desember 31, 2003

Peningabál og typpamælingar

Mikið lifandi skelfing finnast mér þessar sprengingar leiðinlegar. Fólk notar sannarlega tækifærið þegar besta tækifæri ársins til að brenna peningar - í orðsins fyllstu merkingu - býðst.

Á Kanarí-eyjum, þar sem ég var flest áramót æskuáranna var þessu öðruvísi farið. Þar gat maður keypt mér kínverja í öllum stærðum og gerðum og alls konar blys og ljós til að hafa á jörðu niðri. Þar voru það hinsvegar hótel og verslunarmiðstöðvar sem héldu flugeldasýningar um miðnættið. Þetta var allt skipulagt þannig að maður gat horft á hverju sýninguna á fætur annarri án þess að missa af nokkru, því sýningarnar voru skipulagðar þannig.

Svo varð allt vitlaust að Spánverjarnir óku um bæinn hálfir út um gluggann flautandi og gólandi og á götum úti deildi fólk freyðivíni og öðru saman. Það var skemmtilegt. Sérstaklega þar sem ég var ekki orðinn afhuga flugeldum þá.

Hérna heima er þetta hinsvegar ekki aðeins stærsta peningabál hinna skuldugu heimila (ef eitthvað er að marka umræðuna), heldur líka ein stærsta typpamælingarkeppni ársins. Fjölskyldufeður ýmist standa í keppni við nágrannann eða í fjölskylduboðum eru flugeldar geymdir inn í bíl eða kompu og stærri og stærri bombur dregnar fram eftir því hvað Jói frændi eða Gunni mágur draga fram úr sínu pokahorni.

Krakkarnir hafa flestir gaman að þessu og er það stærsti plúsinn við þessa vitleysu alla saman.

En þeir sem taka ekki þátt eru bara fúlir á móti. Þetta er, að ég örugglega held, þriðja árið sem ég kveiki ekki í einum einasta flugeldi. Árið þar áður áskotnaðist fjölskyldunni stærðar tívólíterta á stærð við ísskáp sem ég kveikti í og varð mini flugeldasýning í garðinum þá strax eftir kvöldmat, svo þetta hyrfi ekki allt í flugeldahafið á himnum þegar allir fara út að freta sínu dóti eftir Skaupið. Jújú, það var ágætt en ekki er ég tilbúinn að eyða krónu í þetta fyrir sjálfan mig.

Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir það liðna.
ÁF
Agust skrifaði kl. 23:57 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

desember 29, 2003

Heavy fighting on the northern front

Skondið þegar snjór vetrarins kemur, líkt og í dag, eða massívur stormur gengur yfir landið. Fréttastofurnar senda menn á vettvang. Sjónvarpsfréttirnar sýna fréttamenn í kraftgöllunum sínum uppi á Hellisheiði, hringinn í kringum landið og svo myndbrot af spólandi fólksbílum og fólki að reyna að komast heim til sín ofarlega í Breiðholtinu.

Dæmigerð útvarpsfrétt:

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 18:47 | Comments (2)
Flokkun: Ísland

desember 27, 2003

Fellowship of the Ring

Ég horfði á fyrsta hluta þrílógíu Hringadrottinssögu áðan, þegar Fellowship of the Ring var sýnd á Stöð 2.
Ég verð að segja að ég bjóst við meiru. Nei, ekki segja að það sé ekki að marka að ég sá þetta ekki á breiðtjaldi og nei, ekki segja að ég hafi ekki fílað hana bara vegna þess að þetta er ævintýri. Tæknibrellurnar ollu mér eiginlega vonbrigðum, var búinn að búast við miklu flottari flugeldasýningu.
Þar sem ég vissi ekkert um söguna fyrir varð ég algjörlega að reiða mig á það sem myndin sagði mér. Ég hafði líka litlu systur mér til halds og trausts, enda er hún mun betri en bróðir hennar í að setja sig inn í svona ævintýralegan söguþráð. Ég átti í mestu vandræðum að átta mig á ýmsu í sögunni. Okey, það hjálpaði ekki að ég dottaði á milli þess að Fróði slasaðist og þangað til að föruneytið var myndað, en svona basic atriði einsog hvað sé málið með Gandálf og fullt af detailum sem ég var engan veginn að fatta almennilega. Kannski er ég bara svona tregur.
Ég bara SKIL EKKI hvernig fólk getur gjörsamlega misst sig yfir þessu! Tala ekki um á þeim tímapunkti sem það hafði bara séð fyrsta hlutann.
Vona innilega að síðustu tveir hlutarnir slái þeim fyrsta við.

Og já, bara svo ég endurtaki það aftur: Ég SKIL EKKI hvernig fólk getur gjörsamlega misst sig yfir þessu!
En smekkur fólks er misjafn - sem betur fer.
Agust skrifaði kl. 1:14 | Comments (8)
Flokkun: Menning

desember 26, 2003

So this is Christmas

...and what have you done?

Er ég eini maðurinn sem hef ALLTAF brýnt erindi 10-11 þessa 3-4 daga sem sólarhringsbúðirnar eru lokaðar? Og alltaf þarf maður að fatta hvað mann nauðsynlega vantar klukkutíma eftir að það lokar.

Ef ég myndi lesa allar bækurnar sem ég ætlaði að lesa í jólafríinu, þá þyrfti ég líklegast að lesa 1000 bls. á dag! Það er a.m.k. fimmfalt meira en ég legg á mig og með einföldum hugarreikningi fæst að ég muni því í besta falli lesi 1/5 af því sem ég þyrfti að komast yfir. Þetta er svona um öll jól hjá mér, í öllum fríum ef út í það er farið. Enn ein góð rök með þeirri kenningu minni að bækur eigi almennt ekki að vera lengri en 200 bls. (og kosta undir 2000 kr), nema uppflettirit.

Fyrir nokkrum vikum hreinsaði ég náttborðið mitt. Samt taldi ég í gærkvöldi 7 bækur, eina orðabók, 4 tímarit, stílabók og penna (auk lampa og vatnsglass) á því. Undir því voru svo 2 bækur til viðbótar og geislaspilari. Er ég sóði? Ég tel það ekki ástæðuna. Á viðskiptafræðimáli myndi ég segja að ég ætti við bókaflæði vandamál að stríða. Of mikið innstreymi, of lítið útstreymi. Ekki það að ég er að lesa a.m.k. 5 af þessum bókum. Gott að blanda þessu saman, alþjóðavæðingu, ævisögu Lord Byron, freudismi, leikrit Oscars Wilde...o.s.frv. (Kafka er hinsvegar farinn að rykfalla hjá mér af ónefndum ástæðum).

Og af hverju þurfa bresku stöðvarnar að vera með svona rosalega djúsí "Year in Review" o.þ.h. þætti akkúrat núna?? Var ekki hægt að geyma þetta fram að áramótum?

Best að drífa sig að sjónvarpinu, svo maður missi nú ekki af yfirferðinni yfir stjórnamálaþróunina í Indónesíu á árinu. Svo reynir maður að komast yfir einhverja kafla í bókinni sem ég byrjaði á í gær.

Já, það er ekkert grín að vera information junkie... :-þ
Agust skrifaði kl. 2:36
Flokkun: Daglegt líf

desember 23, 2003

Jólakort

Ég var að uppgötva áðan að ég á alveg eftir að skrifa á jólakortin.
Ég er ekki í neinum tengslum við jólaveruleikann þetta árið. Ekki það að ég hafi verið það síðustu ár, en ég hef þó a.m.k. verið meðvitaðari um að jólin væru á næsta leiti.

Kannski það sé vegna þess hvað ég hef nánast ekkert hlustað á útvarp dögum saman. Engin jólalög til að pirra mig. Það eina sem gefur til kynna að geðveikin sé í fullum gangi er umferðin. Það er t.d. óvinnandi vegur að komast í miðbæinn á bíl.

Ég er búinn að kaupa mér jólakaffi, eitt af því fáa sem ég virkilega fíla við þennan árstíma. En nei, ég er engan veginn búinn að meðtaka að aðfangadagur er eftir rétt rúman sólarhring... og ég á eftir að skrifa á jólakortin.

Ég er reyndar búinn að kaupa þessar þrjár jólagjafir sem ég gef. Það verður eiginlega að teljast afrek hjá mér. Þökk sé internetinu reyndar :-)

Ég ætla auðvitað í friðargöngu með litlu systur á morgun. Jafnvel þótt það verði rok og rigningarslabb og það nánast séu trúarbrögð hjá mér að halda mig innandyra í slíku veðri. Ætli við keyrum ekki út jólakortin eftir það.
Agust skrifaði kl. 2:09 | Comments (5)
Flokkun: Daglegt líf

desember 20, 2003

Jólahlaðborð

Í gær fór gamla stjórnin mín saman á árlegt jólahlaðborð.
Fórum á Argentínu, þar sem þokkafyllsti þjónninn á staðnum þjónaði okkur til borðs. Hlaðborðið var fínt en tvímælalaust lambafilléið toppurinn. Alveg himneskt!
Svolítið absúrd fyrir mann sem hvorki borðar svínkjöt* né reyktan mat að fara á jólahlaðborð en ég gerði lambafillénu þeim mun betri skil.

Síðan var haldið í partý þar sem margir ógeðsdrykkir voru blandaðir og drukknir... og allir urðu verulega drukknir.
Svo var farið á Hverfisbarinn, hvaðan ég fór ásamt Jóa eftir að hafa týnt öllum. Endaði á að týna Jóa líka þannig ég hringdi í bjargvætt minn sem sótti mig á Bæjarins beztu. Mjög hentugt að þekkja leigubílstjóra á svona stundum. Hefði frosið í hel hefði ég þurft að vera mínútunni lengur í þessu brunafrosti.

Og talandi um brunafrost. Ég var að sjá veðurspánna fyrir Aþennu, þar sem stóð til að verja jólunum, á BBC áðan. Rigning og fimm gráður.

* Það stoppar mig að sjálfsögðu ekki í að borða Bæjarins beztu :)
Agust skrifaði kl. 14:29
Flokkun: Daglegt líf

desember 14, 2003

HHG

Hvað eiga hinir fjölmörgu einlægu aðdáendur Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar að gera í kvöld?

Í kvöld eru sýndir á sama tíma Sjálfstætt fólk Jóns Ársæls, þar sem HHG er gesturinn í kvöld, og sama tíma sýnir RÚV nýja heimildarmynd prófessorsins um Halldór Laxness. Að sjálfsögðu gat Ríkissjónvarpið ekki staðist að kaupa nýjasta framtak HHG í gerð sjónvarpsefnis svona mitt í jólabókaflóðinu (fyrsta bindi ævisögu Halldórs, eftir Hannes, fæst í næstu bókabúð á kostakjörum, listaverð tæpar sex þúsund krónur).
Eftir þessa flugeldasýningu fá aðdáendur klukkutíma í hlé. Klukkan tíu hefst svo þáttur Sigmundar Ernis á Skjá einum, Maður á mann, þar sem hver annar en Hannes Hólmsteinn Gissurarson, ævisöguritari, er gestur.

Það er því eins gott að gera vídjóið klárt! When it rains, it pours.

Leiðrétt 22.15: Ómar situr í stólnum á móti Sigmundi Erni, ekki HHG, einhver misskilningur hjá mér.
Agust skrifaði kl. 20:03 | Comments (4)
Flokkun: Stjórnmál

Saddam

Ég verð að viðurkenna að ég trúði eiginlega ekki fréttunum í morgun, búið að ná Saddam Hussein! Svei mér þá, maður bjóst ekki við þessu.
Það kom manni hinsvegar ekki á óvart að fyrst að hann náðist á annað borð að hann næðist á lífi. Hann hefði ekki getað farið um ef hann hefði haft með sér nægilegt lið til að geta varist almennilega. Það kom manni hinsvegar á óvart að hann skuli hafa gert þau grundvallarmistök að annars vegar að dvelja í lengri tíma á sama stað og hinsvegar að hann skuli hafa haft ítrekað samband við eiginkonu sína í Beirút.
Hann hefði aldrei framið sjálfsmorð, slíkt hefði bæði strítt gegn íslam og svo hefði hann aldrei getað brugðist stuðningsmönnum sínum með slíkum hætti, þannig hefði hann svipt sjálfan sig virðingunni meðal stuðningsmannanna.

Nú vildi fréttafíkillinn ég geta legið yfir gervihnattasjónvarpi og netfréttum en ekki stjórnunarritgerðum. Af hverju gerast stórfréttir alltaf þegar maður er í prófum, á kafi í verkefnum eða vinnu eða þegar maður hefur ekki aðgang að fjölmiðlum?? :-)
Agust skrifaði kl. 17:33
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd

desember 13, 2003

Keiko

Þegar ég heyrði í hádegisfréttunum að Keiko væri allur gat ég ekki annað en fundist þetta fyndin frétt. Að háhyrningur hefði drepist var álíka merkilegt og um einhverja merka manneskju hefði verið að ræða.
Svo hló ég nú hreinlega þegar sagt var frá því að "aðstandendur hans" vildu láta grafa hann á þurru landi.
Hvaða kirkjudeild ætli að hann hafi tilheyrt?
Agust skrifaði kl. 16:42 | Comments (2)
Flokkun: Fréttir

Brandari

Þórir sagði mér nokkuð góðan brandara á msn áðan (ég hló allavega):
Rene Descartes went into his favorite bar and the bartender asked, "would you like your usual drink, Monsieur Descartes?" Descartes replied "I think not" and promptly disappeared.
Já, ég held að ég ætti að fara að sofa.
Agust skrifaði kl. 4:50
Flokkun: Heimspeki , Óflokkanlegt

desember 12, 2003

Ár skandalanna

Forbes rifjar upp ár skandalanna: The Year In Scandals
Agust skrifaði kl. 21:15
Flokkun: Meðmæli , Viðskipti

desember 11, 2003

Jólavinna

Ég er með skemmtilegustu vinnu í heimi þessa dagana - eða a.m.k. skemmtilegustu vinnu sem ég hef haft.
Lestur áhugaverðs efnis og (uppbyggileg) gagnrýni sameinað í eitt, sounds good to me :-)
Það krefst samt aukalegs sjálfsaga að vera svona "heimavinnandi", þ.e.a.s. mætta bara við skrifborðið sitt en ekki fara út úr húsi. Ef það er framtíðin er ég satt að segja ekkert viss um að það sé jákvætt. Ekki það að ég kunni ekki við það (voðalega þægilegt að mörgu leyti) en ég held að fólk yrði geðveikt að vinna svona í 100% vinnu, mörg ár í röð - a.m.k. ef maður er félagsvera :-)
Agust skrifaði kl. 22:39
Flokkun: Daglegt líf

Janis

Rosalega er Janis Joplin góð til að koma sér í gang!

Sá Reputations-þátt um hana í vikunni á BBC, sem ég hafði reyndar séð áður. Hálfgerð harmsaga, líf hennar, og ótrúlegar andstæður í karkaternum sem sást hvernig hún bæði var "svívirðilega metnaðargjörn" þegar metnaður var eitthvað sem þótti smáborgaralegt á Haight-Asbury. Hún var rebel og hafði alltaf storkað fólki en samt skrifaði hún reglulega heim á meðan hún var í San Francisco. Á meðan hún var hálfgerð heroine út á við, kona sem var í raun ekki lík neinni annarri söngkonu í framkomu eða öðru, þá var desperate í að vera elskuð, hafandi alltaf verið outcast í smábænum í Texas þar sem hún ólst upp. Krónískur rómantíker sem fór illa út úr samböndum sínum við karlmenn og stóð í ástarsambandi við vinkonu sína um tíma. Sjálfsmyndin var bjöguð og var karakterinn Pearl, alteregóið sem hún skapaði síðar utan um sjálfa sig, einhvers konar ofurgríma sem hún setti upp.

Þegar hún lést hafði hún vera laus við heróín í nokkurn tíma, sem hún reyndar átti frekar slitrótt samband við, en hafði byrjað aftur. Þvert á við það sem fólk e.t.v. heldur þá var hennar drug of choice áfengi. Á meðan fólk í kringum hana tók LSD, tók hún Jack Daniels. Hún dó u.þ.b. hálfum mánuði eftir að Jimi Hendrix hafði óverdósað og nokkrum mánuðum seinna dó þriðja rokkstjarnan, Jim Morrison, sem reyndar hefði orðið sextugur 8. des. (sem er raunar helgur dagur Bítlaaðdáenda af annarri ástæðu).
Það að hún var búin að vera laus við heróínið að mestu á meðan Pearl var tekin upp heyrist ágætlega. Hljómsveitin sem hún spilaði með á plötunni, The Full Tilt Boogie Band, bjó saman á hóteli (hvar Janis dó síðan á hótelherberginu sínu). Janis fékk þar það camaraderie sem hún þurfti auk þess sem tónlistin og útsetningarnar áttu mikið betur við hana og fyrir vikið varð platan mun betri en I Got Dem Ol' Kozmic Blues Again Mama!, sem þrátt fyrir góð lög inn á milli er sísta platan af þeim fjórum sem kom út með Janis. Á Pearl fær hún að njóta sín einsog hún fékk á plötunum með Big Brother and the Holding Company. Klassatónlist einsog hún gerist best, þó Pearl sé að miklu leyti í öðrum stíl, þá gengur hann upp og spilamennskan er til fyrirmyndar og enginn lúðraþytur sem yfirgnæfir allt.
Þegar hún lést hafði hún ánafnað 1500 dollurum til vina sinna til að halda almennilegt partý til að fagna lífi sínu.
Agust skrifaði kl. 12:03 | Comments (7)
Flokkun: Menning

desember 10, 2003

Miðnesheiði

Á laugardaginn þarsíðasta fór ég í bíó. Hafnarfjarðarbíó, sem Kvikmyndasafn Íslands notar til sýninga á veturna.

Myndin Miðnesheiði, saga herstöðvar í herlausu landi (frumsýnd 1987) var þar sýnd og voru áhorfendur eitthvað á þriðja tuginn. Sjálfur dró ég meðalaldurinn rétt niður fyrir ellilífeyrismörkin.

Myndin var ferðalag til bernskuáranna fyrir mig. Hún hefur verið unnin yfir nokkurn tíma, því m.a. var talað við Vilmund Gylfason og hefur það viðtal verið tekið sumarið '83 í síðasta lagi.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 17:12
Flokkun: Saga , Ísland

desember 07, 2003

Breskur húmor

Í tilefni að þessari umræðu er ekki úr vegi að benda á þetta:

The Observer: 50 funniest people in Britain
The A-Z of laughter (part one)
The A-Z of laughter (part two)
Agust skrifaði kl. 19:02 | Comments (2)
Flokkun: Menning

desember 06, 2003

Alheimsfegurð

Áhugaverð grein: In the eye of the beholder?
"is there is a homogenous, global ideal of female beauty?"
Agust skrifaði kl. 19:02
Flokkun: Mannlíf á jörðu

desember 05, 2003

Fyrirlestur og bókainnkaup

Fór í dag á fyrirlestur Michaels R. Czinkota. Besti hluti fyrirlestrarins var þegar hann prófessorinn spilaði Me and Bobby McGee í upphafi fyrirlestrarins (hefði betur bara spilað plötuna áfram, enda B-hliðin af Pearl með Janis alveg mögnuð). Ég varð fyrir ágætum vonbrigðum, þar sem yfirskrift fyrirlestrarins hljómaði áhugaverð, "The environment for trade, terrorism and the need for new educational approaches".
Sumir gáfust upp áður en fyrirlesturinn var búinn, þar á meðal The Master of Obalogy.

Skemmtilegri var heimsókn mín í Bóksöluna, þar keypti ég þrjár bækur: Þessar tvær síðastnefndu eru úr mjög áhugaverðri seríu sem heitir Routledge Classics. Kiljur sem kosta 1-2 þús. krónur í Bóksölunni, sem er mjög jákvætt verð. Ætlaði að kaupa The Road to Serfdom eftir Hayek en hún var uppseld.

Ný-imperíalismi, bæld bernska og samkynhneigð og svo samband mótmælendatrúar og kapítalisma (og iðnbyltingarinnar)... það verður gaman hjá mér næstu daga :-)
Agust skrifaði kl. 20:52 | Comments (3)
Flokkun: Daglegt líf

I will never use the word 'gay' in school again

Þetta var 7 ára gamall snáði í Louisiana látinn skrifa mörgum sinnum eftir að kennarinn hans hafði skammað hann fyrir að notað "ljótt orð". Svo vitnað sé í frétt Guardian (1. des.):
Second-grader Marcus McLaurin was waiting for recess Nov. 11 at Ernest Gaullet Elementary School when a classmate asked about Marcus' mother and father, the ACLU said in a complaint.

Marcus responded he had two mothers because his mother is gay. When the other child asked for explanation, Marcus told him: "Gay is when a girl likes another girl,'' according to the complaint.

A teacher who heard the remark scolded Marcus, telling him "gay'' was a "bad word'' and sending him to the principal's office. The following week, Marcus had to come to school early and repeatedly write: "I will never use the word 'gay' in school again.''
Þegar móðir drengsins fékk símtal frá yfirkennara skólans var henni brugðið þegar yfirkennarinn sagði son hennar hafa notað svo ljótt orð að hann vildi ekki hafa það eftir. "But that was nothing compared to the shock I felt when my little boy came home and told me that his teacher had told him his family is a dirty word.''
Í skjalinu þar sem kennari drengsins útlistaði "brot" hans stendur:
Marcus decided to explain to another child in his group that his mom is gay. He told the other child that gay is when a girl likes a girl. This kind of discussion is not acceptable in my room. I feel that parents should explain things of this nature to their own children in their own way.
(Sjá frétt Guardian frá 3. des.)
Ég geri þá ráð fyrir að "their own way" af útskýringu sé önnur en "when a girl likes a girl".

Það er alveg sama hversu oft maður heyrir af svona tilfellum í landi helsisins, maður verður alltaf jafn pirraður.
Agust skrifaði kl. 13:15
Flokkun: Ameríka , Fréttir , Jafnréttismál

desember 04, 2003

Tónlist í próflestri

Kláraði síðasta prófið í gær. Furðulegt að vera búinn svona fáránlega snemma.

Ákvað að deila með umheiminum hvaða tónlist fylgdi mér síðustu daga í próflestrinum:

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:18
Flokkun: Daglegt líf

Jólagjöf fyrir þá sem eiga allt

smekkvísi. Þetta er tilvalin jólagjöf fyrir þá sem eiga allt (nema góðan smekk): Tiki Head Tissue Box Cover
Til að fá stærri mynd skal smella hér.

Fleira smekklaust sem þeir sem keyptu tissjúhausinn keyptu líka:

Faith Box (ólíkt tissjúhausnum er þetta ekki fyndið-ljótt heldur bara hallærislega-ljótt)

Solar-Powered Rainbow Maker (ef einhver getur útskýrt fyrir mér pointið með þessu má viðkomandi hafa samband við mig)

To the Life Boats Sign (fólki sem finnst þetta "smellið" er ekki viðbjargandi)

Bilz Trivia [Giving money? Don't just hand it over. Put it inside Bilz Trivia and make them play for it. To get the cash, the recipient must solve 6 trivia questions. Audible voice prompts, clock-ticking sounds, chimes and gongs help (or not). There are 3 difficulty levels, and you can even create your own questions. This sturdy, reusable game may also be used for gift certificates, show tickets and checks.] (hjálp!)

Powers of 2 Clock (tölvunördar sem þurfa að lesa á klukkana á binary formi... þeir þurfa að vera úti á meðal fólks oftar!)

Það skal tekið fram að ég leitaði þetta dót ekki uppi, tissjúhausinn var auglýstur í tölvupósti sem ég fékk frá Amazon.com :-)
Agust skrifaði kl. 15:05
Flokkun: Viðskipti

desember 02, 2003

19. aldar hæstaréttardómar frá USA

Athyglisverðar tilvitnanir í siðfræðibókinni:
A woman had "no legal existence, separate from her husband, who was regarded as her head and representative in the social state." (An 1873 Supreme Court decision, Bradwell vs. Illinois)

In the Dred Scott case, one of the opinions of the Supreme Court [1857] considered blacks as "beings of an inferior order ... and so far inferior that they had no rights that the white man was bound to respect."
Þar hafið þið það.
Agust skrifaði kl. 20:30
Flokkun: Jafnréttismál , Saga

X kynslóðin

Ég hef lengi haldið því fram að, a.m.k. hér á Íslandi, liggi kynslóðaskiptin hjá mínum árgangi, að árgangurinn '81 sé líklegast síðasti árgangurinn sem samsvari sér með þeim sem fæddir eru á 8. áratugnum. Við sem fæddumst '80-'81 eigum (flest) miklu meira sameiginlegt með þeim en t.d. árgöngunum '83-'84. Það er margfalt fleira líkara með árgöngunum '75 og '80/'81 heldur en '80/'81 og '85 - og þá verður maður að taka tillit til þroskamunarins, greina hann frá.

Nema hvað, í bókinni sem við erum með í siðfræði er fjallað um kynslóðir 20. aldarinnar í Bandaríkjunum og "generational value differences".
GI kynslóðin fæddist 1901-1925, man Kreppuna miklu, barðist í WWII, á misgott skap með einstaklingshyggju og á aðild að ýmsum hópum og félögum. Þessi kynslóð trúir á möguleikann að vinna sig upp, samfélagslegar dyggðir og the American Dream.

Þögla kynslóðin fæddist 1936-1945, er of ung til að berjast í WWII, mótast af föðurlandsást (þjóðerniskennd) og ósjálfshlífni GI kynslóðarinnar, hverrar þessi kynslóð vill ekki aðgreina sig frá sjálf. Gildi þöglu kynslóðarinnar eru að virða lög og reglu, föðurlandsást og trúnna.

Baby Boomers fæddist 1945-1964. Þetta er fjölmennasta kynslóðin sem einnig hefur mestu áhrifin og völdin. Þetta er kynslóðin sem lærði að skulda, "buy now, pay later". Þau kunna að hafa sín prinsip en véfengja vald og siðferðisstyrk stofnanna. Þau setja sjálfa(n) sig í fyrsta sætið á undan samfélaginu og forðast siðferðis- og trúarlegar kreddur og efast um trúarbrögð.

X kynslóðin fæddist 1965-1981 og er stundum kölluð Baby Busters. Er hlutfallslega fámenn og finnst vera litið fram hjá sér. Hún ólst upp á tímum erfiðs efnahagsástands og atvinnuleysis. Var kölluð "McJob" kynslóðin (í Bandaríkjunum), sem vísaði til þess að þessi kynslóð átti að vera í lágt settum störfum. Þessi kynslóð trúir því að hún verði ekki eins materíalísk og Baby Boomerarnir. Óöryggi er einkenni á þessari kynslóð, sem leggur meira upp úr góðum vinum og fjölskyldu en materíalísk árangri. Þessi kynslóð, einsog Baby Boomerarnir, tortryggir stofnanir og finnst lífið bæði taka skjótum og stöðugum breytingum.

Y kynslóðin fæddist 1982 og eftir það. Árþúsundskynslóðin er næst fjölmennasta kynslóðin á eftir Boomerunum. Hún ólst upp við sjónvörp, tölvur, nýjar samskiptaleiðir og nýja tækni, rétt einsog Boomeranir ólust upp við síma. Y kynslóðin vill ekki láta bendla sig við X kynslóðina sem þeim finnst vera sjálfselsk og sífellt kvartandi, hálfgerðir aumingjar. Y kynslóðin ólst upp við sterkan efnahag og mikla atvinnu. Þau eru metnaðargjörn, mótíveruð, ótrúlega óþolinmóð og kröfuhörð og finnst hún hafa rétt á hinu og þessu. Frá stjórnunarlegu sjónarhorni eru þau "super-high maintenance", þar sem þau eru drifin áfram af sjálfstrausti. Þau ætlast til þess að umhverfið aðlagist að þeim. Þess vegna þarfnast þau þjálfunar (coaching), mikils feedbacks og smærri og raunverulegri markmiða, með skilafrestum og aukinni ábyrgð.
Einsog ég sagði, þetta miðast alfarið við Bandaríkin en það má heimfæra þetta hingað a.m.k. að hluta til. En það er gaman að þessum "skilgreiningum" og sérstaklega fannst mér skemmtilegt að mörkin voru sett á 1981, rétt einsog ég hef haldið fram :-)
Agust skrifaði kl. 19:04
Flokkun: Mannlíf á jörðu

desember 01, 2003

1. des.

Þar sem það er fullveldisdagurinn 1. desember er ekki úr vegi að gerast þjóðlegur um stund.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:55
Flokkun: Ísland

Lögfræðipróf

Jæja, ég er hvorki fallinn né með 10. Prófið gekk bærilega í þeim hluta (70%) sem var skriflegur, mun fá ágætt fyrir megnið af skilgreiningunum og fjórar stóru spurningar, spurning samt með eina, hvort ég hef svarað henni "rétt". 30% krossaspurningahluti var með svokölluðu "Jóns Orms-fyrirkomulagi", hugsalega enginn kross réttur, mögulega 1, 2, 3 eða allir réttir. Krossarnir voru erfiðir, flestallir, 15 stk. Er alveg ótrúlega fúll yfir að hafa klúðrað einum krossinum. Ekkert við því að gera svosem. Þegar maður gæti skrifað langa ritgerð um fyrningu þá er óafsakandi að klúðra krossaspurningu þar sem enginn valmöguleikinn var réttur, bara vegna þess að manni fannst einn ætti að vera réttur. 3 ára fyrning...*hnuss*

En nú er það siðfræðin... lokaspretturinn. Kominn í jólafrí eftir tvo daga.
Agust skrifaði kl. 19:13 | Comments (5)
Flokkun: Daglegt líf