febrúar 01, 2004
Heimastjórnardagurinn
Fyrst 1. des. er orðinn "dauður" dagur er þá stefnan að búa til nýjan þjóðmenningardag 1. feb.?Nú hef ég satt að segja ekki fylgst nógu vel með fréttunum, sökum anna, til að vita hvort til standi að halda upp á daginn framvegis en satt að segja sé ég ekki tilganginn í því.
Heimastjórnin og Hannes Hafstein fá ekki stóran kafla í sögubókum grunnskólabarna (en nógu púðri er eytt í "fimmhundruðkallinn"). Það er spurning hvort að það þurfi mikið að bæta. Þegar í unglingadeildir grunnskólana eru komin börn sem vita ekki hvað var málið með þetta kalda stríð og voru ekki farin að ganga þegar öld Davíðs gekk í garð hafa sjálfsagt mun betra af því að læra um það samfélag sem foreldrar þeirra rámar í: Þegar þótti merkilegt að vera stúdent og verðbólgan var það eina sem var alltaf á uppleið.
Ef menn vilja gera meira úr Hannesi Hafstein geta þeir gert það mín vegna. Persónulega finnst mér 1845 og ekki síst 1874 merkilegri ártöl. Ég held hinsvegar að við þurfum í frekara mæli að snúa okkur að nútíma gærdagsins. Hann þarf að kynna fyrir börnum landsins. Fullorðna fólkið ætti hinsvegar að sjá sóma sinn í því að spara ríkinu veislukostnað við hátíðarhöld til heiðurs Hannesi Hafstein, þótt ágætur hafi verið.
En nú á tímum þegar menn fá ekki af sér reistar styttur líkt og höfðingjar fyrri alda og af þeim er ekki einu sinni málaðar almennilegar myndir - þá verði þeir víst að gera eitthvað til að láta minnast sín.
Nei, smáfríð er hún ekki
Nei, smáfríð er hún ekki
og engin skýjadís,
en enga eg samt þekki,
sem ég mér heldur kýs.
Þótt hún sé holdug nokkuð,
er höndin ofursmá.
Hún er svo íturlokkuð
með æskulétta brá.
Við eldblik augna kátra
skín andlit glatt og ljóst.
Við hljóðfall léttra hlátra
sem hrannir lyftast brjóst.
Hún er svo frjáls og ítur,
svo æskusterk og hraust,
að hver, sem hana lítur,
til hennar festir traust.
ég eld í hjarta finn.
Það er sem blóðið brenni
og bálist hugur minn.
(Heimild)
Ef einhver efast um að Hannes Hafstein hafi átt skemmtilega spretti sem skáld þá er hér með búið að afsanna það.
Agust skrifaði 01.02.04 23:30
Flokkun: Saga , Ísland
Comments
Nei, hvers vegna heldurðu það? Þetta er bara vegna þess að heimastjórnin er 100 ára. Eigum við ekki að segja að tilhlýðilegt sé að halda upp á þetta á 100 ára fresti? ;-)
Binni skrifaði 02.02.04 14:12