janúar 30, 2004
Um nauðsyn þess að eiga góða vini og gott kaffi
Undanfarnir dagar hafa einkennst af því að vera langir og sundurslitnir. Það er búið að vera mikið að gera en aftur á móti hefur flest það sem ég hef verið að gera verið skemmtilegt.Ég er byrjaður á framhaldsnámskeiði í arabísku, er á fullu að vinna með ritstjórninni í blaðinu sem kemur von bráðar út og svo er nóg annað að gera, ekki síst í skólanum. Þar fyrir utan er ég iðinn við að finna mér alltaf extra curriculums; fundi, fyrirlestra, námskeið eða hvað það kann að vera. Og ekki má gleyma að rækta líkamann. Svo tekur það líka sinn tíma að "vera ég", lesa allt það sem ég þarf að lesa, vaka fram eftir beinum fréttaútsendingum og sinna upplýsingafíkninni.
Sé t.d. ekki fram á mikið af lausum tíma næstu daga, þar sem ég er fullbókaður fram á þriðjudag í næstu viku.
Það er hinsvegar nauðsynlegt að kunna að taka sér tíma mitt í öllu þessu, rifja upp hvað maður á yndislega vini, drekka gott kaffi og lesa blöðin. Sleppi maður slíkum andans stundum kemst maður á hálan ís. Síðast þegar ég gerði það brást heilsan og slík mistök gerir maður ekki aftur.
Það er gott að hafa nóg að gera, svo framarlega sem maður gætir þess að hafa ekki OF mikið að gera. Það er stór munur þar á.
Það er líka ánægjulegt þegar manni finnst maður vera að uppskera eitthvað eftir erfiði sitt. Ég er t.d. mjög sáttur við að hafa fengið viðurkenningu fyrir skólaárangur haustsins, niðurfelld skólagjöld (90 þús. kr.) og get stært mig af því þegar ég sæki um nám úti að ég hafi komist á "forsetalistann".
Ég er mjög spenntur fyrir næstu vikum og mánuðum. Ekki síst þeirri staðreynd að ég mun sjá fimm ný lönd á næstu fimm mánuðum, gefa út tvö blöð sem berast inn um lúgur allra landsmanna og síðast en ekki síst klára lokaritgerðina og ljúka BS-námi.
Agust skrifaði 30.01.04 13:42
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Ég segi þá til hamingju, já gakktu til hamingju um alla framtíð.
baráttukveðja,
bió