október 22, 2003

The Dear Leader

Mæli eindregið með þessari (löngu og) ágætu grein um "The Dear Leader": The Last Emperor
Ef eitthvað er að marka þessa grein (sem ég geng út frá að sé, þar sem hún birtist í New York Times Magazine) þá er Kim Jong Il e.t.v. ekki jafn sérvitur geðsjúklingur og maður hélt... eða jú, hann er bara (skv. greininni) betur upplýstur um stöðu mála. Og jú, hann hefur ekki verið þekktur fyrir t.d. að skjóta fólk sér til dundurs einsog sumir fellow einræðisherrar, nú eða leggja sér það til munns. Þess í stað sendir hann hvern sem honum dettur í hug í fangabúðir og drepur þúsundir fólks á ári úr hungri.
Agust skrifaði 22.10.03 18:48

Flokkun: Stjórnmál
Comments

Ágúst, greinin er góð.

Hún er hins vegar komin í skjalasafnið hjá NYT og kostar tæplega þrjá bandaríkjadali að berja hana augum. Viltu ekki frekar beina lesendum á endurgjaldslausa útgáfu hennar:
- Í IHT (stytt):
http://www.iht.com/articles/114408.html
- Annars staðar (óstytt),
- - t.d. hér:
http://www.freenorthkorea.net/archives/freenorthkorea/000650.html#more
- - nú eða bara hér:
http://209.157.64.200/focus/f-news/1003173/posts

En takk fyrir ábendinguna. Greinin er góð, eins og áður sagði.

Hörður Helgi Helgason skrifaði 29.10.03 01:15

Þakka þér fyrir Hörður. Þetta er vandamál við NYT. Greinarnar eru ókeypis í viku eftir að þær birtast - þ.e.a.s. fyrir okkur utan Ameríku, ef við skráum okkur sem notendur.

IHT birtir úrvalið af greinunum, þannig þar má oft finna bæði greinar sem þessar og suma pistla reglulegu pistlahöfundanna. Sérstaklega ef efnistökin er alþjóðleg.

En enn og aftur, takk fyrir þessa linka :)

(Ég breytti kommentinu þannig að nú er hægt að smella á slóðirnar sem Hörður gaf upp)

Ágúst skrifaði 29.10.03 13:18