nóvember 07, 2003

Stjórnarfar Mið-Austurlanda

BBC er með ágætis úttekt á stjórnarfari í ríkjum Mið-Austurlanda: How democratic is the Middle East?
Skil ekki hvers vegna Túnis, SAF og Bahrein er sleppt. Sérstaklega ekki að Bahrein sé sleppt, því þar hefur átt sér merkileg þróun síðustu ár. SAF er með stjórnarfyrirkomulag sem er nokkuð flókið en samt, hvers vegna að sleppa því. Túnis stendur oftast utan umræðunnar um Mið-Austurlönd en það er heldur engin afsökun að sleppa landinu í þessari úttekt. Að auki finnst mér textinn um Íran full mikil einföldun.
Nóg um það, þetta er ágætt fyrir þá sem hafa litla eða enga þekkingu á mismunandi stjórnarfari í ríkjum Mið-Austurlanda, því þarna er það reifað í stuttu og hnitmiðuðu máli.
Agust skrifaði 07.11.03 22:27

Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd