október 06, 2003
Vestur-afrísk olía
Nú hefur olíuleiðslan frá Tsjad til Atlantshafs gegnum Kamerún verið opnuð (sjá frétt al Jazeera). Alþjóðabankinn stendur að þessari fjárfestingu og segist bankinn ætla að tryggja að arðurinn af leiðslunni renni til fólksins, ekki spilltra pólitíkusa og embættismanna. Reyndar las ég einhvers staðar um daginn að menn í Suður-Tsjad væru strax farnir að kvarta undan því að peningarnir skiluðu sér ekki í menntun og infrastrúktúr heldur hyrfi í kerfinu. Við skulum samt sjá hvað setur.Skv. fréttinni er áætlað að olíuframleiðsla V-Afríkuríkja geti orðið allt að sex milljónir tunna á dag á næsta áratug en núverandi framleiðsla er 3,5 milljón tunna á dag (bpd). Til samanburðar voru Írakar að framleiða 2,5 milljón bpd fyrir innrásina og Saúdar framleiða í dag rúmlega 8 milljónir bpd (ef ég man tölurnar rétt).
ExxonMobile holds a 40% stake in the project, with Malaysia's Petronas holding 35% and ChevronTexaco 25%.Alþjóðabankinn leggur til 3% fjárfestingarinnar og hefur, einsog áður sagði, lagt mikla áherslu á að fjármagnið sem rennur til landanna tveggja feri í verkefni fyrir almenning en ekki fáa útvalda.
Other financiers include the European Investment Bank, US Export-Import Bank, the French export credit agency COFACE and a group of private banks led by Dutch ABN-Amro and Credit Agricole Indosuez.Áætlanir gera ráð fyrir að Tsjad geti hagnast um allt að 2 milljarða dala á leiðslunni og olíuvinnslunni í suðurhluta landsins á næstu 25 árum. Kamerúnar munu fá um 500 milljónir dala á jafnlöngum tíma.
Verkefnið hefur hinsvegar verið gagnrýnt fyrir m.a. að það stofni regnskógum í Kamerún í hættu og lífi Pygmía á svæðinu.
Í dag framleiðir Kamerún 77 þús. bpd en Tsjad er að hefja framleiðslu sína núna. Búið er að fjárfesta fyrir tæpa fjóra milljarða dala í olíuiðnaði í Tsjad og olíuforði landsins er talinn um einn milljarður tunna. Það er tvöfaldur forði Miðbaugs-Guineu en smáræði í samanburði við stóru olíuframleiðsluríkin.
Olíuframleiðsla fer fljótlega að hefjast í Sao Tome og fyrir er 300 þús. bpd framleiðsla í Gabon og tæplega 200 þús. bpd framleiðsla í Miðbaugs-Guineu.
Sao Tome er einn heitasti staðurinn í olíubransanum í dag. Eyríkið rataði í fréttir betri fréttastofa í sumar þegar nokkuð einkennilegt valdarán var framið þar. Þeir sem rændu völdum hættu nefnilega við og forsetinn, sem kosinn var í lýðræðislegum kosningum og er að því er virðist maður með framtíðarsýn, fékk aftur völdin. Fyrir áhugafólk um afrísk valdarán var þetta nokkuð spes á að horfa.
Ég skrifaði lítið eitt um litlu olíuríkin í V-Afríku fyrir nokkrum mánuðum: Petrocrats.
Agust skrifaði 06.10.03 23:55
Flokkun: Afríka , Development , Hagfræði , Stjórnmál , Viðskipti