október 21, 2003

Borgarastríðið heldur áfram

Senate Approves Ban on Abortion Procedure
Öldungadeildin bandaríska samþykkti með 64 atkvæðum gagn 34 að banna fóstureyðingar með vissri aðferð. Áður hafði fulltrúadeildin samþykkt lagafrumvarpið með 281 atkvæði gegn 142. Þetta eru fóstureyðingar sem eiga sér stað á 2. eða 3. þriðjungi meðgöngu, þegar venjuleg fóstureyðing getur ekki átt sér stað.

Slíkar fóstureyðingar eru reyndar gjarnan notaðar af andstæðingum valréttar kvenna í Bandaríkjunum, því þær eru - óneitanlega - "subbulegar" og myndir af þeim vekja óhug fólks. Auðvitað er ekki spurt um rökin sem lágu að baki því að fóstureyðingin var framkvæmd. Slíkt fellur ekki að þeirra propoganda.

Að því leytinu til væri sjálfsagt ágætt að þessi aðferð yrði bönnuð nema heilsa móður lægi við, því annars er hún í sjálfu sér gjörsamlega óþörf í praxís. Aftur á móti gengur þetta nýsamþykkta lagafrumvarp út á að aðferðin er algjörlega bönnuð. Punktur.

Orðalagið er annað sem menn óttast. Í landi lögfræðinganna er nefnilega yfirleitt hægt að snúa út öllu og skrumskæla allt. Lagaframvarpið er sagt vera þannig orðað að þeir sem standa vörð um réttinn til fóstureyðinga óttast að lögunum verði beitt gegn öðrum (löglegum) aðferðum við fóstureyðingu.

En það væri þá bara bónus fyrir hina sanntrúuðu, ekki satt.

Að sjálfsögðu snýst þetta líka að miklu leyti um það að þarna er í fyrsta skiptið í 30 ár verið að setja lög sem skerða rétt kvenna til fóstureyðinga. Ef það væri heilbrigði kvenna eða mannslífin sem vöktu fyrir þeim sem fengu frumvarpið í gegn, tæki það að sjálfsögðu tillit til þess að aðferðin væri heimiluð þegar heilsa móðurinnar væri í hættu. Engar slíkar undantekningar eru í frumvarpinu enda í fyrsta lagi þessari aðferð sjaldnast beitt nema þegar heilsa móðurinnar er í húfi og í öðru lagi er frumvarpið lagt fram af þeim sem vilja banna fóstureyðingar, punktur.

Aðferðin sem um ræðir fellst í því að meðgangan er komin svo langt á leið að ekki er hægt að eyða fóstrinu nema að "[the] fetus is partially delivered before being killed", svo ég vitni í Washington Post.

Nú veit ég ekki hvert hlutfallið er í Bandaríkjunum (eða almennt séð) en ef ég m.v. þær tölur sem ég hef frá Hagstofunni hérna heima þá eru 3-4% fóstureyðinga framkvæmdar á fyrri helmingi annars þriðjungs meðgöngu (13.-19. vika). Eftir 20 viku hafa verið framkvæmdar 1-2 fóstureyðingar á ári (sem nú eru samtals á tíunda hundrað).

Í borgarastríðinu vestra um fóstureyðingar hafa fylgjendur banns unnið þessar orrystu. Stríðið heldur áfram og mun halda áfram næstu áratugi. Þessi Economist-grein síðan í janúar s.l. gerir góða grein fyrir hvers vegna svo er.
Agust skrifaði 21.10.03 23:43

Flokkun: Ameríka , Fóstureyðingar , Lög&réttur