október 25, 2003
Langir dagar
Ég sat út Aðgerðagreiningartímann í dag. Var að fyllast af svefngalsa, þannig ég tók mig til að útbjó myrkraherbergi þegar ég kom heim og eyddi svo luganum úr deginum í að stækka myndir (það sem flestir kalla að framkalla). Það er alltaf gaman.Náði ekki að klára Akureyrarmyndirnar, þannig ég vona að það vinnist einhver tími í það á sunnudaginn.
Aftur á móti er ég að fara í fyrramálið að vinna sjávarútvegsfræðiverkefni. Skil í vikunni. Nóg að gera.
Horfði á Idolið með Þóri og Siggu í kvöld. Við entumst ekki til að horfa á allan þáttinn. Held ég þurfi ekkert að horfa á þá þætti meira fram að lokasprettinum.
Púff, ég er búinn að vera vakandi í tæpa tvo sólarhringa og er alveg orðinn stjarfur. Góða nótt.
Agust skrifaði 25.10.03 01:17
Flokkun: Daglegt líf