október 03, 2003

Hafsteinn og Rommel

Stefán Einar.com skrifar um fund stjórnar SUS:
Hafsteinn Þór Hauksson stýrði sínum fyrsta stjórnarfundi með myndarbrag og hann er ekki ólíkur hershöfðingjanum Rommel í athöfnum, stöðugur foringi með yfirsýn yfir vígvöllinn. Hafsteinn væri góður á skriðdreka.
Þetta rataði inn á umræðu á Málefnin.com (mér var bent á þetta, annars legg ég ekki vana minn að skoða svona kjaftavefi). Ég sá mig nauðbeygðan til að svara þessu.

Svarið ætla ég einnig að birta hér:

Þar sem ég þekki Stefán Einar persónulega treysti ég mér til að fullyrða að Stefán Einar Stefánsson er hvorki nazisti né rasisti. Hann hefur þá farið einstaklega sparlega með þær skoðanir sínar í okkar samskiptum. Það má ýmislegt segja um Stefán Einar(.com) en að kenna hann við þessar skoðanir er á engan hátt sanngjarnt.

Aftur á móti er þetta einstaklega klaufaleg samlíking. Ekki aðeins vegna þess að þarna líkir hann Hafsteini Þór við nazista heldur líka við mann sem átti eftirfarandi sögulok:

Rommel stjórnaði hersveitunum í N-Afríku fyrir nazista. Í lok árs 1942 var hann aftur á móti sigraður í frægri orrystu um El Alamein í Egyptalandi. Her bandamanna stjórnaði Montgomery. Rommel var þá sendur heim til Þýskalands og var viss um að nazistar myndu tapa stríðinu. Hann tók þátt í plotti til að ráða Hitler af dögum og fyrir vikið var Rommel sjálfur dauðadæmdur. Fyrir fyrri afrek sín fékk hann þó að binda enda á líf sitt sjálfur, hann tók inn eitur, réttum tveimur árum eftir að hann hafði tapað í El Alamein.

M.ö.o. maðurinn var þekktur fyrir að vera mikill hershöfðingi. Hann aftur á móti tapaði undir lokin fyrir stærri her, þar sem sameinuðust m.a. herir frá nýlendum Breta og franskir útlagar. Hershöfðinginn sem sigraði Rommel, Montgomery var veittur titillinn "vísigreifinn af Alamein" fyrir þennan frækilega sigur. Rommel fannst yfirboðari hans í Berlín ekki hafa nægan skilning á stríðinu í N-Afríku og samstarf hans við ítalska herinn gekk brösulega á köflum og hann bar meiri virðingu fyrir andstæðingi sínum, Bretum, en ítölskum samstarfsmönnum sínum. Hann vildi gera breytingar á strategíu nazista þegar hann kom aftur heim eftir ósigurinn, en það var ekki hlustað á hann. Rommel vildi í raun gera friðkaup en Foringinn hlustaði ekki. Félagar hans í nazistahernum vildu að hann tæki við forystu ríkisins en hann vissi ekki að þeir plönuðu að drepa Foringjann. Rommel hefði sjálfur aldrei samþykkt það en þar sem hann var með í ráðum - og upp um það komst - var honum gert að fremja sjálfsmorð.

Hvernig sagan hefði endað ef dátar Montgomerys hefðu ekki fengið skráningu í herinn veit enginn. Þessi samlíking er hinsvegar með eindæmum klaufaleg hjá Stefáni - og þó...

Agust skrifaði 03.10.03 18:31

Flokkun: Saga , Stjórnmál