október 07, 2003

Dr. Mahathir

Nú er Dr. Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu að hætta (nánar tiltekið í lok þessa mánaðar). BBC lítur á efnahagslega arflegð hans: Mahathir's economic legacy
Hann hefur stjórnað með harðri hendi í 22 ár, e.t.v. ekki eins harðri og sannur einræðisherra, en hann hefur ekki notað neina silkihanska. Hann hefur hinsvegar, og það verður ekki tekið af honum, tekist að gera Malasíu að efnahagslegu success-i, þrátt fyrir Asíukreppuna undir lok síðasta áratugar.
Dr. Mahathir hefur verið þekktur fyrir ýmis furðuleg komment. Hann t.d. kallaði Asíukreppuna "samsæri Gyðinga" og hefur talað gegn hnattvæðingu - þrátt fyrir að Malasía sé með þeim löndum sem eru einna besta dæmið um ávöxt hnattvæðingarinnar. Hann setti líka óvenjumiklar hömlur á fjármagnsflutning til og frá landinu eftir Asíukreppuna og skuldir landsins eru víst George Soros að kenna, ekki massívri uppbyggingu og skuldasöfnun ríkisstjórnarinnar.
Eftirmaður Dr. Mahathirs er aðstoðarforsætisráðherrann, Abdúllah bin Ahmad Badawi.
Agust skrifaði 07.10.03 14:10

Flokkun: Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál