október 30, 2003
Svar óskast
Hvað þýðir á okkar einkunnaskala (í háskóla) það sem Bretar kalla "second class honours"?Enginn hefur getað svarað mér þessu. Vinsamlegast notið kommentakerfið ef þið vitið svarið, eða smellið á "Agust" hér fyrir neðan textann til að senda mér póst.
Takk fyrir.
Agust skrifaði 30.10.03 19:06
Flokkun: Daglegt líf
Ef minnið platar mig ekki að þá þýðir þetta að þú hafir náð 7-8 á prófi. Allt fyrir ofan 8 er svona First Class Honour.
klói skrifaði 30.10.03 19:34Ýmis konar einkunnaskali er notaður í breskum. En sá sem ég lýsi er algengur.
Að ná yfir 70% meðaleinkunn er kallað að ná "First Class Honour". Það er svipað eins og ná 8,5-9,0 í meðaleinkunn í íslenska kerfinu. Í gamla daga þýddi þessi einkunn frá Oxford eða Cambridge örugga vinnu innan breska embættiskerfisins. Dæmi um það (að vísu tilbúin) eru t.d. Sir Humphrey og Bernard Woolley í þáttunum Yes, minister, sem báðir kunna ósköpin öll í latínu. En þessir karakterar eru byggðir á veruleikanum.
Að ná yfir 50% í meðaleinkunn er kallað "Second Class Honour". Langsamlega flestir sem útskrifast fá þessa einkunn. Þess vegna er gerður greinarmunur á "Upper Second" (yfir 60%) og "Lower Second". Það þykir harla gott að hafa "Upper Second" þegar sótt er um framhaldseinkunn.
Að ná yfir 40% er kallað "Third Class Honour". Slík einkunn getur skaðað fólk í umsóknum um framhaldsnám.
Svo er hægt að fá "Pass" sem er 37-39%. Þá mega menn teljast heppnir að komast í framhaldsnám.
Ég man að þegar bjó við hliðina á nokkrum öðrum MA-nemum í Bretland þá hafði einn þeirra fengið "Lower Second", annar "Third" og sá þriðji "Pass". Allir höfðu nú samt komist áfram, enda fór háskólanemum í Bretlandi mjög fjölgandi á þessum árum.
Sverrir skrifaði 31.10.03 10:05Það virðist annað hvort orð hafa dottið út hjá mér áðan. Vonandi var þetta samt skiljanlegt.
Sverrir skrifaði 31.10.03 10:08Af samskiptum mínum við LSE þá held ég að þú getir miðað við að þetta sé fyrsta einkunn sem þeir eiga við.
Óli skrifaði 31.10.03 11:39