október 23, 2003
Jólafríið
Ég er búinn að vera að planleggja jólafríið í kvöld. Planið einsog það er núna hljóðar upp á ca. 60 þús. króna ferð um tvær flottar Evrópuborgir. Fer rétt fyrir jól, skoða skóla og fleira sniðugt, nýt menningar og ver jólunum í Aþennu, Grikklandi.Flýg svo aftur á London og er þar tvær nætur/þrjá daga áður en ég flýg aftur heim.
Mér sýnist ég gæti komist af með gistingu í London fyrir 3.300 IKR, sem er betur sloppið en ég þorði að vona. Flugið Lon-Ath var dýrara en ég gerði ráð fyrir en þetta er farið að hljóma mjög spennandi og innan "skynsemis-verðs".
Þetta væri þá 11 daga ferðalag, færi rétt fyrir jól og kæmi rétt fyrir áramót.
Ef einhver vill lána mér íbúð til að búa í að langar til að koma með þá bendi ég á að ég les tölvupóstinn minn reglulega :-)
Og já, allar gagnlegar ábendingar eru auðvitað vel þegnar.
| Þarna ætla ég að vera um jólin :-) |
Agust skrifaði 23.10.03 00:19
Flokkun: Daglegt líf
Ég gæti trúað að Aþena sé mun meira heillandi í des heldur en í ágúst.
Ég gerðist svo gríðar skynsamur að vera þar í ágúst fyrir nokkrum árum, í steikjandi hita, mollu, logni, mengun og viðbjóð.
Við klifruðum upp á Akrapólis eldsnemma um morgun til að vera á undan túristahjörðunum og það var gáfulegt.
Við fórum á HM í frjálsum íþróttum og það var gríðar gaman og gáfulegt.
Þetta var líklega eina gáfulega sem við gerðum í Aþenu. Ég hef trú á að +40° stiga hita dragi úr gáfum bleikra Íslendinga.
Ég gisti á þakinu á Hostle Aphrodite sem er við hliðina á einni lestarstöð og í sjálfu sér fínt hostel - ef menn fýla svona hostel í alvöru.
Herbergi allt í lagi - ekkert meira og skemmtilegur bar í kjallaranum.
Gott að vera nörd og vera þarna því öll kvöldin var spurningakeppni í gangi og fékk maður fullt af áfengi ef maður gat svarað. Það vildi svo skemmtilega til að ég var yfirleitt fullur þarna.
semsagt (þó ekki punktur net)
nördavænt hostel sem er ódýrt í Aþenu
tjekk: http://www.google.com/search?q=aphrodite+hostel+athens&ie=UTF-8&oe=UTF-8&hl=is&lr=
kv
bió
Takk Björgvin fyrir þessi ráð. Ég held samt að ég splæsi í hotel, svona þar sem það eru nú líka jólin :)
Ég er búinn að skoða nokkur ódýr hótel þarna og þau eru alveg viðráðanleg í verði.
Ég var í Aþennu í byrjun júní fyrir rúmum tveimur árum síðan. Það var heitt en ekkert óbærilegt. Var bara í einn dag og við vorum mjög heppin með veður og mengun. Á aftur á móti eftir að skoða fullt af borginni, fór bara upp á Akrapólis (einmitt kl. 8 um morguninn) og svo örkuðum við í búðir og á McDonald's og Pizza Hut (þar sem enginn var búinn að borða ruslfæði í rúma viku, því við vorum á Krít og þar voru engir skyndibitastaðir).
Það er reyndar einn faktor sem ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir. Að það er skítakuldi þarna í desember-mars. Allavega miklu kaldara en ég hafði gert mér grein fyrir. Október og nóvember veðrið, einsog það er núna, býður upp á 15-20+ gráður. Desember er aftur á móti með 12 gráðu meðalhita og það sem meira er, eini mánuðurinn sem það rignir eitthvað af viti þarna.
Ég þarf að láta útsendara mína á staðnum kanna þetta betur. Maður nennir ekki að þarna í rigningu og íslenskum sumarhita. Eða hvað?
Meðaltölurnar fyrir desember eru einmitt mjög svipaðar júlítölunum fyrir Reykjavík.
Ágúst skrifaði 25.10.03 18:02