febrúar 06, 2004
Tölvur á mínum grunnskólaárum
Ţessi fćrsla Stebba Páls rifjađi upp fyrir mér eftirfarandi, sem ég setti í komment viđ fćrsluna._ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Í fátćkum sveitaskólum Hafnarfjarđar voru keyptir Makkar, líkt og í öđrum skólum. Ţetta hefur líklegast veriđ í kringum 1990. Ţeir voru ađ mestu ónothćfir og aldrei bauđst mér t.a.m. tölvukennsla öll ţau ár sem ég var í skólanum. Nema hvađ mig minnir ađ ţađ hafi veriđ val í 9. eđa 10. bekk en ţar sem ţessi tölvukennsla var svo mikiđ djók ţá valdi nánast enginn ţađ.
Ţeir sem áttu ekki tölvu heima gátu fengiđ ađ skrifa ritgerđir í tölvuveri skólans - og var ţađ líklegast ţađ eina sem blessađar tölvurnar voru nothćfar í - á mörkunum ţó. Ég man ađ skársta ritvinnsluforritiđ var (C)1986 (ţetta hefur líklegast veriđ veturinn 94/95).
Úr ţessu var svo bćtt ađ mér skilst '98 eđa '99 og var ţá tekiđ í notkun nýtt tölvuver. Veit samt ekki hvort ađ ţá hafi vélritunarkennsla á ritvélar veriđ lögđ niđur en ţegar ég valdi vélritun í vali fékk mađur ađ glamra á forláta rafmagnsritvél. Nokkrar voru međ innbyggđum "leiđréttara" og var slegist um ţćr í upphafi hvers tíma. Mest allur tíminn í vélritunarkennslunni fór í ađ telja út miđjujöfnun á forsíđur og annađ slíkt. Minnir einhvern veginn ađ ţađ hafi veriđ 44 slög á blađsíđunni og Ágúst Flygenring var ţví skrifađ frá og međ 15. slagi.
Eftir heilan vetur kunni ég ekki rassgat í fingrasetningu en hamrađi ţess í stađ nokkuđ hratt međ puttaađferđinni, enda međ tölvu heima frá og međ fermingu. Kosturinn var hinsvegar sá ađ í 10. bekk fékk alltaf hrađferđarbekkurinn vélritunarstofuna (sem var venjuleg stofa međ lítilli kompu ţar sem ritvélarnar voru geymdar) og fékk mađur ţví ađ sitja á "hjólastólum" allan síđasta veturinn. Ţađ var líklegast mesta umbunin sem mađur fékk fyrir dugnađ í grunnskóla.
Agust skrifađi 06.02.04 11:42
Flokkun: Daglegt líf , Tćkni&tól