Beach Boys: Pet Sounds [ein besta plata sögunnar?]
Bob Dylan: Blood on the Tracks [ein af 5 bestu Dylan plötunum]
The Ultimate Bollywood Party Album [snilld]
Best of Bollywood [ekki eins góð]
Singer
Fullt er út úr dyrum á fyrirlestur Singers. Ég velti fyrir mér hvort það væri það ef yfirskriftin væri ekki náttúruvernd heldur þær kenningar Singers sem mér finnast persónulega meira spennandi. (Sent með SMS)
september 05, 2003
John og yuan
Einu sinni voru vondir Japanir að setja Bandaríkin á hausinn. Nú eru það Kínverjar. Enda var Jón Snjór, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, sendur til Beijing til að ræða við menn þar.Lesa áfram
aljazeera.net á ensku
Al Jazeera hefur opnað aftur ensku útgáfuna af fréttasíðu sinni. Þetta hlýtur að vera tiltölulega nýskeð því að ég hef fylgst með því eftir að henni var lokað í vor hvenær hún opnaði aftur og fyrir nokkrum dögum var hún enn "í vinnslu". En enduropnuninni getur maður ekki annað en fagnað.Síðan er mun veglegri en hún var og er m.a. núna hreyfi-skopmyndir. Mér finnast þessar þrjár ansi góðar: [1 | 2 | 3] Svo lýsir þessi eiginlega Kashmír-krísunni í hnotskurn.
Birting dóma
Nú sit ég í fyrsta skipti í lögfræðitíma. Viðskiptalögfræðitíma öllu heldur. Helgi Jóhannesson er hæfilega léttur fyrirlesari. Ekkert sem maður sofnar yfir a.m.k. - ennþá.Upp kom umræða áðan um birtingu dóma (sérstaklega á netinu). Þetta er einmitt atriði sem ég hef aldrei skilið: Hvernig það er ekki brot á persónufrelsinu að birta nöfn fólks í málum sem varða persónuleg atriði? Tala nú ekki um ef að dómurinn fellur síðan fólki í vil. Hvort sem þarna er um að ræða lýsingar á einkalífi fólks, útlistingar á slysum, læknismeðferðum (t.d. læknamistökum), viðkvæmar fjárhagslegar upplýsingar o.s.frv.
Rökin fyrir því að birta dóma eru fyrst og fremst (einsog ég skil þau a.m.k.) að hafa "opið réttarhald". M.ö.o. vernd borgaranna fyrir dómsvaldinu/yfirvöldum. Að ekki sé hægt að rétta yfir mönnum með óeðlilegum hætti t.d. - einsog þekkist í löndum þar sem dómsvaldið er spillt.
Með því að birta þessar upplýsingar getur þessi "vernd" borgaranna snúist upp í andstæðu sína. Þetta getur beinlínis valdið fólki vandræðum.
Á Íslandi getur verið erfitt að nota nafnleynd ("X sem starfar sem símstöðvarstjóri á Siglufirði" er dæmi sem ég hef heyrt nokkrum sinnum í þessari umræðu og hlýtur því að vera eitthvað sem hefur gerst). Það er samt sem áður mun betra og mikilvægt að reyna að vernda persónuna sem best. Það þarf ekki að koma niður á opinleika réttarhaldsins.
Nú skal ég fúslega viðurkenna að ég hef vart þekkingu leikmanns á lögfræði. Í prinsipinu finnst mér þetta samt orka mikils tvímælis. Rökin með verndun persónufrelsins vega einfaldlega þyngra en það að birta þurfi alltaf allar upplýsingar sem birtar eru í dag. Það á þó ekki að vera nein leynd yfir því þegar fólk er dæmt. Það þarf hinsvegar að gæta þess að viðkvæmar persónuupplýsingar séu ekki opnar fyrir hvern sem er að lesa.
Á sama tíma er t.d. litið á bifreiðaskrá sem upplýsingar sem erfitt er að hafa aðgang að og í raun hefur enginn aðgang að henni nema þeir sem hafa eitthvað með hann að gera. Þessi opinleiki dóma virðist einna helst nýtast lögfræðinemum - og hnýsnu fólki, því lítið mál ætti að vera að veita öllum lögfræðingum (sem þurfa oft á upplýsingunum að halda) aðgang að þessum grunni.
Það væri a.m.k. bót í máli ef að aðeins þeir sem þurfa aðgang að þessum upplýsingum hefðu hann en annars þyrfti að sækja um sjá viðkomandi mál sérstaklega. Þannig væri opinleiki réttarhalda tryggður en persónufrelsi verndaðara - að því gefnu auðvitað að betur væri gætt að því að X og Y væri til umræðu í málum en ekki Jón og Gunna.
Ef Þórir hefur ekkert um þetta að segja, verð ég mjög vonsvikinn :-)
september 04, 2003
"Not the law's business"
"On this day" á BBC-vefnum greinir frá því að þennan dag, 4. september, árið 1957 kom út svokölluð Wolfenden-skýrsla í Bretlandi. Þar voru birtast niðurstöður nefndar, sem Sir John Wolfenden stýrði, og hafði kannað hvort lyfta ætti banni við samkynhneigð í Bretlandi. Stjórnin komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að þetta væri "röng" niðurstaða og lögunum var ekki breytt fyrr en tíu árum síðar. Á þessum tíma var Harold Macmillan forsætisráðherra. Eftir honum var einu sinni haft:A strange, a perverted creed that has a queer attraction both for the most primitive and for the most sophisticated societies.Skotar bönnuðu kynvillu fram til 1980. Kaþólikkarnir á Írlandi breyttu lögunum þar ekki til batnaðar fyrr en fyrir sléttum 10 árum!
Síðasta haust beitti Duncan-Smith sér fyrir því að Íhaldsflokkurinn lagðist gegn lögum sem heimiluðu ættleiðingar samkynheigðra para. Fékk hann ákúrur fyrir (en að gagnrýna vesalinginn er nú samt einsog að sparka í liggjandi mann) og a.m.k. einn sagði af sér í skuggaráðuneyti hans. Breskir stjórnmálamenn hafa líka, líkt og vestur-evrópskir stjórnmálamenn, þroskast flestallir í afstöðu sinni síðustu 30 árin - ólíkt þeim bandarísku.
Þetta minnir mig á pistil sem ég skrifaði á Frelsi.is fyrir u.þ.b. ári síðan (Hinsegin frelsi), þar sem ég m.a. skoðaði útslit kosninga um breytingar á slíkum lögum í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna á s.l. árum. Sorgleg staða mjög víða.
Skemmst er svo að minnast hæstaréttardóms þar vestra fyrir nokkru (Hommar öðlast rétt til kynlífs), þar sem dómi fyrir "sódómubrot" tveggja Texas-búa var snúið þeim í hag.
To chase the glowing hours with flying feet
Svo virðist sem að hafi verið að finna hvað mig langar til að gera haustið 2004. Verð að segja að svarið kom úr ólíklegustu átt.Þetta er samt allt saman mjög óljóst, enda eitthvað sem mér hafði ekki dottið í hug fyrr en í kvöld - ég þarf að athuga með nokkur atriði helst strax á morgun. Svona einsog t.d. hvort dæmið gengur yfirhöfuð upp. Þórir er samt búinn að segja að þetta gangi upp - og Þórir hefur alltaf rétt fyrir sér ;-)
Ég er mjööög spenntur :-)
september 03, 2003
NYT dagsins
Sem mesti ívísari í NYT norðan Alpafjalla verð ég að fá að visa á nokkrar greinar í blaði dagsins:Í leiðara dagsins er fjallað um nokkuð sem eflaust mun gerast í komandi kosningum í USA, frambjóðendur munu kenna Kínverjum um efnahagsástandið, eins vitlaus röksemdarfærsla og það nú er: Blaming Beijing
Á ritstjórn NYT eru greinilega miklir spekingar, því þar sjá menn nokkuð sem menn í Washington virðast ekki sjá, að Afganistan er satt að segja í hættulega miklu fokki! Endangered Peace in Afghanistan
Maureen Dowd fjallar um Bush og Írak (nú eru menn í Pentagon víst farnir að reyna að læra af Frökkum og þeirra katastrófum í Alsírstríðinu... sem verður að teljast kaldhæðið á margan hátt): Empire of Novices
Thomas Friedman fjallar um einhverjar tvísýnustu kosningar sem haldnar hafa verið í Arabaheiminum - í pan-arabískri Idol keppni: 52 to 48 Tim Weiner fer á hundavaði yfir sögu Líberíu og átakanna þar: Of Liberia's Many Sorrows, and Their Roots
Heilbrigðiskerfið í Kína
Í tíma í Alþjóðavæðingu í dag sagði Jón Ormur okkur frá því sem gerðist í Kína þegar SARS (HABL) braust þar út í vor.Þannig er að heilbrigðiskerfið þar er gjörsamlega í rúst. Svo einfalt er það. Eina leiðin fyrir fólk til að fá einhverja þjónustu er að greiða fyrir hana himinhá gjöld. Þá er ekki verið að tala um einhver himinhá gjöld einsog margir Íslendingar kvarta undan að þurfa að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hér á landi (nokkra þúsundkalla), heldur gjöld sem að tekur meðaljóninn kínverska marga mánuði eða ár að vinna fyrir greiðslunni (þar sem auðvitað þarf viðkomandi að framfleyta fjölskyldunni áfram og það sem eftir er afgang hrekkur einfaldlega skammt fyrir slíkum aukakostnaði).
Nema hvað, þegar SARS braust út ákváðu kínversk heilbrigðisyfirvöld að allir með SARS fengju ókeypis heilbrigðisþjónustu og kvöttu þau alla sem töldu sig veika að fara í skoðun hjá lækni.
Sá galli var á gjöf Njarðar að fjölmargir, að þvi að talið er, þorðu einfaldlega ekki að fara til læknis, þrátt fyrir að þær kynnu að hafa SARS, því ef þeir væru aðeins með t.d. flensu yrði reikningurinn fyrir heimsóknina þeim ofviða. Þannig telja menn að SARS hafi orðið að miklu meira vandamáli í Kína en það hefði þurft að verða - ef fólk hefði þorað til læknis.
Ekki er öll vitleysan eins
Tough lessons for campus piratesNú er margir háskólar í Bandaríkjunum farnir að prédika yfir nemendum sínum um ólögmæti "tónlistardeilingar" (sharing) í gegnum netið.
Einsog kemur fram í greininni er það ekkert grín að lenda í lögfræðingaherjum tónlistarútgefandanna.
Selling sterilisation to addicts
Þetta er nú engin frétt í sjálfu sér, því þessi samtök, Selling sterilisation to addicts, hafa verið starfrækt í nokkur ár. Þetta er semsagt samtökin alræmdu sem borga krakk-fíklum (nær eingöngu konum) fyrir að fara í ófrjósemisaðgerð. 200 dollara fyrir aðgerðina. Rökin fyrir þessum aðgerðum er að "bjarga" hugsanlegum börnum kvennanna frá því að fæðasta fíklar. Að vonum eru ekki allir á eitt sáttir um starfsemi (og hugmyndafræði) samtakanna. Ég verð samt að segja fyrir mitt leyti að ég veit um mörg siðlausari samtök en þetta, t.d. í Bandaríkjunum. Síðastliðin fimm ár hafa samtökin borgað rúmlega eitt þúsund fíklum fyrir að gangast undir sterilæseringu.
Í tækinu:
All the Best Irish Drinking Songs
Skemmtilegur hræódýr diskur sem ég keypti fyrir nokkrum árum. Tekinn upp á írskum pöb með tilheyrandi lófaklappi, glasahljóðum og á köflum ófullkominni hljóðgæðum. M.ö.o. mjög "heimilislegur" diskur, eða "kráarlegur" væri kannski betra orð.
Í glasinu: Guinness
Kaffi og hlutur sjúklings
Í dag gerði ég sérstakan krók á leið mína á leiðinni úr skólanum til að fá mér góðan kaffibolla. Fékk mér hann reyndar "to go" þrátt fyrir að mér finnst kaffi úr plastbolla svona svipað og borða með plasthnífapörum, eða ganga í gerviefnum - maður einfaldlega gerir það ekki nema í neyð.Þetta var fyrsti kaffibollinn síðan á þriðjudaginn í síðustu viku! Hann var því langþráður.
Fór í viðtal til læknisins vegna aðgerðarinnar. Það tók 7 mínútur. Venjulegur skrifstofumaður er engu að síður fjóra tíma (m.t.t. skatta) að vinna fyrir þeim "hluti sjúklings" sem ég greiddi fyrir. Það eru fleiri sem harma hlutinn sinn en hásetinn í kvæðinu. Ekki það að ég borga minn hlut glaður, enda betra að hafa kerfi sem veitir þó einhverja þjónustu (en er "dýrt") en kerfi sem gerir það einfaldlega ekki (en er "ókeypis"). Enda er ekki heilsan forsenda hamingju en ekki peningar?
september 02, 2003
Bloody Sunday
Eftir lestur á viðtali við James Nesbitt í Mogganum í dag langar mig enn meira að sjá kvikmyndina Bloody Sunday, sem er núna verið að sýna að breskum kvikmyndadögum.Ég sá brot úr myndinni fyrir nokkru síðan og las um hana fyrir nokkrum mánuðum. Myndin virðist standa fyllilega undir væntingum flestra, sem er alls ekki sjálfgefið þegar umfjöllunarefnið er jafn viðkvæmt og í þessu tilfelli.
Þar fyrir utan er James Nesbitt í hálfgerðu uppáhaldi hjá mér, þó sérstaklega í hlutverki Adams í Cold Feet.
Mér finnst hún reyndar koma frekar seint hingað til lands. Hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðum í upphafi síðasta árs (enda 30 ár liðin frá atburðunum í janúar í fyrra) og síðasta haust var hún frumsýnd víðasthvar. Hún er m.a.s. komin út á vhs og dvd í bæði USA og UK. Spurning að kaupa hana bara á dvd frá UK með tilheyrandi aukaefni um atburðina 30. janúar 1972.
Indónesía
Í ljósi frétta af því að búið er að dæma Abú Bakar Basír (Ba'asyir) í fangelsi fyrir landráð er ekki úr vegi að velta fyrir sér stöðu radical íslam í Indónesíu.september 01, 2003
Time Out of Mind
Ég mun seint þreytast á því að dásama Time Out of Mind með Bob Dylan.Þetta er einfaldlega einhver þægilegasta plata til hlustunar sem gerð hefur verið. Hún kom út '97 en sjálfur hef ég ekki átt hana nema í rúm tvo ár. Það líður sjaldan vika, a.m.k. ekki tvær, að ég hlusti ekki á hana. Þetta er því án efa ein allra mest spilaða platan sem ég á. Það sem meira er að þetta er ein af örfáum plötum sem ég get hlustað á tvisvar, þrisvar sinnum í röð án þess að það verði leiðitamt.
Yndisleg. Ótrúlega falleg plata. Textarnir eru reyndar fullir af trega og hálfgerðu þunglyndi en rétt einsog hagfræðin væri ekki til án skortsins, þá væri tónlistin ekki til án tegans, ekki satt?
Time Out of Mind fékk Grammy verðlaunin 1998 sem besta plata ársins, besta Folk plata ársins og Bob Dylan fékk verðlaunin sem besti karl rokkarinn.
Ágúst
Mikið er gott að ágúst mánuður er liðinn. Þar með er sumarið liðið og haustið tekið við. Sumarinu þar með formlega lokið. Segja má að allt í sambandi við þetta blessaða sumar hafi farið á annan veg en ég ætlaði í upphafi. Þannig er það nú stundum, that's life! Ágúst mánuður var síst undantekning frá því. Sá mánuður er líka þekktur fyrir að vera til vandræða, einsog margoft hefur sannast: August - Let's get rid of itÁgúst er mánuður kjarnorkuárása. Fyrri heimstyrjöldin hófst í ágúst og það var líka í ágúst sem Írakar réðust inn í Kúveit. Kann að hljóma asnalega að rifja þetta upp í ljósi þess að í dag, 1. september, eru slétt 64 ár síðan Þjóðverjar réðust inn í Pólland og þar með hófst seinni heimstyrjöldin (eigum við ekki að kenna ágústar-áhrifum um).
M.a.s. nafnið er tilkomið af egóflippi rómversku keisaranna. Júlíus Caesar kom fram með júlíanska dagatalið og það var svo Ágústus sem breytti nafninu. Það má reyndar færa rök fyrir því að ágústarnafnið "meiki sens" af öðrum ástæðum en látum það liggja á milli hluta.
Ágúst er mánuðurinn þegar maður tekur skyndilega eftir því hvað daginn tekur að stytta. Það fer að kólna. Það fer að rigna meira. Ef maður er heppinn fer maður að sjá stjörnur á kvöldin en á móti kemur að maður fær minni birtu og meira regn, þannig þau skipti geta vart talist góð.
Ágúst er líka sá mánuður sem flestir koma úr sumarfríi. Krakkarnir eru sendir aftur gegn vilja sínum í skólana (enda veðrið hætt að bjóða upp á útileiki).
Helstu mikilmenni sögunnar (fyrir utan móður mína) sem hafa fæðingardag í ágúst eru Napóleon, Bill Clinton, Arafat og Michael Jackson. Okei, það er reyndar ekki alveg rétt Hitchcock, Andy Warhol og Goethe voru t.d. allir fæddir í ágúst. Líka Van Morrison og sjálfur Keith heitinn Moon. Og Móðir Teresa. Og u.þ.b. 1/12 af mannkyninu líka.
Díana prinsessa dó í ágúst. Mikið fár í kringum það fyrir sex árum síðan. Það gerðu líka heimspekingarnir Nietzsche og Hume. Presley sjálfur kvaddi þennan heim í ágúst og það gerði Marilyn Monroe einnig. Alec Guinness og Richard Burton létust sama dag og Marilyn, 5. ágúst.
En nú er ágúst liðinn. Enn einn ágúst mánuðurinn með sínum dintóttu uppákomum og lækkandi sól. En nú er hann liðinn, enda var ég búinn að fá nóg af honum í bili. Guði sé lof fyrir september!
Ágúst
Hótel Selfoss
Ég verð að segja að fréttir af gjaldþroti Hótel Selfoss gætu ekki komið mér minna á óvart.Ég hef komið þarna einu sinni. Viska hélt árshátíð sína þarna síðasta vetur og ég skil ekki ennþá hvernig mönnum datt í hug að þetta dæmi gæti nokkurn tímann gengið upp!
Enn eitt dæmið um gjörsamlega óskiljanlega fjármálastjórn í fyrirtæki þar sem ábyrgð og eftirlit hjá stjórnendum virðist hafa verið mjög á reiki.
Lesefni með kaffinu
Soviet Shadows, Ukraine Ghosts - Nicholas Kristof ferðast um Úkraínu og lýsir örbyggðinni þar.Freedom's in 2nd Place? - annar pistill frá Kristof skrifaður í Úkraínu, þar sem hann ber saman Úkraínu og Kína.
Maureen Dowd hefur skrifað tvo pistla um Írak undanfarna viku: The Jihad All-Stars og Who's Losing Iraq? Líklegast einn kaldhæðnasti pistlahöfundurinn vestanhafs.
Thomas Friedman skrifaði líka tvo pistla um Írak undanfarna viku: Starting From Scratch og Policy Lobotomy Needed
Paul Krugman fjallaði líka um kostnaðinn við "uppbygginguna" í Írak á föstudaginn var: Fistfuls of Dollars
Lesa áfram