nóvember 04, 2003

Svarti listinn

NRA, landsamtök áhugafólk um auknar skotárásir í Bandaríkjunum, birti nýverið 19 bls. svartan lista á netinu yfir fólk, samtök og fyrirtæki sem eru með "anti-gun" skoðanir eða stefnu.
Það varð til þess að samtök sem berjast fyrir byssueftirliti í Bandaríkjunum hófu að safna undirskriftum á netinu. Á tveimur vikum söfnuðust 25 þús. undirskriftir eftir tiltölulega litla umfjöllun um málið. Nú er takmarkið 50 þús. undirskriftir. Síðan þá hefur málið komist í fréttirnar og er því allt eins hægt að reikna með því að undirskriftunum fjölgi enn frekar.

Eftir að NRA birti listann sinn hafði Dustin Hoffman, leikarinn knái og smái, samband við samtökin og lýsti vonbrigðum sínum með að hafa ekki verið settur á listann þar sem hann sé ötull stuðningsmaður aukins byssueftirlits. Urðu samtökin við beiðni hans og bættu honum á listann.

Í frétt CNN hafði varaforseti NRA þetta að segja um málið:
Our members don't want to buy their songs, don't want to go to their movies, don't want to support their careers.
Nú eru að renna úr gildi lög sem voru sett af Clinton-stjórninni 1994 sem bönnuðu sölu "árásavopna". Stuðningsmenn laganna segja þau hafa gert bandarískar borgir öruggari en byssuglaðir harma hlutinn sinn og finnst það að sjálfsögðu sjálfsögð mannréttindi að fá að hleypa af 12 skotum á sekúndum. Enda hvernig eiga menn annars að geta veitt sér til matar - nú eða varið sig gagnvart Aröbum?
Agust skrifaði 04.11.03 14:39

Flokkun: Ameríka , Fréttir , Stjórnmál
Comments

Þú ert greinilega bara gyðingahatari! :-)

Már Örlygsson skrifaði 04.11.03 15:25

Af listanum að dæma sýnist mér að NRA-menn geti sjaldan farið í bíó með góðri samvisku. Og ekki geta þeir horft á Friends og borðað Ben&Jerry's á meðan. Aumingja þeir :)

Stella Soffía skrifaði 04.11.03 15:28

Það reyndar kom mér svolítið á óvart að sjá ekki fleiri nöfn þarna, þ.e.a.s. þekktra "vinstrimanna" í leikarastétt. Hvar er t.d. Warren Beatty eða Woody Allen? Nú eða allir hipparnir, söngvararnir. Hvar er Bob Dylan?

Og kannski hálf kaldhæðið að einum manni skuli vera sleppt á þessum lista: Michael Moore.

Ágúst skrifaði 05.11.03 16:15

ekki gleyma að þeir geta ekki verið í Levi's gallabuxum eða sent Hallmark kort eða horft á sjónvarp yfir höfuð, ég er viss um að Charlton gangi nú um í Levi's

ORRi skrifaði 06.11.03 12:52