nóvember 13, 2003
Nine Inch Nails
Mikið er nú gott að flestir aka um á nagladekkjum í rigningunni.Guð forði okkur frá því að aka um á ónegldum. Það myndi valda fjöldaatvinnuleysi meðal vegavinnumanna!
Agust skrifaði 13.11.03 16:11
Flokkun: Ísland
Þetta er ótrúleg heimska. Í októberlok/nóvember kemur ALLTAF eins, tveggja eða þriggja daga snjótörn. Svo hverfur snjórinn strax og það snjóar ekki aftur fyrr en um 5. janúar. Fimmtugt fólk er að falla fyrir þessu trekk í trekk. 50 ár á Íslandi og það er ekki enn að kveikja! Hvað er að? Svo lendir maður hvort eð er svo sjaldan í vandamálum innan Reykjavíkur... nema maður hætti sér í Gravarvog eða Breiðholt...
ORRi skrifaði 14.11.03 13:47Jamm. Svo virðist fólk heldur ekki átta sig á því að það er aksjúlí mjög lítill ávinningur í nöglunum þessa örfáu daga sem það er "vetrarfærð", því umferðin gengur hvort eð er hægar þannig maður bara fer varlega.
Aðalgöturnar eru líka allar orðnar auðar með það sama. Einu vandamálin eru í efri byggðum og botnlöngum. Sérstaklega þegar það kyngir niður snjó yfir nótt eða yfir miðjan daginn áður en fólk kemur heim úr vinnunni. Þá eru tveir möguleikar í stöðunni a) skilja bílinn eftir neðst í brekkunni eða b)bakka upp helv. brekkuna.
Vandamálið er nefnilega að akstur þessa örfáu daga krefst ögn meiri einbeitingar og ögn meiri ökuhæfileika. Og jú, ef maður passar sig ekki þá getur maður endað úti í kanti. Þá getur maður sjálfum sér um kennt að aka einsog vitleysingur.
Ég hef einu sinni á fimm naglalausum vetrum lent í að dúndra á kant með þeim afleiðingum að ég skemmdi felguna (skipti reyndar ekki um fyrr en nokkrum vikum síðar, hún var ekki skakkari en það.
Svo er það sem fólk virðist heldur ekki átta sig á, einmitt sérstaklega ekki sami hópur og Orri talar um, og það er það að það er hættulegra að aka um í rigningu á nagladekkjum!
Hliðarskrið og bremsuvegalengdin er eitthvað um 10% verri á nöglum en ónegldum. Og hvort er nú oftar ekið á rennblautri götu eða í fljúgandi hálka á Íslandi?
Ég leyfi ökumönnum að svara (ekki) þessari rhetórísku spurningu.
Ágúst skrifaði 14.11.03 16:13Mikið finnst mér fyndið að þú skulir vera með fyrirsögnina "Nine Inch Nails".
Svan skrifaði 15.11.03 07:03Þetta er eitt af því athygliverða við að búa í útlöndum. Nú bý ég t.d. á Nýja-Englandi, þar sem koma alvöru vetur. Svona vetur eins og við munum eftir þegar við vorum krakkar. Þar sem maður þarf stundum að moka sig út úr innkeyrslunni.
Þrátt fyrir alvöru snjóalög, þá eru vetrardekk ekki mikið í tísku. Hér keyra flestir um á „heilsársdekkjum“. Eru þau yfir höfuð notuð á Íslandi? Ég veit ekki það mikið um bíla á Íslandi, enda átti ég ekki almennilega bíla þegar ég bjó þar. Hér eru nagladekk bönnuð. Að vísu þýðir þetta að þessir stóru, afturhjóladrifnu bandarísku flekar liggja eins og hráviði í vegarkantinum þegar maður keyrir af stað á morgnana, þessa fyrstu daga sem snjóinn er að kyngja niður.
En að öðru leyti virðist þetta ekki valda neinum vandræðum. Hví? Jú, hér keyrir fólk miklum mun hægar en á Íslandi. Eða ætti ég að segja Reykjavík? Ekki man ég eftir jafn miklum glannaskap í umferðinni á Akureyri, þegar ég bjó þar. Og þó hafa þeir Gilið.
Að vísu er ekki einsleitt að keyra um í Bandaríkjunum. Til dæmis svipar ökumönnum í Borg Englanna mjög til ökumanna á Íslandi. Sömuleiðis mörgum í Nýju Jórvík. Og víðar. En víðast hvar hefur mér sýnst að ökufarið á íbúunum sé einfaldlega skynsamara en heima á Klakanum. Þetta er líklega draumaland Óla Þórðar (er hann annars ekki enn furstinn í Umferðarráði?)
Niðurstaða mín í þessu morgunspjalli, á sunnudegi, er því að greinarhöfundur hefur lög að mæla. Nagladekk bjarga engu, einkum ef menn eru úti að aka í umferðinni.
Hörður Helgi Helgason skrifaði 16.11.03 16:25