október 21, 2003
Akureyri einn daginn, Uppsala þann næsta
Eftir frábæra Akureyrarferð fimmtudag og föstudag fór laugardagurinn í verkefnavinnu inn í skóla. Þegar ég kom svo heim um kvöldið var ég hálf druslulegur.Um miðnættið byrjuðu svo herlegheitin. Til að gera langa sögu stutta fékk ég verstu ælupest sem ég hef nokkurn tímann fengið. Kastaði upp blóði í síðustu lotunni. Hélt svo að ég væri allur að skána um kvöldið en þá fékk ég þennan líka verk fyrir vinstra brjóstið. Næturlæknirinn kom og dreif mig inn á Borgarspítala. Þar var ég skoðaður í bak og fyrir en ekkert kom út úr því. Allavega ekkert alvarlegt, sem betur fer.
Mér finnst ég alveg búinn að fá minn skammt af krankheitum þetta árið - og gott betur!
Agust skrifaði 21.10.03 22:46
Flokkun: Daglegt líf