október 29, 2003
Misheppnaðasti leiðtogi Íhaldsflokksinns
Hague verður þá ekki eftir allt saman minnst sem misheppnaðast leiðtoga breska Íhaldsflokksins:IDS DUMPED BY TORIES
Iain Duncan Smith fékk á sig vantrauststillögu og var hún samþykkt í kvöld af 90 þingmönnum flokksins á móti 75 sem vildu hann áfram.
Þetta kemur ekkert sérstaklega á óvart. Portillo hefði átt að verða formaður flokksins, þá væri hann ekki í jafn hræðilegu ástandi og núna.
Maðurinn sem í fyrsta lagi vildi gera flokkinn electable og í öðru lagi játaði á sig "samkynhneigða reynslu" átti ekki upp á pallborðið hjá flokkfélögunum, þar sem meðalaldurinn er þriggja stafa tala.
Agust skrifaði 29.10.03 18:32
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál