febrúar 05, 2004

Fimmtudagur

Í dag mætti ég í fyrsta skiptið í vetur á Viðskiptaþing HR. Stundaði viðskiptaþingin fyrstu tvö árin en í ár hef ég yfirleitt þurft að gera mér sérstaka ferð ef ég hef ætlað að mæta og einhvern veginn hefur dagskráin sjaldnast heillað mig nógu mikið til að mæta sérstaklega. Að heyra hugsanlega sama framkvæmda/forstjórann tala um nánast sömu hlutina í 2. eða 3. skiptið á jafn mörgum árum er e.t.v. ekki það mest spennandi sem hugsast getur.
Hvað um það, fr. Buniovskaya, viðskiptafulltrúi íslenska sendiráðsins í Moskvu, mætti á þingið í dag og talaði, eða öllu heldur svaraði aðallega spurningum, um viðskipti í Rússlandi.
Ég hafði þónokkrar spurningar sem var gaman að heyra svarað og ýmislegt áhugavert var rætt.

Eftir það var ritstjórnarfundur. Ískyggilega stutt í útgáfu.
Í gærdag hitti ég hæstvirtan menntamálaráðherra og tók við hana viðtal. Hún hefur enn meiri karisma í persónu. Stjórnmálaleiðtogi framtíðarinnar.

Mælti mér mót við Þóri á Beyglugerðinni. Heilhveitibeygla með "sólþurrkuðum rjómaosti" stendur alltaf fyrir sínu.
Við gengum síðan niður Laugaveginn. Kíktum á útsölu í Skífunni og ég keypti þrjá diska. Love and Theft m/Bob Dylan, The Man In Black m/Johnny Cash og svo keypti ég Pottþétt: Djass á heilar 299 krónur.
Í M&M fann ég engar bækur sem mig langaði að kaupa og las erlendu blöðin í stað þess að láta okra á mér með því að kaupa þau.
Á leiðinni til baka rakst ég á náttföt í glugganum hjá Guðsteini. Keypti mér forláta bláköflótt náttföt, svona gamaldags. Mig hefur alltaf langað í svona náttföt og gat ekki annað en keypt þau þegar ég sá þau á útsölu í glugganum. Hrein bómull að sjálfsögðu, ensk herranáttföt. Mjög gott.
Hjá Guðsteini mátuðum við Þórir hatta. Hörmuðum að geta ekki gengið með hatta. Hattar eru flottir, þeir hafa stíl. Þórir minnti reyndar óþægilega mikið á lélega eftirhermu af Hallgrími Helgasyni með svartan hatt. Fórum hattlausir út í kuldann. Maður þarf víst að missa hárið fyrst áður en maður öðlast rétt til að bera höfuðföt.
Því næst stoppuðum við í P. Eyfeld. Þar sem við vorum í einhverju hattstuði þá voru loðhúfur mátaðar. Mig langar ekki bara í loðhúfu, mig vantar loðhúfu. Þreyttur að frjósa á eyrunum þegar maður fer út í kaldan bíl á veturna. Keypti samt enga loðhúfu en rosalega var hún hlý.

Endaði svo bæjarferðina á að rífa stöðumælasekt undan rúðuþurrkunni.
Agust skrifaði 05.02.04 23:02

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Það er líka spurning um að kíkja á nýju Stúdentshúfurnar hjá P. -svona í leiðinni! Mér skylst að þær séu rosalega flottar! Reyndar mjög líkar fyrri árgerðum!

Spurning um loðfóðraða Stúdentshúfu?

Af einhverjum ástæðum fannst mér þetta fyndið þegar ég hugsaði þetta en nú þegar þetta blasir við mér á tölvuskjánum er ég ekki lengur svo viss :-)

Jensi skrifaði 06.02.04 09:23

Já en það gæti verið gaman að sjá ykkur labba niður laugaveginn með hatta :P *fliss*

gætuð startað nýju trendi ;)

Vera skrifaði 06.02.04 14:08

Já, við Þórir erum einmitt það sem heitir á góðu máli trendsetters.

Ágúst skrifaði 06.02.04 18:57