október 14, 2003

Í fréttum er þetta helst

Maður veit satt að segja ekki hvað maður á að halda um þetta nýframkomna friðarplan. Einhvern veginn finnst manni þó að þetta geti í besta lagi verið hálfgerður óskalisti, einsog sumir hafa kallað það.

Mótmælunum í Bólivíu er ágætlega gerð myndræn skil á BBC-vefnum.

Lýbíustjórn virðist eitthvað vera að draga hælana í UTA 772 málinu. Það snýst um franska flugvél sem sprengd var yfir Níger árið 1989, að því að talið er af hryðjuverkamönnum gengdum Lýbíustjórn. Lýbíumenn hafa þó aldrei viðurkennt það. Árið 1999 náðist þó samkomulag um bætur sem Lýbía greiddi ættingjum þeirra sem fórust. Eftir nýlegt samkomulag við ættingja þeirra sem létust þegar flugvél Pan Am var sprengd yfir Lockerbie á Skotlandi vildu Frakkar að samið yrði upp á nýtt. Sett voru tímamörk, sem runnu út á laugardaginn. Lýbíumenn boðuðu þó fulltrúa ættingjanna til Trípólí í dag og þykir það jákvætt merki. Menn eru þó mis bjartsýnir á framhaldið.

Rauði krossinn og fleiri mikilsmetnir aðilar í Bandaríkjunum eru nú farnir að gagnrýna meðferð fanga í Guantanamo herstöðinni. Það þarf heldur engan lögspeking til að sjá hvernig Genfarsáttmálinn er þverbrotinn, einsog ég hef áður bent á.
Agust skrifaði 14.10.03 00:55

Flokkun: Fréttir