október 13, 2003
Punktar
Nokkrir punktar úr eigin lífi:- Ég mætti á minn fyrsta hópafund í Amnesty í síðustu viku.
- Það var áhugavert en þetta er ekki eitthvað sem maður gerir að hobbýi. Þá á ég við að starfið er ekki það krefjandi/tímafrekt.
- Á miðvikudaginn fór ég í eitt allra, allra erfiðasta próf sem ég hef farið í - í Alþjóðavæðingu.
- Þetta próf og lesna stærðfræðin í stúdentsprófunum í Verzló.
- Ég vona að ég fái a.m.k. helmingi hærra í prófinu í síðustu viku en í því prófi.
- En ég hef aldrei áður vitað um að það taki fólk 2 1/2 tíma að svara 13 krossaspurningum.
- Ég hef heldur aldrei tekið próf þar sem ég bæði merkti á einu stað við alla möguleikana og engan á öðrum - og fæ líklegast rétt fyrir báðar spurningarnar (eftir því sem ég kemst næst).
- Á föstudaginn sátum við Helga Björt í nokkra klukkutíma að fórum yfir verkefni. Það var stórskemmtilegt.
- Ég gæti alveg hugsað mér að verða kennari þegar ég verð orðinn stór.
- Í hádeginu í dag borðaði ég á Grænum kosti með Siggu. Það er ágætur staður svona inn á milli.
- Í kvöld fór ég í Bókhlöðuna og átti mjög pródúktívan klukkutíma.
- Mér er meinilla við nýja Gegni. Þetta er ljóta helv. draslið!
- Ég finn aldrei neitt í þessu skaðræðis forriti. Finn það þó í gamla kerfinu - ef það er til á annað borð (þ.e.a.s. það sem ég leita að).
- Ég þarf virkilega að drífa í því að senda lista á vinkonur mínar á bókasafninu í HR til að fá millisafnalán.
- Í kvöld leituðum við Þórir að mat í miðbæ Reykjavíkur á viðráðanlegu verði.
- Við enduðum á Vegamótum, þangað sem Þórir hálfpartinn dró mig inn.
- Mér finnst að draga í þátíð ætti að ritast dróg með g-i.
- Merkilegt nokk, þá var maturinn mjög góður. Ég fékk mér rauðsprettu með linsubaunasósu, hrísgrjónum og grænmeti.
- Fiskmáltíð fyrir 1.100 kr. er eitthvað sem maður er ekki vanur á Íslandi.
- Ég var svo ánægður að ég brosti hringinn þegar ég fór út. Ég elska að fá góðan fisk :-)
- Ég fer til Akureyrar á fimmtudaginn og kem aftur á föstudaginn.
- Ég fer með flugvél og verður þetta fyrsta innanlandsflugferðin mín.
- Tilgangur ferðarinnar: skoða sjávarútvegsfyrirtæki og sækja fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri.
- Þetta er ekki eins óáhugavert og þetta hljómar :)
- Og það sem meira er, ég fer ásamt ca. 50 manns úr HR, því þetta er partur af sjávarútvegsfræðikúrsinum.
Agust skrifaði 13.10.03 23:32
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Hvabbara verið að hlusta á Gamla Spassann?
Sibba skrifaði 15.10.03 00:42