október 15, 2003
Randver
Um helgina eignaðist ég nýjan geisladisk. Nýútkominn safndisk með írsk-þjóðlaga/kántrísveitinni Randver. Það væri svosem ekki til sérstakrar bókunar færandi, því þjóðlagadiskur er svosem ekkert óvanaleg viðbót við geisladiskasafnið mitt. En tilefni þessara geisladiskakaupa er þó óvenjulegt.Diskurinn er tileinkaður minningu Guðmundar Sveinssonar heitins, sem var hluti af hljómsveitinni þegar hún starfaði 1975-78. Guðmundur kenndi mér í grunnskóla í rúma tvo vetur, þar til hann lést 1995, tæplega fimmtugur að aldri.
Guðmundur var þeim sem hann kenndi mjög kær og hafði mótandi áhrif á nemendur sína, þannig var hans persóna. Sannarlega dæmi um kennara sem eru alltof sjaldgæfir. Þegar tók að vora fyrsta veturinn sem hann kenndi mér greindist hann með hvítblæði, sem hann svo lést úr tveimur árum síðar. Að fylgjast með baráttu einhvers sem maður lítur upp til við svona illvægan sjúkdóm hefur áhrif á mann þegar maður er 11-13 ára.
Gaman er að heyra útgáfu Randversmanna af Black Jack Davey ("Sagan okkar", 1975) með The Incredible String Band. Annars eru flest lögin írsk eða bresk þjóðlög (nema kantrílögin auðvitað) en íslenskur texti eftir Ellert Borgar Þorvaldsson.
Agust skrifaði 15.10.03 16:24
Flokkun: Daglegt líf