október 15, 2003
Siðfræði umsátursmanna
Í gær var ég að lesa bók sem fór yfir ýmiskonar umsáturshernað og efnahagsþvinganir í sögulegu ljósi. Þar var m.a. velt upp hvaða siðfræðilögmál giltu á Biblíutímanum varðandi umsátur borga og hvernig menn ættu að fara með íbúana þegar borgarbúar gæfust loks upp eða umsátursmenn kæmust inn fyrir borgarmúrana. Þar vitnaði höfundur í 5. Mósebók. Þegar hún er skoðuð í íslenskri útgáfu hljómar þessi handbók í umsátri svona (20. kafli):10. Þegar þú býst til að herja á borg, þá skalt þú bjóða henni frið.Þessar reglur virðast að miklu leyti enn í gildi í landinu helga, svona ef út í það er farið.
11. Og ef hún veitir friðsamleg andsvör og lýkur upp fyrir þér, þá skal allur lýðurinn, sem í henni finnst, vera þér ánauðugur og þjóna þér.
12. En vilji hún ekki gjöra frið við þig, heldur eiga ófrið við þig, þá skalt þú setjast um hana,
13. og þegar Drottinn Guð þinn gefur hana í hendur þér, skalt þú deyða með sverðseggjum allt karlkyn, sem í henni er,
14. en konum, börnum og fénaði og öllu, sem er í borginni, öllu herfanginu, mátt þú ræna handa þér og neyta herfangs óvina þinna, þess er Drottinn Guð þinn gefur þér.
15. Svo skalt þú fara með allar þær borgir, sem eru mjög í fjarska við þig og ekki eru af borgum þessara þjóða.
16. En í borgum þessara þjóða, sem Drottinn Guð þinn gefur þér til eignar, skalt þú enga mannssál láta lífi halda.
17. Miklu fremur skalt þú gjöreyða þeim: Hetítum, Amorítum, Kanaanítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, eins og Drottinn Guð þinn hefir fyrir þig lagt,
18. til þess að þeir kenni yður ekki að taka upp allar þær svívirðingar, er þeir hafa í frammi haft guðum sínum til vegsemdar, og þér syndgið gegn Drottni Guði yðar.
19. Þegar þú verður að sitja lengi um einhverja borg til þess að taka hana herskildi, þá skalt þú ekki spilla trjám hennar með því að bera að þeim exi, því að þú getur etið af þeim aldinin, og þú skalt ekki höggva þau, því að hvort munu tré merkurinnar vera menn, svo að þau þurfi að vera í umsát þinni?
20. Þau tré ein, er þú veist að eigi bera æt aldin, þeim mátt þú spilla og höggva þau til þess að reisa úr þeim hervirki gegn borg þeirri, er á í ófriði við þig, uns hún fellur.
Agust skrifaði 15.10.03 17:46
Flokkun: Heimspeki
Comments
StefanEinar.com: Áhugaverðar pælingar
Það þarf að skoða þessa texta í þessu sögulega og menningarlega samhengi en ekki út frá sýn þess fólks sem í dag byggir jörðina.StefanEinar.com skrifaði 21.10.03 22:27