október 28, 2003

Geðveiki

Jólaskrautið er komið í Kringluna. Hvað er að fólki?? Þad er ennþá OKTÓBER fjandakornið! (Sent með SMS)


sms skrifaði 28.10.03 13:42

Flokkun: SMS
Comments

Ég keypti fyrsta jólaskrautið í gær. Handblásnar rússneskar kitch jólakúlur á 500 kall tveir stórir kassar saman :) Það væri æði! Og strax eftir hrekkjavöku ætla ég að far aða hlakka til jólanna :D

Unnur skrifaði 28.10.03 14:02

...og líka svona hræðilega hræðilega ljótt í þokkabót!

Jensi skrifaði 28.10.03 19:54

Já, ég er sammála því. Reyndar finnst mér jólaskrautið verða ljótara og ljótara með hverju árinu sem líður!

Sem betur fer hefur Kringlumönnum ekki (enn) dottið í hug að flytja inn jólasveinn-með-bjöllu-sem-hrópar-hóhóhó-hugmyndina frá Bandaríkjunum. Enda myndi það enda með blóðsúthellingum.

Þess í stað flytja menn inn allskonar rafdrifið drasl sem hermir eftir þessu fyrirbæri. Er til eitthvað meira óþolandi en falska rafrödd syngjandi "mherrí krissmass hóhóhó"?

Áður en maður veit verður Helga Möller komin í útvarpið eina ferðina enn.

*dæs*

Ágúst jólabarn

Ágúst skrifaði 28.10.03 20:08

"Ég kemst í hátíðarskap þó úti..............."

Óli G. Håk skrifaði 28.10.03 20:19

Hvernig er staðan í IKEA? Þeir eru venjulega alltaf langfyrstir.

Mér finnst að það eigi að beita dagsektum á jólaskraut fyrir einhverja ákveðna dagsetningu, kannski í lok nóv. Hafa þetta bara nógu andskoti háar sektir svo búðareigendur hugsi sig tvisvar um áður en þeir fara út í þetta svona snemma.

Svan skrifaði 29.10.03 05:33

Tíhí... þið eruð svo miklir Skröggar! :) Ég er sko bara lítil jólastelpa sko :)

Unnur skrifaði 29.10.03 19:10

Mér finnst bara alveg sjálfsagt að skreyta skammdegið með kjánalegu jólaskrauti :P

Vera skrifaði 29.10.03 21:02

Já, ég ætla líka að flýja land um jólin ;)

...ef guð lofar.

Ágúst skrifaði 29.10.03 22:12