október 30, 2003

Svar óskast

Hvað þýðir á okkar einkunnaskala (í háskóla) það sem Bretar kalla "second class honours"?

Enginn hefur getað svarað mér þessu. Vinsamlegast notið kommentakerfið ef þið vitið svarið, eða smellið á "Agust" hér fyrir neðan textann til að senda mér póst.
Takk fyrir.
Agust skrifaði kl. 19:06 | Comments (5)
Flokkun: Daglegt líf

október 29, 2003

Misheppnaðasti leiðtogi Íhaldsflokksinns

Hague verður þá ekki eftir allt saman minnst sem misheppnaðast leiðtoga breska Íhaldsflokksins:
IDS DUMPED BY TORIES
Iain Duncan Smith fékk á sig vantrauststillögu og var hún samþykkt í kvöld af 90 þingmönnum flokksins á móti 75 sem vildu hann áfram.
Þetta kemur ekkert sérstaklega á óvart. Portillo hefði átt að verða formaður flokksins, þá væri hann ekki í jafn hræðilegu ástandi og núna.
Maðurinn sem í fyrsta lagi vildi gera flokkinn electable og í öðru lagi játaði á sig "samkynhneigða reynslu" átti ekki upp á pallborðið hjá flokkfélögunum, þar sem meðalaldurinn er þriggja stafa tala.
Agust skrifaði kl. 18:32
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál

október 28, 2003

Geðveiki

Jólaskrautið er komið í Kringluna. Hvað er að fólki?? Þad er ennþá OKTÓBER fjandakornið! (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 13:42 | Comments (8)
Flokkun: SMS

október 25, 2003

Langir dagar

Ég sat út Aðgerðagreiningartímann í dag. Var að fyllast af svefngalsa, þannig ég tók mig til að útbjó myrkraherbergi þegar ég kom heim og eyddi svo luganum úr deginum í að stækka myndir (það sem flestir kalla að framkalla). Það er alltaf gaman.
Náði ekki að klára Akureyrarmyndirnar, þannig ég vona að það vinnist einhver tími í það á sunnudaginn.
Aftur á móti er ég að fara í fyrramálið að vinna sjávarútvegsfræðiverkefni. Skil í vikunni. Nóg að gera.
Horfði á Idolið með Þóri og Siggu í kvöld. Við entumst ekki til að horfa á allan þáttinn. Held ég þurfi ekkert að horfa á þá þætti meira fram að lokasprettinum.
Púff, ég er búinn að vera vakandi í tæpa tvo sólarhringa og er alveg orðinn stjarfur. Góða nótt.
Agust skrifaði kl. 1:17
Flokkun: Daglegt líf

október 24, 2003

Rock and Roll All Night

Var að prenta út forsíðuna á heimadæmið í Aðgerðagreiningu og þar með er það tilbúið. Byrjaði á því um níuleytið í gærkvöldi.
Solver-dæmin í Excel voru tilbúin fyrir klukkan tíu og þá var bara eitt dæmi eftir. Og ég skildi hreinlega ekki bofs í því. Ég skildi ekki mikið meira klukkan fjögur í nótt en ég held að ég sé búinn að sjá ljósið. Það er eins gott því þetta dæmi var 7% dæmi á sjúkraprófinu síðast.
Ég þarf varla að taka það fram að prófið leggst alls ekki vel í mig. En það er svosem ennþá mánuður til stefnu, annað eins hefur nú gerst.

Það tekur því ekki að fara að sofa úr þessu, ætla að fara og skila verkefninu í tímanum klukkan átta. Sé svo til hvort ég sit út tímann til tíu. Miðað við hvað mér finnst ég græða á þessum fyrirlestratímum þá efast ég um það. Þetta fag lærir maður í dæmatímunum.

Uppfært: Ég var að skoða glærupakkann fyrir fyrirlesturinn á eftir. Ég eiginlega þori ekki öðru en að mæta. Ætla allavega að halda eins lengi út og ég næ að halda athygli.
Agust skrifaði kl. 6:35
Flokkun: Daglegt líf

október 23, 2003

Komment

Nú er ég búinn að setja inn kvóða, með aðstoð Einars Arnar, sem gerir manni kleift að fylgjast með nýjustu kommentunum hérna til hægri.
Ekki það að kommentakerfið er sama og ekkert notað af fólki... þetta verður samt til þess að fleiri kommenta.
Agust skrifaði kl. 15:36 | Comments (1)
Flokkun: Internetið

Jólafríið

Ég er búinn að vera að planleggja jólafríið í kvöld. Planið einsog það er núna hljóðar upp á ca. 60 þús. króna ferð um tvær flottar Evrópuborgir. Fer rétt fyrir jól, skoða skóla og fleira sniðugt, nýt menningar og ver jólunum í Aþennu, Grikklandi.
Flýg svo aftur á London og er þar tvær nætur/þrjá daga áður en ég flýg aftur heim.
Mér sýnist ég gæti komist af með gistingu í London fyrir 3.300 IKR, sem er betur sloppið en ég þorði að vona. Flugið Lon-Ath var dýrara en ég gerði ráð fyrir en þetta er farið að hljóma mjög spennandi og innan "skynsemis-verðs".
Þetta væri þá 11 daga ferðalag, færi rétt fyrir jól og kæmi rétt fyrir áramót.
Ef einhver vill lána mér íbúð til að búa í að langar til að koma með þá bendi ég á að ég les tölvupóstinn minn reglulega :-)

Og já, allar gagnlegar ábendingar eru auðvitað vel þegnar.
Þarna ætla ég að vera um jólin :-)
Agust skrifaði kl. 0:19 | Comments (2)
Flokkun: Daglegt líf

október 22, 2003

The Dear Leader

Mæli eindregið með þessari (löngu og) ágætu grein um "The Dear Leader": The Last Emperor
Ef eitthvað er að marka þessa grein (sem ég geng út frá að sé, þar sem hún birtist í New York Times Magazine) þá er Kim Jong Il e.t.v. ekki jafn sérvitur geðsjúklingur og maður hélt... eða jú, hann er bara (skv. greininni) betur upplýstur um stöðu mála. Og jú, hann hefur ekki verið þekktur fyrir t.d. að skjóta fólk sér til dundurs einsog sumir fellow einræðisherrar, nú eða leggja sér það til munns. Þess í stað sendir hann hvern sem honum dettur í hug í fangabúðir og drepur þúsundir fólks á ári úr hungri.
Agust skrifaði kl. 18:48 | Comments (2)
Flokkun: Stjórnmál

Traffic

Íslendingar í umferðarteppu er fyndið fyrirbæri út frá atferlisfræðilegu sjónarhorni. Ég sit í mínum bíl og fylgist með þessari óstýrilátu hjörð.
Auk þess hef ég úrvalsútsýni yfir sóunina á 102 Reykjavík. Þvílík synd.
Jafnframt leggur maður ekki í svona ferðalag milli klukkan fjögur og fimm öðruvísi en taka með sér kaffi og nesti helst líka :-) (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 16:59 | Comments (2)
Flokkun: SMS

október 21, 2003

Borgarastríðið heldur áfram

Senate Approves Ban on Abortion Procedure
Öldungadeildin bandaríska samþykkti með 64 atkvæðum gagn 34 að banna fóstureyðingar með vissri aðferð. Áður hafði fulltrúadeildin samþykkt lagafrumvarpið með 281 atkvæði gegn 142. Þetta eru fóstureyðingar sem eiga sér stað á 2. eða 3. þriðjungi meðgöngu, þegar venjuleg fóstureyðing getur ekki átt sér stað.

Slíkar fóstureyðingar eru reyndar gjarnan notaðar af andstæðingum valréttar kvenna í Bandaríkjunum, því þær eru - óneitanlega - "subbulegar" og myndir af þeim vekja óhug fólks. Auðvitað er ekki spurt um rökin sem lágu að baki því að fóstureyðingin var framkvæmd. Slíkt fellur ekki að þeirra propoganda.

Að því leytinu til væri sjálfsagt ágætt að þessi aðferð yrði bönnuð nema heilsa móður lægi við, því annars er hún í sjálfu sér gjörsamlega óþörf í praxís. Aftur á móti gengur þetta nýsamþykkta lagafrumvarp út á að aðferðin er algjörlega bönnuð. Punktur.

Orðalagið er annað sem menn óttast. Í landi lögfræðinganna er nefnilega yfirleitt hægt að snúa út öllu og skrumskæla allt. Lagaframvarpið er sagt vera þannig orðað að þeir sem standa vörð um réttinn til fóstureyðinga óttast að lögunum verði beitt gegn öðrum (löglegum) aðferðum við fóstureyðingu.

En það væri þá bara bónus fyrir hina sanntrúuðu, ekki satt.

Að sjálfsögðu snýst þetta líka að miklu leyti um það að þarna er í fyrsta skiptið í 30 ár verið að setja lög sem skerða rétt kvenna til fóstureyðinga. Ef það væri heilbrigði kvenna eða mannslífin sem vöktu fyrir þeim sem fengu frumvarpið í gegn, tæki það að sjálfsögðu tillit til þess að aðferðin væri heimiluð þegar heilsa móðurinnar væri í hættu. Engar slíkar undantekningar eru í frumvarpinu enda í fyrsta lagi þessari aðferð sjaldnast beitt nema þegar heilsa móðurinnar er í húfi og í öðru lagi er frumvarpið lagt fram af þeim sem vilja banna fóstureyðingar, punktur.

Aðferðin sem um ræðir fellst í því að meðgangan er komin svo langt á leið að ekki er hægt að eyða fóstrinu nema að "[the] fetus is partially delivered before being killed", svo ég vitni í Washington Post.

Nú veit ég ekki hvert hlutfallið er í Bandaríkjunum (eða almennt séð) en ef ég m.v. þær tölur sem ég hef frá Hagstofunni hérna heima þá eru 3-4% fóstureyðinga framkvæmdar á fyrri helmingi annars þriðjungs meðgöngu (13.-19. vika). Eftir 20 viku hafa verið framkvæmdar 1-2 fóstureyðingar á ári (sem nú eru samtals á tíunda hundrað).

Í borgarastríðinu vestra um fóstureyðingar hafa fylgjendur banns unnið þessar orrystu. Stríðið heldur áfram og mun halda áfram næstu áratugi. Þessi Economist-grein síðan í janúar s.l. gerir góða grein fyrir hvers vegna svo er.
Agust skrifaði kl. 23:43
Flokkun: Ameríka , Fóstureyðingar , Lög&réttur

Akureyri einn daginn, Uppsala þann næsta

Eftir frábæra Akureyrarferð fimmtudag og föstudag fór laugardagurinn í verkefnavinnu inn í skóla. Þegar ég kom svo heim um kvöldið var ég hálf druslulegur.
Um miðnættið byrjuðu svo herlegheitin. Til að gera langa sögu stutta fékk ég verstu ælupest sem ég hef nokkurn tímann fengið. Kastaði upp blóði í síðustu lotunni. Hélt svo að ég væri allur að skána um kvöldið en þá fékk ég þennan líka verk fyrir vinstra brjóstið. Næturlæknirinn kom og dreif mig inn á Borgarspítala. Þar var ég skoðaður í bak og fyrir en ekkert kom út úr því. Allavega ekkert alvarlegt, sem betur fer.
Mér finnst ég alveg búinn að fá minn skammt af krankheitum þetta árið - og gott betur!
Agust skrifaði kl. 22:46
Flokkun: Daglegt líf

október 17, 2003

Fróði

Ég var að koma úr fornbókabúðinni Fróða. Keypti 2 bækur. Þar spilaði kona á sjötugsaldri þungarokk í góðum fíl einsog Bubbi myndi segja. (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 16:28
Flokkun: SMS

Kaupvangsstræti

Hvernig datt mönnum í hug að hafa götuna svona bratta? Ég er alveg búinn! (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 16:22
Flokkun: SMS

október 16, 2003

Halló Akureyri - aftur

Nú er mannskapurinn orðinn vel léttur. Þetta er búið að vera alveg stórkostleg ferð. Nóg af bjór... skál! (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 21:51
Flokkun: SMS

Halló Akureyri

Akureyri skartar sínu fegursta í dag. Yndislegt haustveður og blankalogn. Sólin skín og við göngum á milli staða í stað þess að taka rútu. Nú erum við hjá ÚA og er boðið í mat á eftir, vonandi er mötuneytid gott:)
Ég ákvað að taka túristafílinginn til hins ítrasta og er í úlpu með myndavélina um hálsinn. Mér sem túrista finnst Akureyri fallegur bær. (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 10:59
Flokkun: SMS

Take-off

Allt tilbúið undir brottför. Skrítið að fara í flug og þurfa engan passa. Aldrei flogið innanlands áður, þetta verður spennandi. (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 7:45
Flokkun: SMS

október 15, 2003

Siðfræði umsátursmanna

Í gær var ég að lesa bók sem fór yfir ýmiskonar umsáturshernað og efnahagsþvinganir í sögulegu ljósi. Þar var m.a. velt upp hvaða siðfræðilögmál giltu á Biblíutímanum varðandi umsátur borga og hvernig menn ættu að fara með íbúana þegar borgarbúar gæfust loks upp eða umsátursmenn kæmust inn fyrir borgarmúrana. Þar vitnaði höfundur í 5. Mósebók. Þegar hún er skoðuð í íslenskri útgáfu hljómar þessi handbók í umsátri svona (20. kafli):
10. Þegar þú býst til að herja á borg, þá skalt þú bjóða henni frið.
11. Og ef hún veitir friðsamleg andsvör og lýkur upp fyrir þér, þá skal allur lýðurinn, sem í henni finnst, vera þér ánauðugur og þjóna þér.
12. En vilji hún ekki gjöra frið við þig, heldur eiga ófrið við þig, þá skalt þú setjast um hana,
13. og þegar Drottinn Guð þinn gefur hana í hendur þér, skalt þú deyða með sverðseggjum allt karlkyn, sem í henni er,
14. en konum, börnum og fénaði og öllu, sem er í borginni, öllu herfanginu, mátt þú ræna handa þér og neyta herfangs óvina þinna, þess er Drottinn Guð þinn gefur þér.
15. Svo skalt þú fara með allar þær borgir, sem eru mjög í fjarska við þig og ekki eru af borgum þessara þjóða.
16. En í borgum þessara þjóða, sem Drottinn Guð þinn gefur þér til eignar, skalt þú enga mannssál láta lífi halda.
17. Miklu fremur skalt þú gjöreyða þeim: Hetítum, Amorítum, Kanaanítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, eins og Drottinn Guð þinn hefir fyrir þig lagt,
18. til þess að þeir kenni yður ekki að taka upp allar þær svívirðingar, er þeir hafa í frammi haft guðum sínum til vegsemdar, og þér syndgið gegn Drottni Guði yðar.

19. Þegar þú verður að sitja lengi um einhverja borg til þess að taka hana herskildi, þá skalt þú ekki spilla trjám hennar með því að bera að þeim exi, því að þú getur etið af þeim aldinin, og þú skalt ekki höggva þau, því að hvort munu tré merkurinnar vera menn, svo að þau þurfi að vera í umsát þinni?
20. Þau tré ein, er þú veist að eigi bera æt aldin, þeim mátt þú spilla og höggva þau til þess að reisa úr þeim hervirki gegn borg þeirri, er á í ófriði við þig, uns hún fellur.
Þessar reglur virðast að miklu leyti enn í gildi í landinu helga, svona ef út í það er farið.
Agust skrifaði kl. 17:46 | Comments (1)
Flokkun: Heimspeki

Randver

Um helgina eignaðist ég nýjan geisladisk. Nýútkominn safndisk með írsk-þjóðlaga/kántrísveitinni Randver. Það væri svosem ekki til sérstakrar bókunar færandi, því þjóðlagadiskur er svosem ekkert óvanaleg viðbót við geisladiskasafnið mitt. En tilefni þessara geisladiskakaupa er þó óvenjulegt.

Diskurinn er tileinkaður minningu Guðmundar Sveinssonar heitins, sem var hluti af hljómsveitinni þegar hún starfaði 1975-78. Guðmundur kenndi mér í grunnskóla í rúma tvo vetur, þar til hann lést 1995, tæplega fimmtugur að aldri.
Guðmundur var þeim sem hann kenndi mjög kær og hafði mótandi áhrif á nemendur sína, þannig var hans persóna. Sannarlega dæmi um kennara sem eru alltof sjaldgæfir. Þegar tók að vora fyrsta veturinn sem hann kenndi mér greindist hann með hvítblæði, sem hann svo lést úr tveimur árum síðar. Að fylgjast með baráttu einhvers sem maður lítur upp til við svona illvægan sjúkdóm hefur áhrif á mann þegar maður er 11-13 ára.

Gaman er að heyra útgáfu Randversmanna af Black Jack Davey ("Sagan okkar", 1975) með The Incredible String Band. Annars eru flest lögin írsk eða bresk þjóðlög (nema kantrílögin auðvitað) en íslenskur texti eftir Ellert Borgar Þorvaldsson.
Agust skrifaði kl. 16:24
Flokkun: Daglegt líf

október 14, 2003

AIDS, Afríka og Bush

Stundum langar mann til að birta greinar í heild sinni. Vegna höfundaréttar er það því miður ekki hægt.
Á miðvikudaginn í síðustu viku skrifaði Nicholas Kristof pistil í New York Times, When Prudery Kills. Hann er opinn til lestrar þangað til á morgun en NYT lokar því miður öllu efni sínu fyrir öðrum en áskrifendum viku eftir að það er birt.

Kristof fjallar að þessu sinni um baráttuna gegn eyðni (aðallega í Afríku) og gefur tóninn í fyrstu setningu: "Here on the ground where President Bush's big anti-AIDS program is supposed to unfold, it looks as if the program was drafted more to win American votes than to save African lives." og vitnar í orð leiðtoga hins frjálsa heims sem sagði sjálfur í ræðu, að við hefðum tækifæri til að bjarga milljónum mannslífa frá hræðilegum sjúkdómi. En þrátt fyrir fögur orð er lítið að gerast.
Kristof vitnar í Jeffrey Sachs, sem segir að eftir þrjú ár í embætti sé Bush-stjórnin búin að gera nánast ekkert.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 19:34
Flokkun: Afríka , Development , Mannlíf á jörðu , Meðmæli , Stjórnmál

Qaddafi í stuði

Einsog ég minntist á um daginn var Qaddafi yfirlýsingaglaður á dögunum (svosem ekkert nýtt en samt...) og lýsti því m.a. yfir að arabískur nationalismi væri dauður.
Hið stórgóða MEMRI hefur núna þýtt og birt útdrátt úr þessari ræðu karlsins, Al-Qaddafi: 'Libya Should Quit the Arab League... Women Must be Trained to Booby-Trap Cars, Houses, Luggage, and Children's Toys'
Þar húðskammar hann m.a. Egypta, hvetur Araba að hunskast heim til sín, boðar samstöðu Afríkuríkja og biður bræður sína í Máritaníu, Djibouti, Sómalíu og á Comoro eyjum afsökunar á að hafa dregið þá inn í Arababandalagið.
"Today, [the Arabs] curse us and attack us. If we were not an Arab country, they would not be cursing us. Have you heard of an Arab paper, or Arab ruler, or Arab radio station [discussing] a country called Lesotho? Never! It doesn't matter what happens in a country like this, they do not talk about it. Leave us alone! Are you attacking us because we are Arabs? We're fed up. We are Africans. Treat us like Africans; treat us like black Negroes; we'll stay away from you, and you'll stay away from us. Don't talk to us and we won't talk to you. What is the connection between Libya and Kuwait? One country is situated in Africa and the other in Asia. We will not meet again until Judgment Day, and then one of us will go to Paradise and the other will go to Hell…"
Að lokum segir í þessum útdrætti:
"The war changed and moved from the battlefields we learned about in books, into the homes. In the past, soldiers fought soldiers, and today soldiers fight women and children in Baghdad and Gaza… As long as the woman is home and she is the one targeted, she must be trained… The woman must be trained how to fight within the home, how to put together an explosive belt and blow herself up together with the enemy soldiers. Anyone who has a car must make preparations and know how to booby trap it and turn it into a car bomb… In the past they would say [to us in Libya]: 'Why do you train the women? It is not logical that the woman will go out to the battlefield…' Today the face of the battle has changed, and the arenas of fighting have moved to the place where the woman is…

"We must train the women how to booby-trap the car and blow it up among the enemy, how to blow up the house so it falls on the enemy soldiers. Traps must be prepared. You have seen how [the enemy] check[s] luggage. These suitcases should be rigged so that when they open them they blow up. The women must be taught how to booby-trap their clothes closets, booby-trap their purses, booby-trap their shoes, booby-trap the children's toys, so they blow up on the enemy soldiers."
Þá vitum við það.
Agust skrifaði kl. 1:31
Flokkun: Afríka , Meðmæli , Mið-Austurlönd

Í fréttum er þetta helst

Maður veit satt að segja ekki hvað maður á að halda um þetta nýframkomna friðarplan. Einhvern veginn finnst manni þó að þetta geti í besta lagi verið hálfgerður óskalisti, einsog sumir hafa kallað það.

Mótmælunum í Bólivíu er ágætlega gerð myndræn skil á BBC-vefnum.

Lýbíustjórn virðist eitthvað vera að draga hælana í UTA 772 málinu. Það snýst um franska flugvél sem sprengd var yfir Níger árið 1989, að því að talið er af hryðjuverkamönnum gengdum Lýbíustjórn. Lýbíumenn hafa þó aldrei viðurkennt það. Árið 1999 náðist þó samkomulag um bætur sem Lýbía greiddi ættingjum þeirra sem fórust. Eftir nýlegt samkomulag við ættingja þeirra sem létust þegar flugvél Pan Am var sprengd yfir Lockerbie á Skotlandi vildu Frakkar að samið yrði upp á nýtt. Sett voru tímamörk, sem runnu út á laugardaginn. Lýbíumenn boðuðu þó fulltrúa ættingjanna til Trípólí í dag og þykir það jákvætt merki. Menn eru þó mis bjartsýnir á framhaldið.

Rauði krossinn og fleiri mikilsmetnir aðilar í Bandaríkjunum eru nú farnir að gagnrýna meðferð fanga í Guantanamo herstöðinni. Það þarf heldur engan lögspeking til að sjá hvernig Genfarsáttmálinn er þverbrotinn, einsog ég hef áður bent á.
Agust skrifaði kl. 0:55
Flokkun: Fréttir

október 13, 2003

Punktar

Nokkrir punktar úr eigin lífi:
  • Ég mætti á minn fyrsta hópafund í Amnesty í síðustu viku.
  • Það var áhugavert en þetta er ekki eitthvað sem maður gerir að hobbýi. Þá á ég við að starfið er ekki það krefjandi/tímafrekt.
  • Á miðvikudaginn fór ég í eitt allra, allra erfiðasta próf sem ég hef farið í - í Alþjóðavæðingu.
  • Þetta próf og lesna stærðfræðin í stúdentsprófunum í Verzló.
  • Ég vona að ég fái a.m.k. helmingi hærra í prófinu í síðustu viku en í því prófi.
  • En ég hef aldrei áður vitað um að það taki fólk 2 1/2 tíma að svara 13 krossaspurningum.
  • Ég hef heldur aldrei tekið próf þar sem ég bæði merkti á einu stað við alla möguleikana og engan á öðrum - og fæ líklegast rétt fyrir báðar spurningarnar (eftir því sem ég kemst næst).
  • Á föstudaginn sátum við Helga Björt í nokkra klukkutíma að fórum yfir verkefni. Það var stórskemmtilegt.
  • Ég gæti alveg hugsað mér að verða kennari þegar ég verð orðinn stór.
  • Í hádeginu í dag borðaði ég á Grænum kosti með Siggu. Það er ágætur staður svona inn á milli.
  • Í kvöld fór ég í Bókhlöðuna og átti mjög pródúktívan klukkutíma.
  • Mér er meinilla við nýja Gegni. Þetta er ljóta helv. draslið!
  • Ég finn aldrei neitt í þessu skaðræðis forriti. Finn það þó í gamla kerfinu - ef það er til á annað borð (þ.e.a.s. það sem ég leita að).
  • Ég þarf virkilega að drífa í því að senda lista á vinkonur mínar á bókasafninu í HR til að fá millisafnalán.
  • Í kvöld leituðum við Þórir að mat í miðbæ Reykjavíkur á viðráðanlegu verði.
  • Við enduðum á Vegamótum, þangað sem Þórir hálfpartinn dró mig inn.
  • Mér finnst að draga í þátíð ætti að ritast dróg með g-i.
  • Merkilegt nokk, þá var maturinn mjög góður. Ég fékk mér rauðsprettu með linsubaunasósu, hrísgrjónum og grænmeti.
  • Fiskmáltíð fyrir 1.100 kr. er eitthvað sem maður er ekki vanur á Íslandi.
  • Ég var svo ánægður að ég brosti hringinn þegar ég fór út. Ég elska að fá góðan fisk :-)
  • Ég fer til Akureyrar á fimmtudaginn og kem aftur á föstudaginn.
  • Ég fer með flugvél og verður þetta fyrsta innanlandsflugferðin mín.
  • Tilgangur ferðarinnar: skoða sjávarútvegsfyrirtæki og sækja fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri.
  • Þetta er ekki eins óáhugavert og þetta hljómar :)
  • Og það sem meira er, ég fer ásamt ca. 50 manns úr HR, því þetta er partur af sjávarútvegsfræðikúrsinum.
Where even Richard Nixon has got soul...
Agust skrifaði kl. 23:32 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

október 09, 2003

Gov. Schwarzenegger

Það verður seint sagt að leiðari New York Times fagni kjöri Arnies í Kaliforníu.
California's system is actually the worst of all evils. The voters micromanage the state budget through one referendum after another. But they are generally deprived of real choice in picking state officials. Right-wing Republicans have been able to control their party's nominating process, forcing a moderate-to-liberal populace to accept whatever slate the Democrats deign to offer. Mr. Schwarzenegger, a moderate-to-liberal Republican, would have had a much tougher time in a primary than he did in this race, where he was able to insert himself onto the ballot without the party's screening.
Það er ekki laust við að maður skemmti sér yfir þessum farsa öllum.
Agust skrifaði kl. 16:50 | Comments (3)
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál

október 07, 2003

Dr. Mahathir

Nú er Dr. Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu að hætta (nánar tiltekið í lok þessa mánaðar). BBC lítur á efnahagslega arflegð hans: Mahathir's economic legacy
Hann hefur stjórnað með harðri hendi í 22 ár, e.t.v. ekki eins harðri og sannur einræðisherra, en hann hefur ekki notað neina silkihanska. Hann hefur hinsvegar, og það verður ekki tekið af honum, tekist að gera Malasíu að efnahagslegu success-i, þrátt fyrir Asíukreppuna undir lok síðasta áratugar.
Dr. Mahathir hefur verið þekktur fyrir ýmis furðuleg komment. Hann t.d. kallaði Asíukreppuna "samsæri Gyðinga" og hefur talað gegn hnattvæðingu - þrátt fyrir að Malasía sé með þeim löndum sem eru einna besta dæmið um ávöxt hnattvæðingarinnar. Hann setti líka óvenjumiklar hömlur á fjármagnsflutning til og frá landinu eftir Asíukreppuna og skuldir landsins eru víst George Soros að kenna, ekki massívri uppbyggingu og skuldasöfnun ríkisstjórnarinnar.
Eftirmaður Dr. Mahathirs er aðstoðarforsætisráðherrann, Abdúllah bin Ahmad Badawi.
Agust skrifaði kl. 14:10
Flokkun: Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál

október 06, 2003

Vestur-afrísk olía

Nú hefur olíuleiðslan frá Tsjad til Atlantshafs gegnum Kamerún verið opnuð (sjá frétt al Jazeera). Alþjóðabankinn stendur að þessari fjárfestingu og segist bankinn ætla að tryggja að arðurinn af leiðslunni renni til fólksins, ekki spilltra pólitíkusa og embættismanna. Reyndar las ég einhvers staðar um daginn að menn í Suður-Tsjad væru strax farnir að kvarta undan því að peningarnir skiluðu sér ekki í menntun og infrastrúktúr heldur hyrfi í kerfinu. Við skulum samt sjá hvað setur.
Skv. fréttinni er áætlað að olíuframleiðsla V-Afríkuríkja geti orðið allt að sex milljónir tunna á dag á næsta áratug en núverandi framleiðsla er 3,5 milljón tunna á dag (bpd). Til samanburðar voru Írakar að framleiða 2,5 milljón bpd fyrir innrásina og Saúdar framleiða í dag rúmlega 8 milljónir bpd (ef ég man tölurnar rétt).
ExxonMobile holds a 40% stake in the project, with Malaysia's Petronas holding 35% and ChevronTexaco 25%.
Alþjóðabankinn leggur til 3% fjárfestingarinnar og hefur, einsog áður sagði, lagt mikla áherslu á að fjármagnið sem rennur til landanna tveggja feri í verkefni fyrir almenning en ekki fáa útvalda.
Other financiers include the European Investment Bank, US Export-Import Bank, the French export credit agency COFACE and a group of private banks led by Dutch ABN-Amro and Credit Agricole Indosuez.
Áætlanir gera ráð fyrir að Tsjad geti hagnast um allt að 2 milljarða dala á leiðslunni og olíuvinnslunni í suðurhluta landsins á næstu 25 árum. Kamerúnar munu fá um 500 milljónir dala á jafnlöngum tíma.
Verkefnið hefur hinsvegar verið gagnrýnt fyrir m.a. að það stofni regnskógum í Kamerún í hættu og lífi Pygmía á svæðinu.

Í dag framleiðir Kamerún 77 þús. bpd en Tsjad er að hefja framleiðslu sína núna. Búið er að fjárfesta fyrir tæpa fjóra milljarða dala í olíuiðnaði í Tsjad og olíuforði landsins er talinn um einn milljarður tunna. Það er tvöfaldur forði Miðbaugs-Guineu en smáræði í samanburði við stóru olíuframleiðsluríkin.
Olíuframleiðsla fer fljótlega að hefjast í Sao Tome og fyrir er 300 þús. bpd framleiðsla í Gabon og tæplega 200 þús. bpd framleiðsla í Miðbaugs-Guineu.

Sao Tome er einn heitasti staðurinn í olíubransanum í dag. Eyríkið rataði í fréttir betri fréttastofa í sumar þegar nokkuð einkennilegt valdarán var framið þar. Þeir sem rændu völdum hættu nefnilega við og forsetinn, sem kosinn var í lýðræðislegum kosningum og er að því er virðist maður með framtíðarsýn, fékk aftur völdin. Fyrir áhugafólk um afrísk valdarán var þetta nokkuð spes á að horfa.

Ég skrifaði lítið eitt um litlu olíuríkin í V-Afríku fyrir nokkrum mánuðum: Petrocrats.
Agust skrifaði kl. 23:55
Flokkun: Afríka , Development , Hagfræði , Stjórnmál , Viðskipti

Misskipting tekna - margslungnari en margur heldur

Í grein sem birtist í Economist í byrjun september, Would you like your class war shaken or stirred, sir?, er fjallað um misskiptingu tekna í Bandaríkjunum og þær settar í samhengi við önnur lönd.
Greininni fylgir ágæt mynd, sem segir í sjálfu sér flest það sem haldið er fram í greininni. Þar er reiknað hlutfall tekna þess tíundahluta þjóðarinnar sem tekjuhæstur er af miðgildis tekjum og sama hlutfall reiknað m.v. þann tíundahluta sem tekjulægstur er.

Í Bandaríkjunum er hlutfallið milli miðgildistekna og tekna tekjuhæsta tíundahlutans lang hæst. Í samaburðarlöndunum er þetta hlutfall lægst í Svíþjóð. Þar hefur tækjulægsti tíundahlutinn það hinsvegar einna verst hlutfallslega, Bretland, Ástralíu og Bandaríkin eru á svipuðu róli hvað varðar hlutfall tekna þeirra tekjulægstu af miðgildistekjum, vel undir helmingi. Hlutfallslega tekjuhæstu "fátæklingarnir" eru í Sviss, Noregi og Belgíu.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 19:04 | TrackBack
Flokkun: Ameríka , Hagfræði , Meðmæli , Stjórnmál

október 05, 2003

Arabískur nationalismi dauður

Svo segir a.m.k. Qaddafi* skv. þessari frétt al-Jazeera: Qadhafi declares Arab nationalism dead.
Hann segist líka líta til Afríkuþjóða frekar en frænda sinna í Arababandalaginu með stuðning í framtíðinni. Einsog menn muna átti colonelinn snarpan orðastað við Abdúllah prins síðast þegar Arababandalagið fundaði. Khaddafi er eitt af því sem ég hef kynnt mér skammarleg illa í sögu Araba.

* Gaddafi er rangur framburður, Khaddafi getur gengið en kh verður þá að vera kokhljóð. Því er í raun besta lausnin að skrifa Q.
Svo bauð ég Arafat,
en það var bara plat.
Og Gaddafi
og Kómeini
þeir komu hér í frí.
Í tækinu:
Sex Pistols: Anarky in the UK, God Save the Queen og My Way
Agust skrifaði kl. 1:51
Flokkun: Mið-Austurlönd

október 04, 2003

Kakan þín og jólin

Einn stór kostur við að lesa heima hjá ömmu og afa er að taka sér pásu og fá sér heimabakaða jólaköku með kaffinu :-) (Sent með SMS)

sms skrifaði kl. 17:02
Flokkun: SMS

október 03, 2003

Accountancy Shanty

Var að horfa á yndislegu "aukamyndina" með Meaning Of Life, Crimson Permanent Assurance. Stöð 2 er einmitt núna að sýna Meaning Of Life. Ég ætla nú reyndar ekki að horfa á hana núna, á hana hvort eð er á vídjói.

"Endurskoðendalagið" er hinsvegar svo skemmtilegt að ég ætla að birta það hérna (án leyfi höfundar):
It's fun to charter an accountant
And sail the wide accountancy,
To find, explore the funds offshore
And skirt the shoals of bankruptcy.

It can be manly in insurance.
We'll up your premium semi-annually.
It's all tax-deductible.
We're fairly incorruptible.
We're sailing on the wide accountancy!
Nú ert svo "Every Sperm Is Sacred"-atriðið. Allir syngja með!!
Agust skrifaði kl. 23:30
Flokkun: Menning

Sverrir les vitlaust eina ferðina enn

Hleðsla dagsins er áhugaverð. Þar fjallar Sverrir Jakobsson um grein Fouad Ajami í Foreign Policy.
Hann rakkar niður greinina. Ég verð hinsvegar að segja að ég greinilega skildi ekki greinina á sama hátt og SJ. Hann segir t.d. Ajami ekkert skilja í hatri Jórdana á Bandaríkjunum. Ef maður athugar hinsvegar texta Ajamis stendur þar:

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 19:46 | TrackBack
Flokkun: Mið-Austurlönd , Stjórnmál

Hafsteinn og Rommel

Stefán Einar.com skrifar um fund stjórnar SUS:
Hafsteinn Þór Hauksson stýrði sínum fyrsta stjórnarfundi með myndarbrag og hann er ekki ólíkur hershöfðingjanum Rommel í athöfnum, stöðugur foringi með yfirsýn yfir vígvöllinn. Hafsteinn væri góður á skriðdreka.
Þetta rataði inn á umræðu á Málefnin.com (mér var bent á þetta, annars legg ég ekki vana minn að skoða svona kjaftavefi). Ég sá mig nauðbeygðan til að svara þessu.

Svarið ætla ég einnig að birta hér:

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 18:31
Flokkun: Saga , Stjórnmál

október 02, 2003

Jerúsalem-múrinn

Fenced in, locked out: a people in the shadow of fortress Israel
Ég hvet alla til að lesa þessa grein í Independent, alla. Hún fjallar um múrinn sem Ísraelar eru að reisa og þær hörmulegu afleiðingar sem hann mun hafa í för með sér fyrir Palestinímenn, sem hafa það nógu andskoti skítt fyrir.

Tómas Friedman skrifar pistil í NYT í dag um Ísrael, Passions and Interests
It is time for Israel to use its overwhelming strength to take some initiative. The only people who can stop the suicide bombers are the Palestinians. They won't do it overnight and can't do it with a decimated Palestinian Authority. It can happen, though, if Israel works with a new Palestinian prime minister, makes tough demands but doesn't expect perfection overnight, doesn't let itself be goaded by Hamas into freezing everything, takes its own initiative to dismantle settlements and taps what is still there: Palestinian interest in going to [University of] Memphis, not just to heaven.
[...]
I know a vast majority of Israelis want a decent, normal society, but their ideologically driven leaders are lost in space, squandering their people's great strength rather than channeling it into creative options. And the Bush team, which should be acting as a reality check, has fallen so deep into the pocket of Ariel Sharon you can't even find it anymore.
Copyright 2003 The New York Times Company
Agust skrifaði kl. 18:16 | Comments (2)
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Gærdagurinn

Því miður lá síðan niðri í gær, þess vegna gat ég ekki komið þessu á framfæri:
  • Stjórn Heimdallar kom mér verulega á óvart með ákvörðun sinni. Ég hefði ALDREI trúað þessu upp á ákveðna menn innan stjórnarinnar. Hafði hreinlega meira álit á þeim.
  • Menn standa og falla með ákvörðunum sínum og skulu dæmdir af gjörum sínum. Ég missti gjörsamlega allt álit á ákveðnum mönnum í gær.
  • Ég sagði mig úr Flokknum um eitt leytið í gær.
  • Ég óska Bolla og félögum (og ekki síst Jóa stórvini mínum) til hamingju með "sigurinn". Verst að þau fengu ekki að njóta hans.
Þá er það komið fram.
Agust skrifaði kl. 17:05 | Comments (7)
Flokkun: Stjórnmál